Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1875, Blaðsíða 45
27
Brjef landshöfðingja (til bœjarstjórnarinnar í Reykjavík).
Ráðgjafi konungs fyrir ísland, hefur 2. dag f. mán. ritað mjer á þessa leið:
«Með þóknanlegu brjefi frá 27. nóvember f. á., hefur herra landshöfðinginn sent
hingað erindi, þar sem bœjarfógetinn í Reykjavík, jafnframt því að athuga, að þjer, þá er
þjer samþykktuð reglugjörð um brtinamálefni Reykjavíkur kaupstaðar, er bcejarstjórnin hafði
samið samkvæmt tilsk. 14. febr. 1874 9. gr., um ábvrgð fyrir eldsvoða m. m. í greind-
um kaupstað, hafið gjört breytingar nokkrar á reglugjörðinni, er að ætlnn bœjarstjórnar-
innar þurftu samþykkis hennar við — hefur fyrir hönd bœjarstjórnarinnar skotið þvi til
úrlausnar ráðgjafans, hvort landshöfðingjanum yfir íslándi með 9. grein tilskipunarinnar, er
getið var, sje veitt vald til að gjöra án samþykkis bœjarstjórnarinnar breytingar á reglu-
gjörð þeirri, er bœjarstjórnin hefur samið um hrunamálefni.
Ut af þessu skal yður til þóknanlegrar leiðbeiningar og frekari birtingar fyrir bœj-
arstjórninni tjáð, að með því að það sjálfsagt stendur í valdi herra landshöföingjans að
synja samþykkis yðar til greindrar reglugjörðar, eða rjettara : að binda það því skilyrði,
að í hana verði bœtt, úr henni sleppt eða breytt einhverjum ákvörðunum, getið þjer að
þessu leyti einnig án samþykkis bœjarstjórnarinnar gjört breylingar á sjerhverri reglugjörð,
sem hún liefur samið og sent yður til þess, að þjer samþykkið hana. En skyldi bœjar-
stjórninni ekki þykja slíkar breytingar aðgengilegar, og ágreiningurinn ekki geta jafnazt
með því að bera sig betur saman við herra landshöfðingjann, getur bœjarstjórninni ekki
verið meinað að leita úrlausnar ráðgjafans um hin einstöku atriði».
þetta leiði jeg ekki hjá mjer þjónustusamlega að tjá bœjarstjórninni til þóknan-
legrar leiðbeiningar.
Brjef landshöfðingja (til aratmannsins yfir norður- og austur-unulœminu).
Ráðgjafinn fyrir ísland hefur 4. deseniber f. á., skrifað mjer á þessa leið :
■'Jafnframt því að senda beiðni, ásamt meðfylgjandi útskript úr þingbók þingeyjar-
sýslu, frá vcrzlunarstjóra Th. Guðjohnsen á Húsavik um að mega fá endurborgað brcnni-
vinsgjald af 132’/4 poltum af vínanda, sem fundust vanta ú 3 keröld, er honum voru send
með skipinu «Hjálmari» í maímánuði f. á., hefur herra landshöfðinginn, næst því að láta
í Ijósi, að með prófi því, sem hlutaðeigandi sýslumaður hefur tekið um þetta, virðist eptir
kringumstœðunum vera fengin nœgjanleg sönnun fyrir því, að það, sem vantaði, hafi ver-
ið lekið burt, þegar skipið kom á Húsavík, og að beiðandanum eptir ætlun yðar, að engu
leyti verði um það kennt, að hið opinbera ekki þegar, er skipið kom, ljet hafa það eptir-
lit með affermingunni, sem hefði getað gefið vissu i þessu tilliti — í þóknanlegu brjefi
22. sept. f. á. lagt það til, að hin umsókta endurborgun verði leyfð með 11 rd.
Ut af þessu skal yður til þóknanlegrar leiðbeiningar og frekari ráðstöfunar þjónustu-
samlega tjáð, að þó ekki verði kapnast við, að í þessu máli sje fengin fullnœgjandi sönn-
un fyrir þvi, að lekinn hafi átt sjer stað, áður en skipið var affermt, nje heldur játað, að
beiðandanum sje ekki um það að kenna, að þvílík sönnun eigi er fengin, með því hanD,
þar sem sýslumaðurinn við heimanferð sína hafði vanrœkt að löggilda annan mann til að
lita eptir affermingunni í sinn stað, ekki hefur farið eptir leiðbeiningu þeirri, sem gefin er
í brjefi dómsmálastjórnarinnar frá 4. ágúst f. á., um áþekk alvik og þetla — hefur samt
eptir málavöxtum virzt, að umsótt endurborgun getí átt sjer stað, samkvæmt tillögum herra
landshöfðingjans».
1875
29
20sta
apríl
30
20sta
apríl.
Brjef landshöfðingja (til beggja amtmanna).
Afútdráttum þeim úr vínfangagjaldabókumog afreikningsendurritumþeim,sem hingað hafa
31
248a
apríl