Morgunblaðið - 01.10.2015, Page 39

Morgunblaðið - 01.10.2015, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015 Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn og tónskáldið John Carpenter mun flytja tónlist sína á tónlistarhátíðinni Allt Tomorrow’s Parties, ATP, á Ásbrú á næsta ári. Verður það í fyrsta sinn sem Carpenter flytur eigin tónlist op- inberlega, skv. tilkynningu frá ATP. Carpenter mun leika mörg af sínum þekktustu verkum ásamt lögum af nýrri plötu sinni, Lost Themes og nýjum tónverkum. „ATP er að springa úr stolti og gleði yfir því að þessi einstaki viðburður eigi sér stað á Ásbrú í byrjun júlí á næsta ári. Þetta kemur til með að verða söguleg stund sem vekja mun áhuga meðal tónlistar- og kvikmynda- fólks um heim allan enda viðburður sem enginn má missa af,“ segir í tilkynningu. Haft er eftir stofnanda ATP, Barry Hogan, að tón- leikar Carpenters séu mikill heiður fyrir aðstandendur hátíðarinnar. Verk kvikmyndatónskáldsins Ennio Morri- cone hafi tvisvar verið flutt á ATP og það hafi verið há- tíðarhöldurum mikið kappsmál að fá Carpenter til að flytja tónverk sín. Hann sé bæði frumkvöðull og hafi haft mikil áhrif á bæði skipuleggjendur og tónlistar- og kvik- myndagerðarmenn sem hátíðin hefur unnið með. Sá sem láti tónleika Carpenters fram hjá sér fara hljóti að vera galinn. Eftirminnilegar kvikmyndatónsmíðar John Carpenter er þekktur sem leikstjóri hryllings- og spennumynda, hefur samið tónlist við eigin kvik- myndir og þykja kvikmyndatónsmíðar hans meðal þeirra bestu sem gerðar hafa verið fyrir slíkar myndir. Af myndum Carpenters má nefna Dark Star (1974), Assault on Precinct 13 (1976), Halloween (1978), The Fog (1980), Escape from New York (1981), Christine (1983), Starm- an (1984), Big Trouble in Little China (1986), Prince of Darkness (1987) og They Live (1988). „Kvikmyndatónlist Carpenters er þeim gæðum gædd að hún lifir góðu lífi fyrir utan bíósalinn. Það má auðveld- lega fjarlægja hana úr kvikmyndunum sem hún fylgir og njóta áfram. Áhrif tónlistarinnar eru slík. Kaldur hljóm- ur endurtekninga og rafmögnuð tónlistin hrífa hlustand- ann með sér í ferðalag um undraheima fulla af fegurð en líka ævintýra, tryllings og spennu. Það er nánast ómögu- legt að hugsa sér kvikmyndaáhugafólk sem ekki þekkir hljóðheim John Caprenters því hann er í einu orði sagt einstakur. Nægir að nefna tónlistina úr Halloween því til sönnunar,“ segir í tilkynningu. Í febrúar á þessu ári sendi Carpenter frá sér sína fyrstu plötu á löngum ferli sem samanstendur af nýjum tónsmíðum og lögum sem ekki eru samin sérstaklega fyrir kvikmyndir. Plötuna, Lost Themes, hljóðritaði hann með syni sínum Cody Carpenter og Daniel Davies en þeir munu koma fram á tónleikunum á Íslandi ásamt tónskáldinu auk hljómsveitar og tilkomumikillar svið- setningar, eins og segir í tilkynningu. helgisnaer@mbl.is John Carpenter flytur eigin tónlist á ATP  Fyrstu tónleikar leikstjór- ans og tónskáldsins kunna Ljósmynd/Kyle Cassidy Áhrifamikill „Það er nánast ómögulegt að hugsa sér kvikmyndaáhugafólk sem ekki þekkir hljóðheim John Carpenters,“ segir m.a. í tilkynningu frá ATP. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Bang Gang, leidd af Barða Jóhannssyni, heldur útgáfu- tónleika í Gamla bíói í kvöld kl. 20.30 vegna nýútkominnar plötu sinnar, The Wolves are Whispering. Gestir sveitarinnar í kvöld eru ekki af verri endanum, þeir JB Dunckel, liðs- maður hljómsveitarinnar Air og Daniel Hunt úr ensku rafsveitinni Ladytron. Um upphitun í kvöld sér nýstofnuð hljómsveit, Gangly og enska hljómsveitin Is Tropical þeyt- ir skífum milli atriða en hún hefur hlotið MTV-tónlistarverðlaunin. Hljómaði frábærlega á fyrstu æfingu Nokkuð langt er liðið frá því Barði hélt síðast tónleika í Íslandi og spurður að því hvað valdi segist hann hafa gaman af því að spila á Ís- landi en vilji hafa tónleikana veglega og að eitthvað sérstakt sé í gangi. – Nú koma fram með þér tvær er- lendar tónlistarstjörnur, þeir Dunc- kel og Hunt. Þú hefur starfað með báðum að ólíkum verkefnum, get- urðu sagt lesendum í stuttu máli frá þeim og hvernig það samstarf kom til? „Ég vann með Daniel Hunt að tónlist fyrir bíómyndina Would You Rather sem er amerískur tryllir. Svo unnum við saman að sólóplötu Helen Marnie, söngkonu Ladytron. Ég var „co-producer“ að henni. Hvað varðar JB Dunckel þá erum við saman í hljómsveitinni Starwal- ker. Það er dúett sem hefur gefið út þrjú lög og stór plata frá okkur er væntanleg í mars 2016,“ svarar Barði. – Takið þið mörg lög saman og þá lög eftir þig eða hvernig verður efn- isskráin á tónleikunum? „Við tökum eitt lag eftir mig og Danny og eitt Starwalker-lag. Svo munum við allir spila í einu Bang Gang-lagi. Hljómaði frábærlega á fyrstu æfingunni.“ 100% ánægður – Nú hefur þessi plata hlotið lof- dóma víða og í virtum tónlistar- miðlum. Ertu til í að gagnrýna plöt- una fyrir lesendur og jafnvel skella á hana stjörnugjöf? „Ég skilaði af mér plötu sem ég var 100% ánægður með. Persónu- lega gef ég henni 10 í einkunn.“ – Platan heitir The Wolves are Whispering, hvaða úlfar eru það sem hvísla? „Platan er mjög þung, en það eru engin öskur á henni. Þannig að er undirliggjandi mistík og drungi. Samt alltaf von,“ segir Barði. – Þú tókst þér alllangt hlé frá Bang Gang, hvernig stóð á því? „Það voru ýmis verkefni sem hægðu á Bang Gang-plötunni. T.d. samdi ég óperu með Keren Ann sem var sýnd í Frakklandi, stjórnaði upptökum á nokkrum plötum, samdi tónlist við bíómyndir og leikhús. Svo fór tími í að klára Starwalker- plötuna sem kemur út á næsta ári. Eins voru nokkur klassísk verkefni, þar af eitt sem er óútgefið.“ – Hverjir eru með þér í Bang Gang og hverjir leika með þér í Bang Gang í kvöld? „Það eru Hrafn Thoroddsen sem hefur spilað með mér í mörg ár, hann er stórkostlegur hljóðfæraleik- ari og einstök manneskja. Varla hægt að finna betra combo, svaka- legur hljóðfæraleikari, skemmti- legur og hress. Svo er Ingi Björn Ingason á bassa, Kristinn Snær Agnarsson á trommur en hann spil- ar megnið af trommunum á nýju plötunni. Jófríður Ákadóttir mun einnig vera mikið með okkur á svið- inu.“ Framtíð Íslands – Hljómsveitin Gangly treður upp á tónleikunum í kvöld, hvaða hljóm- sveit er það, hvernig tónlist leikur hún og hvers vegna varð hún fyrir valinu? „Vegna þess að þarna er framtíð Íslands, eins konar „supergroup“. Hljómsveitin er skipuð Sindra Má úr Sin Fang og Seabear, Jófríði úr Samaris) og Úlfi Alexander úr Oyama,“ segir Barði. – Hvað ertu annars að sýsla nú um stundir, burtséð frá því að skipuleggja og halda þessa útgáfu- tónleika? „Klára klassískt verkefni, und- irbúa tónleikaferð og vinna að út- gáfu að nýju Starwalker-lagi í nóv- ember.“ Platan fær 10 í einkunn  Bang Gang heldur útgáfutónleika í Gamla bíói í kvöld  JB Dunckel og Daniel Hunt koma fram með Barða Afkastamikill Barði Jóhannsson er með mörg járn í eldinum að vanda. 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 20.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 23.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 19.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Heimkoman (Stóra sviðið) Lau 10/10 kl. 19:30 Frums. Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Sun 6/12 kl. 19:30 12.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Lau 3/10 kl. 18:00 Sun 4/10 kl. 19:30 Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 10/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 10/10 kl. 15:00 Lau 17/10 kl. 15:00 Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna. DAVID FARR HARÐINDIN Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Lau 17/10 kl. 19:00 Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Fös 23/10 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Sun 11/10 kl. 20:00 aukas. Sun 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Sun 18/10 kl. 20:00 aukas. Aðeins þessar sýningar! At (Nýja sviðið) Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Fös 9/10 kl. 20:00 Lau 17/10 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Lau 10/10 kl. 20:00 Fim 8/10 kl. 20:00 Fim 15/10 kl. 20:00 Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00 Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Öldin okkar (Nýja sviðið) Fös 30/10 kl. 20:00 Fim 5/11 kl. 20:00 Sun 8/11 kl. 20:00 Lau 31/10 kl. 20:00 Fös 6/11 kl. 20:00 Sun 1/11 kl. 20:00 Lau 7/11 kl. 20:00 Síðustu sýningar Sókrates (Litla sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 1.k. Fös 9/10 kl. 20:00 6.k. Þri 3/11 kl. 20:00 Fös 2/10 kl. 20:00 2 k. Sun 11/10 kl. 20:00 7.k. Fim 5/11 kl. 20:00 Lau 3/10 kl. 20:00 3.k. Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Lau 14/11 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 4.k. Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 21/11 kl. 20:00 Fim 8/10 kl. 20:00 5.k. Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Sun 22/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00 Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00 Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar! Þriðja hefti TMM, Tímarits Máls og menningar, á þessu ári er komið út og er að mestu helgað nýliðinni bók- menntahátíð. Í því er einnig grein eftir Steindór J. Erl- ingsson, líffræðing og vísindasagnfræðing, um glímu hans við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir í kjölfar erf- iðrar reynslu sem ungur maður í hjálparstarfi. Af öðru efni má nefna viðtal Kristínar Ómarsdóttur við Gerði Kristnýju, Hjalti Hugason skrifar um mynd prestsins nú- tímaskáldsögum, Guðmundur Brynjólfsson um ferða- bækur Thors Vilhjálmssonar og Aðalsteinn Ingólfsson skrifar ádrepu um sýninguna Sjónarhorn í Safnahúsinu. Fjölbreytt efni í þriðja hefti TMM Steindór J. Erlingsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.