Morgunblaðið - 01.10.2015, Side 18

Morgunblaðið - 01.10.2015, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015 SELTJARNARNES Á FERÐ UM ÍSLAND „Lengi velti ég því fyrir mér að ger- ast gullsmiður eða fara út í vefnað, en þegar ég var 15 ára ákvað ég hins vegar að verða leirkerasmiður,“ segir Ragna Ingimundardóttir leirlista- kona, en hún útskrifaðist frá Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1981 og hélt því næst til Hollands í framhaldsnám við keramikdeild Ger- rit Rietveld Academi þar sem hún var við nám árin 1982 til 1984. Í vösunum lifa strákar Hefur Ragna nú í yfir 30 ár haft verkstæði sitt við Nesveg á Seltjarn- arnesi, en aðstöðuna þar nýtir hún sem vinnustofu, verslun og sýningar- sal. Þrátt fyrir að aðstaðan við Nes- veg sé fremur lítil renna stórir hlutir þaðan út því Ragna hefur lengi haft unun af því að gera listmuni í fyrir- ferðarmiklum stærðum, s.s. háa gólf- vasa, borðskálar, ker og lampa, sem fólk kemst ekki hjá því að taka eftir. Þegar blaðamaður sótti verkstæðið heim var Ragna þar önnum kafin, líkt og flesta aðra daga, og allt um kring voru háir vasar og víðar skálar – sumir munir á byrjunarreit en aðrir lengra komnir og biðu brennslu inni í leirofninum. „Vasarnir mínir eru allir tengdir fólki sem ég hef kynnst eða hitt. Og eru þetta yfirleitt allt strákar þó að þeir séu svona blómlegir, en ég tengi formið alltaf við fólk og þannig fær hver gripur sinn karakter,“ segir Ragna, en í leirnum er mikill sí- breytileiki, fjölbreytt mynstur og áferð og ólíkir litir. Þær aðferðir sem Ragna notar til þess að lita og móta leirinn eru margs konar og notast hún meðal annars við pensil og svamp, vír og bursta og blandar alla sína liti sjálf. Endanleg ásýnd litanna sést hins vegar ekki fyrr en búið er að brenna leirinn, en fram að því birt- ist mynstrið einungis í misgráum tónum. Spurð hvort hún hafi nýlega blandað nýja liti kveður Ragna já við. „En ég veit bara ekki hvernig þeir Morgunblaðið/Golli Við Nesveg Ragna Ingimundardóttir leirkerasmiður hefur haft verkstæði sitt á Seltjarnarnesi í yfir 30 ár. Eltir sjálfa sig og strákana  Verkin endurspegla umhverfi mitt, segir Ragna Skálar Ragna hefur lengi leikið sér að fjölbreyttu mynstri og litum.  Á Seltjarnarnesi má finna voldugt steinsteypt byrgi sem í daglegu tali nefnist Ljóskastarahúsið. Mannvirki þetta telst til minja frá tímum seinni heimsstyrjaldar, en frá því var fylgst með umferð skipa um svæðið. Í dag er húsið vinsæll áningarstaður göngufólks á Nesinu. „Á Valhúsahæð var stjórnstöð fyrir allar siglingar um innanverðan Faxa- flóa, áleiðis upp Hvalfjörð og inn til hafnar í Reykjavík og Hafnarfirði. En mestu máli skipti að verja þetta svæði,“ segir Friðþór Eydal sem vel þekkir sögu Íslands í styrjöldinni. Á Valhúsahæð mátti svo finna tvær öfl- ugar fallbyssur og var hlutverk þeirra að verjast óvinveittum skipum, en undirstöður þessara vopna má enn sjá á hæðinni í dag. „Var ljósköst- urum þá beint að skipum og þau lýst upp í náttmyrkrinu svo hægt yrði að bera kennsl á þau eða beina að þeim byssunum.“ laufey@mbl.is Ljósmynd/Seltjarnarnesbær Liðið Þó að ekki sé búist við skipum óvinarins minnir gamli tíminn á sig. Við strandlengjuna stendur enn minnisvarði heimsstyrjaldar  Kvika, útilistaverk Ólafar Nordal, er staðsett á Kisuklöppum á Seltjarnar- nesi. Verkið er gert úr heilum grá- grýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug. Laugin er svo lýst upp með mildu rafljósi að innan- verðu og í hana rennur stöðugt óblandað, forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness. Er vatnið sagt hafa einstaka samsetningu og jafnvel lækningamátt. Í verkinu vísar Ólöf til fornrar laugahefðar Íslendinga um leið og hún hvetur fólk til þess að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni í fjöruborðinu. „Með heita fætur streymir blóðið um kroppinn, líkamleg og andleg skynjun vex, næmi fyrir umhverfinu vaknar og tengsl við náttúruöflin myndast,“ segir Ólöf. Ljósmynd/Seltjarnarnesbær Vinsælt Fótabaðs- og vaðlaugin Kvika dregur að unga sem aldna allt árið. Tengsl við náttúruöflin í Kviku Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Ég vona að fólk taki þátt í þessari hátíð og að hún verði til þess að við ræktum okkar innri mann, aukum víðsýni og að hátíðin skilji eitthvað eftir sig fyrir börnin,“ segir Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningar- og samskiptasviðs Seltjarnarnes- bæjar, og vísar í máli sínu til menn- ingarhátíðar Seltjarness sem haldin verður dagana 15. til 18. október næstkomandi, en þá verður boðið upp á veglega og fjölbreytta við- burði alla helgina svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í tónlist, leiklist og myndlist „Við leggjum áherslu á að finna listamenn sem búa í samfélag- inu og virkja þá,“ segir Soffía, en í ár snýst hátíðin að stórum hluta um bæjarlistamann Seltjarnarness, Helga Hrafn Jónsson, sem gert hef- ur garðinn frægan á erlendri grundu að undanförnu. Helgi Hrafn og kona hans, Seltirningar skora skilningarvitin á hólm  Menningarhátíð 15. til 18. október Ljósmynd/Martin Dam Kristensen Tónaflóð Helgi Hrafn Jónsson, bæjarlistamaður, og kona hans Tina Dickow syngja fyrir landsmenn í október.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.