Víkurfréttir - 13.12.1984, Qupperneq 20
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Keflavíkur-
kirkja
Sunnudagur 16. des.
Jólasöngvar kirkjukórs og
barnakórs kl. 17.
Jólafundur Systra- og
bræðrafélagsins í Kirkju-
lundi kl. 20.30.
Sóknarprestur
„Videoið erengin gullnáma"
Tommi tekinn á teppið
Þeir eru ekki margir Keflvikingarnir, sem kannast ekki við Tomma
,,videokóng‘‘. Þessi myndarlegi, dökkhærði maður hefur veriö meira á
milli tannanna á fólki heldur en flestir aðrir og er Keflavik einmitt þekkt
fyrir það, að hér ganga alltaf einhverjar kjaftasögur um einhvern vel
þekktan.
Til að fá botn i þessar kjaftasögur og einnig til að spjalla um videoið, fór
blaðamaður til Tomma einn góðan veðurdag og spurði hann spjörunum
úr.
Hvað heitirðu og hvenær
ertu fæddur?
,,Ég heiti fullu nafni
Tómas Heiðdal Marteins-
son, fæddur 31.12 1958“.
Af hverju hefur þú fengið
viðurnefnið „videokóngur?
,,Það eru nú sennilega
tvær ástæður fyrir því.
Óskum Garðbúum og
öllum Suðurnesjamönnum
GLEÐILEGRA JÓLA OG
FARSÆLS KOMANDI ÁRS.
Þökkum stuðninginn á árinu
sem er að liða.
BJÖRGUNARSVEITIN ÆGIR, Garði
Við sendum Suöurnesjabúum
okkar bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT NÝTT ÁR
með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem erað
liða.
Fyrrum eigendur Bílasöiunnar Bílaness,
Gylfi Kristinsson, Kjartan Már Kjartansson
og Páll Ketilsson
Fyrsta videoleiga landsins í
verslunarhúsnæði hét
„Videoking". Ég átti hana.
Þetta nafn festist síðan við
mig og hef ég bara kunnað
ágætlega við það. Hin
ástæðan er sennilega sú, að
ég hef verið mikið í þessum
,,bransa“ og fólk veit af því.
Ég er alltaf að fá hringingar
frá fólki sem ég þekki og
þekki ekki, og það er að
spyrja mig hvaða tæki séu
best í dag, hvort það á að
kaupa VHS eða Beta tæki
o.s.frv., og ég sel ekki einu
sinni tæki. Fólk virðist þvi
líta á mig sem videokóng,
þ.e. þann sem veit allt um
videóið og þekkir allar
hliðar á því".
Sumir segja að þú hafir
orðið „mi!!i“ á einu ári og
lifað eins og kóngur?
,,Já, það er víst rétt. Fyrst
þegar ég var að byrja í
þessu þá gaf þetta ágæt-
lega af sér, enda voru ekki
svona margar videóleigur
þá. Nú, svo er það annað.
Fólk er svo fljótt að dæma
mann, jafnvel þó það þekki
mann ekki neitt. Ég er með
nokkurs konar bíladellu, þ.e
ég hef gaman af því að eiga
flotta bíla, helst ameriska.
Þeir eru ófáir „flottu" bíl-
arnir sem ég hef átt undan-
farin ár. En það er einmitt
málið. Bíllinn er eitt mesta
stöðutákn á (slandi í dag.
Menn geta verið á hausn-
um, i leiguhúsnæði, á svört-
um lista og skuldugir upp
fyrir haus, en áttflottan bíl.
Almenningur veit ekkert um
hitt allt, en ef viðkomandi
ekur um á flottum bíl hlýtur
hann að vera ríkur. Það kom
nú einu sinni upp sú staða,
VEITUM ELLILÍFEYRISÞEGUM
15%
afslátt.
Pantið
timanlega.
HÁRGREIÐSLUSTOFUR:
ÞEL-hárhús, sími 3990
Hrafnhildur Njálsdóttir,
simi 1063
Lilja Braga, sími 4585
Ásdís Pálmadóttir, simi 3707
DAGANA 22. - 23. DES.
verður opið sem hér segir:
Laugardag 22. des. kl. 9-19
Sunnudag 23. des. frá kl. 10.
að ég átti bara venjulegan
fólksbíl í ódýrari klassan-
um. Þá fékk ég að vera í
friði. Það var gaman.
En það skeði margt á
stuttum tíma. Það voru
miklir peningar í þessu og
mikil velta þegar óráðið var
með höfundarlaun og menn
kóperuðu myndir í stað
þess að fara erlendis og
kaupa þær, eins og tíðkast i
dag. Ég hef farið mikið er-
lendis undanf^rin ár og sá
sem gerir mikið af því er
ríkur í augum fólks. Allar
mínar utanlandsferðir hafa
verið farnar til að kaupa
myndir og ekki timi til ann-
ars en að skoða myndir.
Þetta er ekki frí, það er alveg
öruggt. Ég held að ég hafi
komið svona 15-16 sinnum
til London.enégerekkienn
farinn að sjá frægustu
klukku í heimi, BIG BEN, en
það er nú eitt af því sem
ferðamenn skoða fyrst í
London. Ég hef tvisvarsinn-
um séð aftan á hana úr
hótelum sem ég hef verið á
og það er nú allt og sumt.
Þó að ég hafi verið talinn
ríkur og kallaður videó-
kóngur fer því víðs fjarri að
ég sé sá stærsti í þessum
bransa. Það eru mörg miklu
stærri fyrirtæki á þessu
sviði t.d. í höfuðborginni.
En ég hef alltaf beint spjót-
um mínum aðSuðurnesjum
og reynt að þjóna þeim sem
allra best og þeir hafa
greinilega kunnað að meta
það. Ég vil meina að ég sé
með bestu videóleigu á
Suðurnesjum og þótt víðar
væri leitað".
Er eitthvað um að videó-
leigur kóperi myndir i dag?
,,Eftir því sem ég best veit
er það alveg búið að vera.
Nú þýðir ekkert að bjóða
fólki 2. flokks efni eða léleg
eintök. Fólk vill aðeins það
besta. Innkaupsverð er
mjög hátt á myndum og
þarf mikið fjármagn til að
geta staðið undir því að vera
sífellt að kaupa nýjar
myndir".
Það var verið að skrifa i
Víkur-fréttir fyrir nokkrum
vikum um samtryggingu
videóleiganna hér í bæ, þ.e.
að allir hækkuðu leigu-
gjald saman og var gerð at-
hugasemd við það. Eiga
videóleigur ekki að reyna
að bjóða sem lægst verð og
teldist það ekki til eðlilegrar
samkeppni að þið kepptust
við að vera með lægsta
verðið?
,,Nei. Ekki keppa bíóin
um verðið. Það kostar jafnt í
öll bíó, en myndirnar eru
misjafnar að gæðum. Þar
liggur samkeppnin, að
reyna að bjóða upp á betri
myndir heldur en leigan á
næsta horni. Eins og ég hef
áður sagt kostar þetta mikla
peninga og því þurfum við
að halda leigugjaldinu i því
sem það nú er og jafnvel
hærra. Myndir hafa hækkað
í innkaupum um 100% á
einu ári, en leigugjaldið
,Samkeppnin felst i þvi að bjóða upp á betri myndir"
Njarðvíkurprestakall
Njarðvíkingar og aðrir, sem vilja fá Ijós á
leiði í kirkjugarðinum í Innri-Njarðvík fyrir
jólin, eru vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við Helgu Óskarsdóttur, Kirkjubraut
6, sími 6043. Kveikt verður á Ijósunum
20.-22. desember.
Kirkjugarðsstjórn
Gleðileg jól, farsælt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu sem er að liða.
VÍKUR-fréttir