Fréttablaðið - 28.10.2016, Side 34
Fólk er sífellt að reyna að finna
hinn gullna meðalveg í matar
æðinu og reynir flest að gera sitt
besta á degi hverjum og vanda
valið á því sem það neytir. Flest
ir vilja borða holla og fjölbreytta
fæðu úr sem flestum fæðuflokk
um og reyna hvað þeir geta til að
sneiða framhjá óhollustu þegar
hungurtilfinningin lætur á sér
kræla. Marga dreymir um að hafa
nægan tíma til að útbúa millimál
og nesti frá grunni en dagskrá
hversdagsins er víða ansi þétt og
því verður gjarnan lítið úr háleit
um hugmyndum með tilheyrandi
svekkelsi og skyndilausnum.
„MS Léttmál er ný kynslóð
millimála og frábær kostur fyrir
þá sem kjósa fljótlega, bragðgóða
og umfram allt holla millimáltíð
í amstri dagsins,“ segir Björn S.
Gunnarsson, vöruþróunarstjóri
MS. „Fyrstu tvær vörurnar sem
koma á markað eru annars vegar
Grísk jógúrt með döðlum, möndl
um og fræjum og hins vegar Kota
sæla með berjum og möndlum, en
báðar vörunýjungarnar eru hrein
ar í grunninn án viðbætts sykurs
ásamt stökkum og hollum toppi,“
bætir Björn við. Léttmálin frá MS
eru próteinrík, einstaklega hand
hæg og bragðgóð og auðvelt er að
grípa þau með sér og neyta hvar
sem er og hvenær sem er.
Við val á innihaldi í toppana,
sem fylgja Léttmálunum, var
vandað sérstaklega til verka.
Topparnir voru sérvaldir og bland
aðir hjá vottuðum birgjum og þess
gætt til hins ýtrasta að tryggja
besta mögulega hráefnið. Möndl
ur, ber, döðlur og fræ passa full
komlega við hreina gríska jógúrt
og hreina kotasælu og gefa þessir
nýju réttir neytendum kost á hand
hægu og hollu millimáli sem létt
er að grípa með sér í dagsins önn
og neyta þegar hungrið læðist að
manni.
MS Léttmál
– bragðgott og fljótlegt millimál
Fótboltamömmurnar spila saman vikulega á ÍR-vellinum. Þær þurfa hvorki dómara
né þjálfara enda lýðræði ríkjandi í hópnum. Mynd/Hanna
Æfingarnar hófust í haust að
undir lagi fótboltamömmunnar
Sigrúnar Tómasdóttur. „Sumar
tímabilunum hjá börnunum í fót
boltanum er mjög oft slúttað með
foreldrabolta og grilli. Þá spila for
eldrarnir á móti börnum sínum og
allir hafa mjög gaman af. Ég hef
tekið þátt í þessu bæði sem for
eldri og þjálfari og alltaf hefur
það reynst þrautin þyngri að fá
foreldrana til að hætta að spila og
koma í grillið,“ segir Sigrún glað
lega og bætir við að stundum þurfi
líka að benda foreldrum á að draga
aðeins úr ákafanum í að skora
enda verið að spila á móti börnum.
Sjötíu í grúppunni
„Eftir síðasta foreldrabolta urðu
nokkrar mömmur sammála um
að þær þyrftu endilega að fá að
spila oftar. Ég ákvað að prófa og
sjá hver áhuginn væri,“ segir Sig
rún sem setti upp Facebooksíðu
og áhuginn lét ekki á sér standa.
„Í grúppunni eru rúmlega sjö
tíu konur. Áhuginn er því mik
ill en hins vegar eru það í kring
um tuttugu konur sem hafa komið
að spila, en hinar fylgjast með á
kantinum og stökkva kannski inn
í þegar tækifæri gefst.“
Sigrún segir ÍR hafa tekið mjög
vel í hugmyndina. „Það var auð
sótt mál að fá frátekinn völl fyrir
okkur einu sinni í viku,“ segir hún
en hópurinn æfir á gervigrasvelli
félagsins á miðvikudagskvöldum.
Á öllum getustigum
Á hverja æfingu mæta í kringum
tíu til tólf konur og spila í klukku
tíma. Þó meirihlutinn sé fótbolta
mömmur segir Sigrún allar konur
velkomnar. „Það hafa einhverjar
tekið með sér systur og vinkonur,
sumar eiga börn í öðrum íþrótt
um eða áttu börn í íþróttum sem
eru hætt. Þetta er bara mjög fjöl
breytt,“ segir Sigrún. Sama má
segja um getustigið. „Við erum á
öllum getustigum, allt frá konum
sem hafa aldrei farið á fótbolta
æfingu í lífinu, eða hafa æft eða
spilað sem unglingar, upp í eina
sem var atvinnumaður á Eng
landi,“ lýsir hún og telur þetta
blandast vel saman. „Maður sér
alveg muninn. Þær sem eru vanar
fara í meiri átök við þær sem eru
það líka, en fara síðan blíðlegar að
hinum sem minna kunna.“
Skemmtilegur félagsskapur
Sigrún segir konurnar vissulega
hafa keppnisskap en það brjótist
þó út á jákvæðan máta. „Hér er
aldrei nein tapsár eða reið. Hér
þarf engan dómara enda allt mjög
heiðarlegir leikmenn. Hér ríkir
því lýðræði á æfingum.“
En hvað er svona skemmtilegt
við þetta? „Það er félagsskapurinn,
hreyfingin og fótboltinn. Svo er
þetta mun skemmtilegra en að fara
í ræktina. Ég fer í ræktina nokkr
um sinnum í viku og hlakka aldr
ei til þess eins og að fara í fótbolt
ann,“ segir Sigrún og hlær. Hún
segir allar konurnar sammála um
skemmtanagildið. „Það er oft erfitt
að hætta og við spilum oft í rúman
klukkutíma.“
Gott fyrir félagið
Sigrún vonast til að halda úti
æfingum í allan vetur. „Veðrið
hefur vissulega einhver áhrif og
við höfum þegar misst af þrem
ur æfingum í haust út af óveðri.“
Hún telur æfingarnar ekki
aðeins góða skemmtun held
ur byggi þær einnig upp kunn
ingsskap milli þeirra mæðra
sem eiga börn í fótbolta hjá ÍR.
„Þetta er líka rosa fín leið fyrir
konur til að kynnast öðrum
konum í félaginu. Þá getur þetta
líka verið góð leið til að virkja
konur til verka innan félagsins.
Allt í tengslum við þennan fót
bolta, og íþrótta og tómstunda
starf barna, er undir því komið
að foreldrarnir hjálpi til og komi
að starfinu. Vonandi verða þarna
til fleiri sannir ÍRingar,“ segir
Sigrún glöð í bragði.
Mömmur út að leika
Einu sinni í viku hittast hressar konur til að spila fótbolta á ÍR-vellinum. Þær segja
gleði ríkja á æfingum því þrátt fyrir virkt keppnisskap verði engin tapsár þó illa gangi.
Þeir sem gefa sér tíma til þess að
planka í nokkrar mínútur á dag
verða fljótlega varir við árang
ur. Æfingin er einföld og hægt að
framkvæma hana nánast hvar sem
er. Leggjast á magann og lyfta sér
svo upp á tám og lófum, framhand
leggjum og þá nota margir óstöð
ugt undirlag eins og bolta til að
virkja vöðvana enn frekar. Einn
ig má gera æfinguna liggjandi á
hnjám til að byrja með.
Æfingin styrkir djúpu kviðvöðv
ana og getur dregið úr bakverk.
Líkamsstaðan batnar eftir því sem
vöðvarnir styrkjast en æfingin
styrkir bak, brjóst, axlir og háls.
Þá eykst liðleiki einnig þar sem
vöðvarnir í kringum axlir, viðbein
og herðablöð lengjast.
Þegar búið er að koma sér fyrir
á að draga kviðinn inn og mæla
sumir með því að ímynda sér log
andi kerti á gólfinu undir kviðnum.
Þó má ekki lyfta sér of hátt held
ur halda líkamanum þráðbeinum.
Svo er stöðunni einfaldlega haldið
í 20 til 30 sekúndur í einu og hvílt
í 60 sekúndur. Þetta er endurtekið
þrisvar til fimm sinnum.
Bætt líkamsstaða
og aukinn styrkur
Æfingin styrkir djúpu kviðvöðvana og getur dregið úr bakverk.
HeiLSuRÆkt kynningarblað
28. október 20164
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
8
-D
4
A
8
1
B
1
8
-D
3
6
C
1
B
1
8
-D
2
3
0
1
B
1
8
-D
0
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K