Víkurfréttir - 13.12.1984, Side 27
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ
Konan á bak við manninn:
„Ég hugsa að það sé erfið-
ara að vera gift sjómanni“
GUÐNÝ GUNNARSDÓTTIR heitir hún, konan á bak við manninn,
aðstoðarmann félagsmálaráðherra, fyrrum þingmann og bæjar-
stjóra tveggja bæja: JÓHANN EINVARÐSSON.
Hvernig er aö vera gift
manni sem hefur verið í
fremstu víglinu á hinum
ýmsu sviðum og er enn?
,,Ég hef náttúrlega ekki
kynnst mikið öðru“, segir
Guðný. „Þegar við giftumst
fyrir 19 árum var hann full-
trúi í fjármálaráðuneytinu. (
dag er hann fulltrúi félags-
málaráðherra. I millitíðinni
hefur hann gegnt starfi bæj-
arstjóra á (safirði í 4 ár og
síðan í 10 ár í Keflavík, og
svo þingmaður í 4 ár. Bæj-
arstjóri á (safirði varð hann
aðeins 6 mánuðum eftir að
við giftum okkur og ég man
það vel, að margir eldri
menn sögðu þetta óðs
manns æði að hætta í svo
öruggu starfi í fjármála-
ráðuneytinu og hreint æv-
intýri að vera að fara til ísa-
fjarðar. Að taka við starfi
sem tengist pólitík væri
ekkert grín. Síðan hefur Jó-
hann verið í slíkum störfum
og erenn. Ég sagði við hann
þegar hann komst á þing,
að nú væri hann að fara úr
öskunni i eldinn, en ein-
hvern veginn hefur þetta
bara þróast svona, maður
ræður ekki alltaf við þetta.
Ég þekki því bara þetta eitt
og veit því ekki hvernig er
að vera gift verslunarmanni
eða sjómanni. Þó get ég
ímyndað mér að það sé
jafnvel erfiðara að vera gift
sjómanni", segir Guðný.
Nú ert þú heimavinnandi
húsmóðir..Gætirðu hugsað
þér að skipta um hlutverk,
þú færir að vinna úti og Jó-
hann að hugsa um heimilið?
,,Nei, og í pólitík færi ég
aldrei. Ég hugsa að það
mundi ganga erfiðlega fyrir
eiginmanninn að ganga inn
í heimilisstörfin, þar sem
hann hefur lítið komið ná-
lægt þeim. Þó veit ég að
hann yrði fljótur að komast
upp á lagið, en ég get bara
ekki ímyndað mér svona
skipti. Ég er þó alls ekki á
móti svona skiptum og
margt unga fólkið hefur
þennan möguleika og getur
hagrætt vinnu og heimilis-
verkum. Það hlýtur að vera
óskastaða margra hjóna".
En hefur þú ekki áhuga á
að fara út á vinnumarkaö-
inn?
„Jú, svo sannarlega. Þó
ég kunni ekki illa við hús-
móðurstarfið þá stefni ég út
á vinnumarkaðinn þegar
fram líða stundir og ég
kann best við mig með fólki.
Ég er sjálf ekki þessi mynd-
arlega húsmóðir sem alltaf
er að“.
T ekur Jóhann þátt í heim-
ilisstörfunum?
„Að mjög litlu leyti, þau
eru mest í höndum húsmóð-
urinnar. Hann vaskar upp
og er duglegur við það“.
Eyðir hann miklum tima
með fjölskyldunni?
„Eyðir fólk nokkurn tíma
nógu miklum tima með fjöl-
skyldunni? Ég þekki alltof
fáa sem það gera. Og þegar
maður líturtil baka þá hugs-
ar maður sem svo, að það
hefði verið gaman að vera
meira saman. Störf Jó-
hanns hafa hindrað það að
mörgu leyti og því er ekki
alltaf hægt að stjórna
þessu. En heimakær er
hann, ég fer ekki ofan af því,
stundum einum of. Oft
þegar hann er búinn að vera
út og suður allan daginn og
kemur heim, vill hann helst
vera heima, þegar ég er
kannski í formi til að fara að
hitta fólk. Svona getur þetta
snúist við, og þá verður
bara að finna hinn gullna
meðalveg. Það tekst yfir-
leitt alltaf".
Hvað með þin áhugamál,
hefurðu getað sinnt þeim?
„Já, já, með skilningi fjöl-
skyldunnar hefur það tekist
nokkuð vel. Og þegarég hef
þurft á barnapössun að
halda hef ég átt góða að í
þeim efnum“.
Hver eru þín helstu á-
hugamál?
„Síðustu ár hef ég verið
töluvert í félagsmálum.
Fyrir AFS, skiptinemasam-
tökin, hef ég unnið talsvert
og fengið mikið út úr því. Ég
reyndi fyrir mér í öldunga-
deild og hafði geysilega
gaman af. Sá lærdómur
varð því miður að víkja, því
mér fannst hann stangast of
mikið á við heimilisstörfin.
Ég hugsa mér þó gott til
glóðarinnar hvað það
varðar og sný mér aftur að
þeim hugðarefnum þegar
fer að róast hjá mér. Nú, ég
var einn af stofnendum
Lionessuklúbbs Keflavíkur
og svo er ég nýbyrjuð að
starfa í Norrænafélaginu í
Keflavík. Þá held ég að það
sé að mestu upp talið".
Guðný Gunnarsdóttir og Jóhann Einvarðsson ásamt dótturinni Vigdísi
Hvað með áhugamál eig-
inmannsins?
„Þegar ég kynntist Jó-
hanni starfaði hann í Félagi
ungra framsóknarmanna í
Reykjavík og var þá einnig i
stjórn Handknattleiksráðs
Reykjavíkur. Siðan hafa
hans áhugamál aðallega
verið í formi íþrótta. Hann
hefur ekki stundað þær
mikið sjálfur, en er mikill
áhugamaðursem áhorfandi
á hvaða boltaleik sem er.
Hann reyndi jú fyrir sér í
golfinu, en vinnan síðustu
ár hafa gert það að verkum
að hann hefur lítið getað
sinnt því. En eins og ég
sagði áður, þá vill hann oft
bara vera heima þegar
hann á frí“.
Að lokurn, Guðný, konan
á bak við Jóhann Einvarðs-
son, hver er hans helsti
kostur og ókostur?
„Hann er með snöggt
skap og er fljótur upp, en
helsti kostur hans er að
hann er jafn fljótur að
gleyma af hverju hann var
reiður og að fyrirgefa til
baka", sagði Guðný Gunn-
arsdóttir að lokum.
pket.
Úrval
jóla-
gjafa
LJÓSKASTARAR
Ryksugur
verð frá kr. 4.890
Kaffikönnur
verð frá kr. 1.136
yfir 30 gerðir
LOFTLJÓS
mikið úrval
BORÐLAMPAR
Úrval smærri
HEIMILISTÆKJA
INNISERÍUR
ÚTISERÍUR
(útbúum eftir máli)
LJÓSAKROSSAR
Ljóskastarar
verð frá kr. 265
á leiði
-handverkfæri
Straujárn
verð frá kr. 1.195
VERSLIÐ VIÐ FAGMANNINN
ÞAR ER ÞJÓNUSTAN.
R.Ó. RAFBÚÐ
Hafnargötu 44 - Keflavík - Sími 3337