Víkurfréttir - 13.12.1984, Qupperneq 26
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Konan á bak við manninn:
„Já, en mamma, hann sem
er svo góður maður“
Hún heitir ÞÓRDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR, konan á bak við mann-
inn, alþingismann fyrir Alþýðuflokkinn i Reykjaneskjördæmi, for-
mann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur og nágrennis, vara-
formann Verkamannasambands íslands og fyrrum bæjarfulltrúa,
svo eitthvað sé nefnt, KARL STEINAR GUÐNASON.
Hvernig tekst þér aö
sinna áhugamálum þínum?
,, Fyri r skilning eigin-
mannsins og fjölskyldunn-
ar hefur mér tekist að sinna
mínum áhugamálum. Ég
hef starfað mikið með leik-
félaginu, þó ekkert nú síð-
ustu ár. Slíkt tómstunda-
starf tekur mikinn tímaener
einnig mjög skemmtilegt.
Þvi hætti ég þegar börnin
voru farin að vaxa úr grasi.
Ég vildi endilega leyfa þeim
að sinna sínum áhugamál-
um eins og ég hafði gert.
Kannski byrja ég aftur
raun allt pólitík, þó svo það
sé ekki flokkspólitík, en
sumir segja að pólitík sé
vond eða Ijót tík. Viðhorf
fólks um hin ýmsu mál er
pólitík, - mér finnst oft
myndast misskilningur um
þetta orð. Talandi um póli-
tík man ég eina skemmti-
lega sögu af elstu dóttur-
ina, sem þá var 7 ára.
það voru að fara fram
bæjarstjórnarkosningar og
Kalla Björg hafði verið að
leika sér með vinkonu sinni
einn daginn, en kemur til
mín eitthvað miður sín og
Er erfitt aö eiga eigin-
mann í fremstu víglinu?
,,Ég þekki ekki mikið
annað. Frá því við giftum
okkur hefur hann alltaf ver-
ið á kafi í félagsmálum og
pólitík. Þegar ég kynntist
honum var hann kennari við
barnaskólann og starfaði
mikið með Félagi ungra
jafnaðarmanna og Sam-
bandi ungra jafnaðar-
manna. Síðan fór hann
fljótlega í bæjarstjórn og
síðar á þing. Hann er búinn
að vera viðloðandi verka-
lýðshreyfinguna frá blautu
barnsbeini, ef svo má að
orði komast, og er þar enn.
Það starf tekur lítiö minni
tíma en þingmannsstarfið.
Það er synd að segja að
hann hafi ekki nóg fyrir
stafni - kannski einum of".
Ertu heimavinnandi hús-
móöir? Alltaf verið kannski?
,,Ég vann úti þar til Mar-
geir fæddist, að undan-
skildum þeim tíma þegar ég
var að eiga börnin. Síðan
hef ég ekki haft neinn val-
kost. Fyrsta árið eftir að
Margeir fæddist fór í eilíf
hlaup á milli lækna, þar til
uppgötvaðist hvað var að
honum, þ.e. hreyfihömlun.
Hann fór strax í æfingar og
hefur stundað þær frá því
hann var 1 árs. Þær þurfti að
sækja til Fteykjavíkur fyrstu
3 árin, en með tilkomu
Þroskahjálpar gerbreyttist
aðstaðan og nú sækir hann
æfingar hér í húsakynni
Þ.S. Ég get þó ekki sagt að
ég sé alveg föst heima við,
því sl. 2 ár hef ég verið dá-
lítið í forfallakennslu við
Myllubakkaskóla, en þó
þannig að hún samræmd-
ist stundaskrá Margeirs".
Gætiröu hugsað þér hlut-
verkaskipti hjá þérog eigin-
manninum, þ.e. að þú færir
alfarið út aö vinna en hann
sæi um heimilið?
,,Ég mundi gjarnan vilja
eiga kost á að fara út á
vinnumarkaðinn, en ég hef
ekki áhuga á að ganga inn í
hans störf eða hliðstæð
Þórdis, Karl Steinar og ynasta barn þeirra, Margeir Steinar
þeirn".
J Ó LÁTRES^
SALA
Kiwanisklúbbsins KEILIS
Salaferfram ásamastaö, íþróttavallar-
svæöinu í Keflavík.
Opiö frá kl. 17-20 mánud.-fimmtud.
og frá kl. 14-22 föstud.-sunnud.
JÓLATRÉ-GRENI - KROSSAR
BORÐSKRAUT-JÓLAPAPPÍR^
JÓLATRÉSFÆTUR
Allur ágóöi rennur
til líknarmála.
Kiwanisklúbburirin
KEILIR
þegar ég verð orðin amma,
það segi ég alla vega þegar
ég hef verið beðin að komé
aftur núna síðustu ár, - þá
get ég leikið raunverulega
ömmu. Nú, svo hef ég verið í
alls kyns félagsmálum, m.a.
hef ég starfað töluvert fyrir
Þroskahjálp og er núna m.a.
I blaðstjórn landssamtak-
anna, sem gefur út timarit
fjórum sinnum á ári, svo er
ég í öldungadeild F.S.“
Eyöir eiginmaðurinn
miklum tíma meö fjölskyld-
unni?
„Of litlum, en þó eins og
hann getur".
Hver eru hans áhugamál?
,,Það eru aðallega félags-
mál af öllu tagi, þann litla
tímasem hann hefuraflögu.
Oftast er hann bara heima
þegar hann á frí".
Hvaö meö heimilisstörf-
in, tekur hann þátt i þeim?
,,Hann hefur alltaf tekið
einhvern þátt í þeim, t.d.
vaskar hann oft upp. Fyrir
skömmu fór ég með Mar-
geir til læknis í Bandaríkj-
unum og var í 9 vikur. Þá
gerði Steini ýmis heimilis-
verk sem hann hefur ekki
gert áður, og tókst mjög vel,
að sögn dætranna".
Er pólitik mikiö rædd á
heimilinu?
,,Já, mikil ósköp. Ég er
sjálf alin upp á pólitísku
heimili og hef mikinn áhuga
á pólitík. En þetta orð -
pólitík, þaðermiklu víðtæk-
ara en margir halda. Þaðer í
segir: ,,Er afi hennar Mörtu
virkilega á B-listanum?“ og
ég sagði svo vera. ,,En hann
sem er svo góður maður".
Það var Hermann heitinn
Eiríksson", segir Þórdís frá
þessu eftirminnilega atviki.
Gagnrýni og sögusagnir.
Þetta tengist pólitík og al-
þingismönnum.
,,Það getur enginn gert
svo öllum líki. Um leið og
ákvörðun er tekin eignast
maður samherja og and-
stæðinga. Á þessu byggist
pólitík. Svo framarlega sem
ákvörðun er tekin sam-
kvæmt eigin sannfæringu,
þá blæs maður á gagnrýni
og sögusagnir illrar tungu,
sem ekki eiga við rök að
styðjast".
Aö lokum, Þórdís, kon-an
á bakvið Karl Steinar
Guðnason. Hver er hans
helsti kostur og ókostur?
„Helsti ókostur hans er
hvað hann vinnur mikið og
því sé ég hann ekki nógu
mikið. En hann er nú bara
svona gerður, - vill hafa
mikið að gera og erallsekki
þessi 9-5 týpa, ef ég má
segja svo. Helsti kostur
hans er tillitssemi, og þá
ekki síst gagnvart mér og
mínum áhugamálum. Hann
hefur hvatt mig til að taka
þátt í því sem mig hefur
langað tii og reynt að skipu-
leggja sinn tíma mér til
handa", sagði Þórdís Þor-
móðsdóttir. - pket.