Fréttablaðið - 28.10.2016, Qupperneq 36
Daníel óraði ekki fyrir því fyrir nokkrum árum að hann myndi nokkurn tíma prófa súludans og hvað þá fara í sirkus. MYND/GVA Daníel byrjaði að æfa súlufimi fyrir tveimur árum og hefur síðan öðlast aukinn
liðleika og styrk.
„Ég var lítið í íþróttum sem krakki.
Ég spilaði tennis í nokkur ár og
prófaði badminton og borðtenn
is en fann mig ekki í neinum hópí
þróttum. Ég var mest í tölvunni
og var orðinn ansi þungur á mér,“
segir hinn 21 árs gamli Daníel
Adam Pilkington. „Þegar ég var á
öðru ári í menntaskóla tók ég þátt
í innan hússkeppni að fyrirmynd
Biggest Loser hjá 10/11 þar sem ég
vann með skóla. Ég missti tuttugu
kíló í keppninni og önnur tuttugu í
kjölfarið. Það fuku samtals fjöru
tíu kíló á einu ári og allt í einu var
ég eiginlega orðinn allt of mjór. Ég
ákvað því að styrkja mig en fannst
ég ekki ná sérstökum árangri í
ræktinni þrátt fyrir miklar æfing
ar. Ég lét svo hafa mig út í að fara
með kærustunni og vinkonu okkar
í prufutíma í súludansi í Eríal Pole.
Ég var ansi smeykur í fyrstu en
það kom mér á óvart hvað þetta
var skemmtilegt og þá sérstaklega
snúningarnir, tæknin og hin ýmsu
brögð. Ég fann mig síður í mjaðma
sveiflunum en leiddi þær bara hjá
mér,“ segir Daníel sem öðlaðist
bæði aukinn liðleika og styrk með
hjálp súlufiminnar.
Á svipuðum tíma var yngri
bróðir Daníels að leika sér með
svokallað poi sem eru sirkusbolt
ar í löngu bandi. „Ég smitaðist
af áhuga hans og ákvað að prófa.
Bróðir minn fór þá að „juggla“
með bolta og ég fór með tímanum
að prófa mig áfram með það líka.
Ég hafði svo samband við Sirkus
Íslands til að spyrjast fyrir um
eldpoi. Mér var þá boðið að koma
á æfingar en fannst ég ekki orð
inn nógu góður. Ég, bróðir minn
og kærasta fórum hins vegar að
standa fyrir „juggle“kvöldum
í Hinu húsinu undir yfirskrift
inni „Reykjavík Juggle Nights.“
Þau eru haldin alla fimmtudaga
klukkan 20 en með því að „juggla“
í hóp og hafa félagsskap af fleir
um sem eru að gera svipaða hluti
jókst færnin jafnt og þétt,“ út
skýrir Daníel. „Að endingu fórum
við á æfingu hjá Sirkusi Íslands
og vorum strax fengin til að búa
til blöðrudýr á hinum ýmsu uppá
komum. Við kunnum reyndar
ekkert í því en fengum skyndi
kennslu,“ segir Daníel og hlær.
Í dag æfir Daníel með Sirkusi
Íslands í þrjá tíma á dag og er sí
fellt að bæta færni sína. Samhliða
mætir hann í súlutíma enda fara
sirkusinn og súlan vel saman. Eins
er hann í Movement Im provement
og Acro Yoga. Spurður hvert hann
stefni segir hann að sig langi til að
byggja sig enn frekar upp og sækja
mögulega um í sirkusskóla þegar
fram líða stundir. „Ég var þó líka
að klára margmiðlunarskólann
og sækja um hreyfimyndagerð.
Framtíðin er því óráðin.“
Daníel hvetur áhugasama til að
mæta á „juggle“kvöldin í Hinu
húsinu. Þeir sem eru forvitnir
um súluna geta svo séð brot af
því besta á hrekkjavökusýningu
sem verður haldin í Eríal Pole
að Rauðarárstíg 31 á laugardag
klukkan 20 en þar sýna jafnt nem
endur sem kennarar listir sínar á
súlu og Lýru sem eru loftfimleik
ar í hringjum.
Fann sig í súlu og fór í sirkus
Daníel Adam Pilkington fann sig ekki í íþróttum á yngri árum og var auk þess þungur á sér. Fyrir tveimur árum prófaði hann að fara í
opinn súludanstíma með kærustunni sinni og þó mjaðmasveiflurnar hafi ekki höfðað til hans fannst honum snúningarnir og brellurnar
skemmtilegar. Síðan lá leið hans í Sirkus Íslands þar sem hann sýnir alls kyns kúnstir og boltabrögð.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
AMÍNÓ LIÐIR AMÍNÓ LÉTT AMÍNÓ 100%
Liðkandi blanda með
náttúrulegum efnum úr
sæbjúgu úr hafinu við
Ísland.
Inniheldur
sæbjúgu, vatnsrofin
þorskprótín, túrmerik, D
vítamín , C vítamín og
mangan.
Seðjandi og mettandi
blanda sem auðveldar
þyngdarstjórnun vegna
glúkómannan.
Inniheldur
vatnsrofin þorskprótín,
glúkómannan og
króm-pikkólínat.
Fyrir fólk sem vill
auka neyslu á hreinu
fiskpróteini.
Inniheldur
einungis vatnsrofin
þorskprótín úr villtum
íslenskum þorski.
Snorri Snorra
„Virkar vel á mína liði“
Guðrún Lilja
„Finn góðan mun á mér“
Guðjón Ágúst
„Mun kraftmeiri í ræktinni“
hEilsurækt kynningarblað
28. október 20166
2
8
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
8
-C
0
E
8
1
B
1
8
-B
F
A
C
1
B
1
8
-B
E
7
0
1
B
1
8
-B
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K