Víkurfréttir - 13.12.1984, Blaðsíða 21
VÍKUR-fréttir
JOLABLAÐ
,, Við skulum kalla þetta koparnámu"
aðeins um 25%. Það þarf
ekki háskólagenginn mann
til að sjá það út að svona
getur þetta ekki gengið
lengi".
Þú seldir Videoking, gerð-
ist innflytjandi á myndum,
en opnaðir svo videóleigu
fljótlega aftur. Hver er
ástæðan fyrir þessum svipt-
ingum?
,,Til að gera langa og leið-
inlega sögu stutta, þá seldi
ég leiguna, og sá sem
keypti ætlaði að leigja út
myndir sem ég ætlaði að
flytja inn og flutti reyndar
inn. Þessi samvinna gekk
því miðurekki svoaðég hélt
áfram að flytja inn efni og
ákvað að fara aftur út í leigu.
Ég hefði getað haldið mig
við innflutninginn ein-
göngu, en það hefði þýtt
það að myndirnar sem ég
flutti inn hefðu farið til
Reykjavíkur eða út á land,
en það vildi ég ekki. Suður-
nesin eru stærsta, réttara
sagt langstærsta videó-
svæði á landinu og ég ætl-
aði Suðurnesjamönnum
þetta efni. Þá stofnaði ég
Phoenix-Video og hef nú
u.þ.b. 1100 titla alls. Video-
King hefði sennilega verið
með þetta efni sem ég hef í
dag, ef okkar samvinna
hefði gengið upp, og væri
þá besta videóleiga á Suð-
urnesjum í dag. En það kom
í minn hlut að reka hana, og
það er svo sem allt í þessu
fína“.
En fyrst þú getur bæði
flutt inn og leigt út efni, er
þetta þá ekki bara nóg fyrir
einn aðila?
,,Þú meinar að ég hafi
ekki þurft að selja Video-
King í byrjun? Jú, það má
kannski segja það, en tveir
aðilareiga meiri peningaen
einn, og eins og ég sagði
þér áðan, þá þarf geysilegt
fjármagn til að halda góð-
um „standard".
Er þetta gullnáma,
Tommi?
,,Þetta var kannski gull-
náma, en nú skulum við
kalla þetta koparnámu. Það
er langt síðan glansinn fór
af þessu. Þegar maður kóp-
eraði og þurfti ekki að eyða
miklum peningum í að
kaupa myndir, þá var þetta
mjög gott. En eftir að mark-
aðurinn varð „heiðarlegur"
er þetta ekki nein gull-
náma".
Á videóið einhverja fram-
tið fyrir sér, eða dettur þetta
upp fyrir?
„Mikil ósköp, já. Framtíð-
in er örugg, en ekki fyrir
allar þessar leigur. Nú fljót-
lega fer þeim fækkandi og
sumar ganga reyndar kaup-
um og sölum. Það gengur
ekki til lengdar. Ég spái því
að leigunum eigi eftir að
fækka og myndirnar að
batna enn meira, eða í
stuttu máli færri og betri
leigur".
Grindavík:
Rökræðukeppni
Fréttamanni Víkur-frétta í
Grindavík, gafst kostur á að
komast á fund hjá JC
félögum í Grindavík 29.
nóvember s.l. Þar fór fram
m.a. ræðu einvígi milli
Guðrúnar Skúladóttur frá
JC Vík, en hún er jafnframt
fréttaþula hjá sjónvarpinu
og Kristins Benediktssonar
verkstjóra frá JC Grindavík.
Umræðuefnið var eftirfar-
andi tillaga Guðrúnar
„Opinber framlög til lista-
starfsemi verði afnumin".
Guðrún var meðmælandi,
en Kristinn á móti. Báðum
mæltist vel, en þó hafði
Guðrún betur og hefðu
fleiri en Kristinn átt fullt í
fangi með hana. Hún var
svo málefnaleg og rökrétt
að ekki var hægt annað en
dást að. Undirrituð er þó
sammála Kristni i fleiru en
Guðrúnu, þó oft mátti
litlu muna og mikið var
gaman að fá að hlusta á
þessar kappræður og alveg
ótrúlegt hvað framíköll og
þess háttar virtist hafa lítil
áhrif á ræðumenn.
Dómarar voru Bárður
Árni Steingrímsson frá JC
Reykjavík og Pétur
Hjaltason frá JC Selfoss.
Stigin féllu þannig að
Guðrún fékk 949 stig og
Kristinn 874 stig.
Undirrituð þakkar JC
félögum fyrir að fá að koma
á fundinn og óskar
Guðrúnu og Kristni til
hamingju með þol og þor
og er sammála jóví að bæði
hafi unnið.
Lifið heil
Nýafstaðið verkfall var
talið hafa gert ykkur gott?
„Já, en nóvember hefur
aldrei verið eins lélegur og
nú, svo að gróðinn er fljót-
ur að hverfa í reksturinn. Ég
get nú bara sagt þér það, að
fyrir 2 árum var ég með 100
titla en leigði meira en nú,
og er ég þó með 1100 titla í
dag. Það sakar ekki að geta
þess, að ég verð með fullt af
nýjum myndum fyrir jólin,
allt úrvalsmyndir".
Jæja, Tómas, eitthvað
sem þú vilt segja að lokum?
„Ja, það væri helst að
þakka Sparisjóðnum í
Keflavík og Útvegsbankan-
um fyrir aðstoðina í gegn-
um súrt og sætt. Án þeirra
væri ég enn að baka hjá
Ragga vini mínum í Ragn-
arsbakaríi, en þar varég nú í
9 ár og lærði nú eitt og ann-
að af honum hvað viðkem-
ur viðskiptum. Hann kann
ýmislegt fleira en að baka
Jo-Jo brauð", sagði Tommi
og hló eins og honum er
einum lagið.
Þá var ekkert annað eftir
en að kveðja og það gerði
blm. og hvarf á braut.
K.Már.
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiplin á árinu.
Brautarnesti
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskipiin á árinu.
DUUS hf.
TILKYNNING UM
ÁRAMÓTABRENNUR
Þeim sem hafa ætlað sér að hafa áramótabrennu, ber að
sækja um leyfi til Slökkviliös Brunavarna Suðurnesja í
Keflavík.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er, að ábyrgðarmaður sé fyrir
brennunni
Brennur sem verða hlaðnar upp og ekki hefur verið veitt
leyfi fyrir, verða fjarlægöar.
Umsóknir berist fyrir 20. desember 1984.
Lögreglan i Keflavik, Grindavik, Njarðvik
og Gullbringusýslu
Brunavarnir Suðurnesja
Raflagnavinnustofa
Sigurðar Ingvarssonar
Garði - Sími 7103 og 7143
SIEMENS heimilistæki í úrvali.
s.s. þvottavélar, tauþurrkarar,
rakatæki og allt í eldhúsið.
Úrvais gjafavara frá ROSENTHAL
og THOMAS
POSTULÍNSVASAR,
InnRömmun
suBURnesjfl
Vatnsnesvegl 12 - Keflavík
Siml 3598
KG