Morgunblaðið - 01.10.2015, Side 2

Morgunblaðið - 01.10.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í vikunni var unnið að malbikun gangstíga í Dimmuborgum og er það hluti af langtímaverk- efni Landgræðslunnar að gera aðgengi ferða- manna sem best á þessum vinsæla stað. Í þessum áfanga eru malbikaðir um tvö hundruð metrar af stígum sem og önnur plön og svæði. Á undanförnum árum hefur markvisst verið unnið í stígagerð og eru nú um níu hundruð metr- ar af stígum í Borgunum með varanlegu slitlagi. Jörðin máluð svört innan um haustlitina Morgunblaðið/Birkir Fanndal Stígar í Dimmuborgum í Mývatnssveit malbikaðir Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Halli er á rekstri nokkurra fram- halds- og háskóla miðað við fram- lög ríkisins samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar um fram- kvæmd fjárlaga á fyrstu sex mán- uðum ársins. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, er þeirr- ar skoðunar að mikilvægt sé að endurskoða skólakerfið í heild. Sér- staklega í ljósi þess að samanburð- artölur frá OECD sýni að þótt miklu fé sé varið í skólakerfið end- urspeglist það ekki í námsárangri. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlagafrumvarpsins á fyrri hluta árs kemur m.a. fram að margir skólar eru með uppsafn- aðan halla. „Mín skoðun er sú að við eyðum of miklu fé til skólamála hér á landi miðað við árangur og út- komu,“ segir Vigdís. Hún seg- ir að ástæða sé til þess að loka skóla eða skólum á framhalds- skólastigi á höf- uðborgarsvæð- inu. „Ég tel að það sé of mikið framboð af skóla- plássi þar ef miðað er við nem- endafjölda. Það þarf sífellt að hugsa um það hvernig megi spara og hagræða til þess að nýta fjár- magnið betur,“ segir Vigdís. Hún segir að ein birtingarmyndin sé sú að margir skólar fari fram úr fjár- heimildum. Um sé að ræða óhag- stæðar rekstrareiningar. „Fyrir rest er það þannig að ríkið leggur of mikinn pening miðað við árang- ur. Að auki gengur sumum rekstr- areiningum ekki nægilega vel að ná endum saman,“ segir Vigdís. Meðal annars kemur fram í skýrslu Ríkis- endurskoðunar að menntamála- ráðuneytið muni óska eftir auka- fjárveitingu fyrir þær stofnanir sem hafa glímt við mikinn rekstr- arvanda. Þetta á við um Hólaskóla – Háskólann á Hólum, Tilraunastöð Háskólans á Keldum, Flensborgar- skóla í Hafnarfirði og Landbún- aðarháskóla Íslands. „Í þessu sam- hengi er ég ekki að taka út ein- hverja sérstaka skóla, en ég hef varpað þessu upp við menntamála- og fjármálaráðuneytið því það er sóun í kerfinu,“ segir Vigdís. Sam- tals er gert ráð fyrir tæplega 50 milljarða króna framlagi til fram- halds- og háskóla á fjárlögum. Mikil sóun í menntakerfinu Vigdís Hauksdóttir  Telur að loka eigi framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu Hækkanir á dreifingu bréfa í einkarétti (0- 50 g) hjá Póst- inum taka gildi í dag. Hækk- unin hefur ver- ið samþykkt af Póst- og fjar- skiptastofnun og er á bilinu 3,9% til 4,2%. Brynjar Smári Rún- arsson, forstöðumaður markaðs- deildar Póstsins, segir hækkunina koma til m.a. vegna aukins launa- kostnaðar. „Forsendur fyrir verðbreytingum eru þær að annars vegar þarf að mæta auknum launakostnaði og hins vegar munu væntingar um reglu- gerðarbreytingar um alþjónustu ekki ganga eftir á árinu.“ Innan þess ramma sem hækkunin nær til er að finna flestallan glugga- póst, þar með talin flestöll jólakort nema kannski þau allra veglegustu sem gætu farið yfir 50 g að þyngd. Verðbreytingarnar eru eftirfarandi: A fer úr 153 kr. í 159 kr. 3,9% B fer úr 132 kr. í 137 kr. 3,8% AM fer úr 116 kr. í 121 kr. 4,3% BM fer úr 96 kr. í 100 kr. 4,2%. Pósturinn hækkar verðið  Dýrari jólakort Benedikt Bóas Auður Albertsdóttir Komi til verkfalls SFR hinn 15. októ- ber mun það hafa veruleg áhrif á millilandaflug og afgreiðslum skatts- ins verður lokað. Áður hafði Morg- unblaðið greint frá því að Vínbúðum yrði lokað kæmi til verkfalls. Landa- mæraverðir eru í SFR en þeir heyra undir lögregluna á Suðurnesjum og starfa við hlið hennar. Þeir sinna fyrsta stigs landamæraeftirliti og öðr- um störfum tengdum landamæra- vörslu. Á fjölmennum félagsfundi Lög- reglufélags Suðurnesja um kjaramál í gær var einmitt millilandaflugið með- al annars rætt. „Fyrsta stigs landa- mæraeftirlit er í raun skoðun á vega- bréfum,“ segir Ragnar Már Guðmundsson, formaður Lögreglu- félags Suðurnesja. „Landamæraverð- ir fara í verkfall og við getum ekki gripið inn í þeirra störf og það er ljóst að lögreglumönnum verður ekki fjölgað til að létta álaginu. Þetta mun hægja á öllu kerfinu í flugstöðinni.“ Þegar ferðamaður frá landi sem ekki er á Schengen-svæðinu kemur til Íslands þarf hann að framvísa vega- bréfi. Þetta á meðal annars við um Breta og Bandaríkjamenn en þessar tvær þjóðir hafa verið hvað dugleg- astar að heimsækja Ísland. Alls fóru um 107 þúsund manns um Keflavík- urflugvöll í október í fyrra en gert er ráð fyrir töluverðri fjölgun á þessu ári. Lausnin blasir við Fundurinn sendi frá sér ályktun þar sem stóð að lausnin í deilunni blasti við. „Við teljum að kröfur okkar séu sanngjarnar. Við erum ekki að fara fram á neitt meira en aðrir opinberir starfsmenn hafa fengið. Samninga- nefnd ríkisins hefur ekki gengið að þeim kröfum og ber enn töluvert í milli.“ Engin ný hlutafélög Afgreiðslum Ríkisskattstjóra verð- ur lokað komi til verkfalls SFR. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri seg- ir í samtali við mbl.is að ef til verkfalls komi þurfi að loka öllum afgreiðslum en þær eru á níu stöðum á landinu. „Ef það verður af þessu verða ekki afgreidd vottorð, skattkort, afrit framtala, ekki verður unnt að stofna ný hlutafélög eða taka gögn til skrán- ingar. Þar að auki verður ekki hægt að skrá inn upplýsingar um breyting- ar á stjórnarsetu félaga til dæmis. Það er margt sem raskast. Almenn þjónusta frá degi til dags er eiginlega tekin úr sambandi,“ segir Skúli meðal annars. Verkfall myndi tefja farþega  Landamæraverðir í SFR á leið í verkfall  Bitnar á farþegum utan Schengen- svæðisins  Afgreiðslum Ríkisskattstjóra verður lokað komi til verkfalls SFR Morgunblaðið/Þorkell Röð Líklega munu raðir sem þessi lengjast komi til verkfalls SFR. Yfirvofandi Skaftárhlaup var ekki búið að brjóta sér leið undan jökl- inum þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi. Eftir að hlaup- ið brýst undir jaðri jökulsins líða um sex klukkustundir þar til það nær að Sveinstindi, fyrstu mælistöð Veður- stofu Íslands. Þar var setið og beðið þegar blaðið fór í prentun en spenn- an var mikil. Heildarsig íshellunnar yfir eystri Skaftárkatli var orðið yfir 20 metrar í gærkvöldi. Hlaupið stoppar ekki veiðimenn en að sögn Ragnars Johansen í Hörgslandi ætl- ar hópur manna að veiða í Vatna- mótum í Skaftárhreppi í Vestur- Skaftafellssýslu um helgina. Mæta í veiði þrátt fyrir flóð  Heildarsig íshell- unnar yfir 20 metrar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.