Víkurfréttir - 13.12.1984, Blaðsíða 42
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
,,Mig langaði mikið til að
verða óperusöngvari"
skólastjóri var að byrja og
vildi fá kennara með
reynslu og við vorum þrjú
hér, ég, Halldóra Ingimund-
ardóttir og Jón skólastjóri".
Og ekki líkað verr en svo,
að þú ert hér enn?
„Já, ég er hér enn. Það er
ekki búið að reka mig enn-
þá, en ég er nú að hugsa um
að hætta, ég er kominn á
eftirlaun og hef verið í hluta-
starfi undanfarið".
Alltaf likað kennslan vel?
,,Já, það gefur auga leið.
Maður heldur sér einhvern
veginn lifandi og frjóum i
þessu starfi. Þegar ég var
unglingur var svo margt
sem mig langaði til að gera,
að stundum átti ég erfitt
með að byrja, og einnig hef-
ur þetta verið í gegnum tíð-
ina. Ég hef e.t.v. verið fjöl-
hæfur og þar af leiðandi
átt erfitt með að einbeita
mér að einhverju, komið við
margt. Ég hef aldrei komist
til þess að læra á hljóðfæri
eða söng, en samt alitaf
verið sönqelskur og músik-
alskur. Ég spilaði jú á
munnhörpu en hætti því
þegar ég fékk fölsku tenn-
urnar", ogennerstuttíhlát-
urinn.
fW CCSY ýlj
Steypusögun
Suðurnesja s/f
Sögum huröagöt, glugga-
göt, raufar í gólf og veggi,
fyrir rafmagns-,
vatnslögnum o.fl.
Vönduð vinna, vanir menn. Þrifaleg um-
gengni. Gerum föst verðtilboö.
Upplýsingar í síma 92-6654.
„Hún vandist því aö
tína upp dagblaðið
sitt í pörtum hingað
ogþangaöumíbúö-
ina og hún vandist
því einnig að þurfa
að halda í sérvegna
þess að Kládíus.
eyddi ókristilegum
löngum tíma á bað-
herberginu við að
greiöasérogplokka-
hár úr nefinu. Það
var eitthvaö við
þetta litla, graena
kríli þess valdandi
að hún gat fyrirgef-
ið honum allt".
AF HIMNUM OFAN ER ÖNNUR
BÓK GUÐBERGS AÐALSTEINS
SONAR. HANN HEFUR AÐUR
GEFIÐ ÚT SKÁLDSÖG.UNA
BJÖRT MEY OG HREIN, SEM
KOM ÚT ARIÐ 1981.
Þegar þú lítur til baka,
hvernig finnst þér kennara-
starfið hafa breyst?
„Mér finnst eins og það
sé alltaf verið að koma
meiru á kennarana, mér
finnst það. Kennarinn er
eiginlega orðinn meira upp-
alandi en leiðbeinandi. Það
hefur nú kannski alltaf verið
eitthvað, en það er að auk-
ast. Við eigum að leiðbeina
og kenna og gera hitt og
þetta og maður verður auð-
vitað að reyna að framfylgja
þessu. Mér finnst líka að
krakkarnir séu ekki eins ag-
aðir og fyrr. Þar held ég að
lífsgæðakapphlaupið og
hraðinn á öllu séu orsak-
irnar. Fólk hefur svo mikið
að gera, allir að flýta sér og
þetta kemur niður á börn-
unum. Þetta var ekki svona
hér áður fyrr. Ég kem hing-
að fyrst 1939, á vertíð í
Keflavík og var 5 vertíðir
þar. Þá var afar rólegt og
gott mannlif í Keflavík. Fólk
gaf sér tíma til að rækta
garðinn sinn, ef svo má að
orði komast. Ég kynntist
góðu og hjálpsömu fólki
þennan tíma, eins og til
dæmis Kristni og Kamillu,
foreldrum Jóns Kristins-
sonar. Kamilla sá um þvott
fyrir mig meðan ég var hér.
Þegar ég kem svo hingað
alkominn 1960, þá er nátt-
úrlega herinn kominn og þá
var þetta allt annað. Þá voru
allir að hugsa um peninga,
að grípa gæsina. Alveg eins
og ekkert annað skipti máli.
Og enginn má vera að
MUNIÐ JÓLATILBOÐIÐ
1 mynd á dag í 4 mánuði.
Jólagjöf Sjónvarpsbúðarinnar
í Keflavík:
20 myndir fylgja öllu öðru
sem keypt er.
/ ------ . \
SJÓNVARPSBÚÐIN keflavík, s. 3634
neinu". Jóhann er nú ó-
venju alvarlegur í bragði.
Hefðirðu kosið að fara til
mennta þegar þú varst
ungur?
„Já, ég var búinn að
sækja um Kennaraskólann
árið eftir að ég kem af Eið-
um. En þá er pabbi orðinn
berklaveikur og deyr
skömmu seinna. Svo trúlof-
aðist ég og fyrsta barnið
fæðist 1940. Svo breyttist
þetta allt með stríðinu".
En ef þú værlr ungur
maður í dag?
„Ég myndi ekki fara i
kennslu. Ég færi örugglega
í skóla, listaskóla. Annað
hvort í söngnám eða mynd-
listarskóla. Mig langaði
mikið til að verða óperu-
söngvari. Ég veit ekki hvort
ég hefði nokkurn tímaorðið
Jói kennari. Ég hef ógúr-
lega mikinn áhuga á öðru
fólki og fylgist vel með öllu
sem er að gerast í öðrum
löndum. Þegar ég var lítill
ætlaði ég alltaf að verða
landkönnuður. Var alltaf að
smíða báta og kynnti mér
allt um Nansen, Livingstone
og Amundsen. Annars
komu Grænlandsförin
stundum við heima og
þangað stefndi nú hugur
minn í þá daga“.
Hvað hefur þér líkað best
að kenna?
„Samfélagsfræði finnst
mér skemmtileg, eins og
gefur að skilja þegar maður
hefur gaman að fólki. Ég hef
lítið kennt enskuna, en ég
kenndi smíðar um árabil. Ég
held að samfélagsfræðin sé
undirstaða allra greina, þvi
fólkið byggir jörðina og ef
maður lærir um fólk þá
eyðast fordómar og hindur-
vitni í garð meðbræðra
okkar. Ég hef stundum
verið gagnrýndur fyrir það
að láta ekki læra utanað
einhverjar ár og landamæri,
en ég hef frekar viljað
einbeita mér að því hvernig
Jói i hlutverki Úla frænda:
,,Margir láta ginnastaf þeim
glansmyndum sem gróða-
pungar flika i
auglýsingunum".
fólkið býr, auðlindirþessog
menningu. Þjóðarremb-
ingur og allt þetta, það er
bara til ills. Maðurinn á rétt
á sinni jörð eins og við,
burtséð frá því hvort hann
er gulur, rauður, brúnn eða
svartur. Eða hvað finnst
þér?“
Nú finnst mér vera
kominn tími til að enda
spjallið. Ekki vegna þess að
heimspekilegar umræður
séu mér ekki að skapi,
heldur vegna þess að sú
umræða yrði of löng fyrir
eitt jólablað. Það verður að
bíða betri tíma.
Manstu ekki einhverja
skemmtilega sögu úr
kennslunni, svona í iokin?
„Jú, einu sinni í kristni-
fræðitíma, þá spurði ég
hvar Abraham hefði verið
jarðaður, og einn krakkinn
svaraði: ,,( Marmelaði hjá
Söru konu sinni". Þetta átti
auðvitað að vera í Marme-
lundi. Svörin hafa mörg
verið skemmtileg". - ehe.
Hörpu GK 111 hleypt
af stokkunum
Næst síðasta laugardag
var hleypt af stokkunum
nýju 150 tonna fiskiskipi frá
Vélsmiðju Seyðisfjarðar, og
hlaut það nafnið Harpa GK
111. Er skipiö smíðað fyrir
Gullvík hf. í Grindavík, en
fyrra skip þess fyrirtækis
sem bar þetta nafn mun nú
fara í úreldingu, en þaðskip
er 30 tonna eikarskip.
Var það Ágústa Gísla-
dóttir, eiginkona Hafsteins
Sæmundssonar fram-
kvæmdastjóra Gullvíkur,
sem gaf skipinu nafn. Skip-
stjóri á hinu nýja skipi verð-
ur Ómar Einarsson úrSand-
gerði.
Harpa GK 11 er 26 metra
langt stálskip og 7 metra
breitt og er áætlað að af-
henda skipið í næsta mán-
uði, en þá hefur smiði þess
staðið yfir í 14 mánuði. I
skipinu verður 565 ha. Cat-
erpillar-vél. - epj.
Njarðvíkingar:
Nú sammála þátttöku í könn-
un á sameiningu
sveitarfélaga
í bæjarstjórn Njarðvíkur
fyrir stuttu var lögð fram
eftirfarandi tillaga „Bæjar-
stjórn Njarðvíkur mun að
sínum hluta taka þátt í
kostnaði við könnun á
kostum og göllum við
sameiningu sveitarfélaga.
Bæjarstjórn vill þóbenda á
nauðsyn þess að kanna
einnig hinn mannlega og
félagslega þátt“. Var
tillagan samþykkt með 7
samhljóða atkvæðum.
epj.