Víkurfréttir - 13.12.1984, Side 3
VÍKUR-fréttir JÓLABLAÐ
ÓLAFUR ODDUR JÓNSSON:
LJÓS AF LJÓSI
Ýmislegt kemurfram í hugann þegar við heyrum orðið aðventa. Aðventu-
kransar, jólaljós, óskalistar, gjafir og bakstur tilheyrir dögunum fyrir jólin.
r
En hvað þýðir orðið aðventa? Það merkir koma, koma Jesú Krists. I
kristnum löndum hafa menn öldum saman undirbúið jólin á aðventu eða jóla-
föstu. Við hugleiðum boðskap biblíunnar um fœðingu Jesú. Við undirbúum jólin
með því að lesa, syngja og rœða um fœðingu frelsarans. I einum aðventusálmi
segir:
,,Ljómar nú jata lausnarans
Ijósið gefur oss nóttin hans.
Ekkert myrkur það krefja kann,
kristin trú býr við Ijóma þann“.
Hann kom sem einn afokkur ogbirti mönnum kœrleika Guðs ogfyrirgefn-
ingu og varð sönn fyrirmynd hins sanna lífs. Hann fœddist ekki í velsœld kon-
ungsfjölskyldu, eins og vitringarnir œtluðu í fyrstu, heldur í fjárhúsjötu. Þar
birtist mönnum heimur mennskunnar og Guðs blessað barn er hjartaþess heims.
Auglýsingar í blöðum, útvarpi og sjónvarpi minna á að tíminn til að versla
fyrirjól styttist óðum. Minnumst þess jafnframt að dögum til að látagott afsér
leiða fyrir jólahátíðina, fœkkar einnig. Látum ekki okkar eftir liggja sem
borgarar heimsins og þegnar þjóðar, sem sögð er hamingjusöm og trúhneigð, að
rétta þjáðum brœðrum hjálparhönd. Þannig eigum við þátt íþvíaðgeramann-
legt líf mennskara.
Kristur kom tilþess og hann kemur enn íorði sínu og anda til aðgera okkur
rík íþekkingunni á kœrleika Guðs og náð, þeim kœrleika sem œtlaður er hverju
mannsbarni. Hann kom til að vekja þá trú sem tendrast eins og Ijós af Ijósi.
GLEÐILEG JÓL