Morgunblaðið - 01.10.2015, Qupperneq 40
40 MENNING RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2013
Krigen er önnur kvikmyndTobias Lindholm og skalengan undra að hún sé há-dramatísk. Fyrsta kvik-
myndin sem hann leikstýrði, Kapr-
ingen, fjallaði um gíslatöku og fór
danski eðalleikarinn Pilou Asbæk
með aðalhlutverkið í henni, líkt og
þessari. Lindholm á að baki handrit
margra prýðilegra kvikmynda og það
hádramatískra, m.a. Jagten og
Submarino, auk þess að hafa skrifað
handrit sjónvarpsþáttanna Borgen
sem Íslendingum eru að góðu kunnir.
Og ekki skortir nú dramatíkina í
þeim heldur.
Í Krigen, eða Stríðinu, segir af
Claus, liðsforingja danskrar her-
sveitar í Helmand-héraði í Afganist-
an og eiginkonu hans sem þarf að sjá
um þrjú börn þeirra í Danmörku.
Claus er ábyrgðarfullur og fer oftar
en ekki á vettvang með und-
irmönnum sínum þó að ekki sé það
nauðsynlegt. Í einni slíkri ferð verður
hersveit hans fyrir árás talibana. Í
glundroða átakanna og til að bjarga
lífi hermanna sinna tekur Claus af-
drifaríka ákvörðun og er í kjölfarið
sendur heim til Danmerkur. Þar taka
við annars konar átök því Claus þarf
að takast á við eigin samvisku og
streituna sem fylgir hryllingi stríðs-
átaka.
Lindholm stýrir leikurum sínum af
miklu næmi og útkoman er einkar
trúverðug kvikmynd og raunsæ.
Sögusvið fyrri hluta myndar er að
mestu Afganistan og þar er dregin
upp falleg en um leið átakanleg mynd
af sambandi liðsforingjans við und-
irmenn sína og óttinn við óvininn, tal-
ibana, er áþreifanlegur. Hér eru
menn ekkert að gantast við lyftingar
eða skiptast á klámblöðum, eins og
stundum vill verða í stríðsmyndum,
heldur eiga þeir eðlileg samskipti
hver við annan. Liðsforinginn tekur
hlutverk sitt alvarlega og finnur til
með undirmönnum sínum og áhorf-
andinn finnur til með honum fyrir
vikið. Samkenndin er hins vegar ekki
svo mikil að maður sé ófær um að
taka afstöðu til þeirrar siðferðilegu
spurningar sem varpað er fram í
seinni hluta myndar. Og þó að áhorf-
andinn eigi auðvelt með að setja sig í
spor bæði Claus og eiginkonu hans er
ekkert rétt svar við þeirri spurningu.
Leikkonan Tuva Novotny fer með
hlutverk eiginkonunnar, Mariu og
gerir einstaklega vel. Einhverjir leik-
stjórar og handritshöfundar hefðu ef-
laust fallið í þá gryfju að gera lítið úr
hlutverki eiginkonunnar, miðað við
efni myndarinnar, þ.e. karlmenn í
stríði, en blessunarlega gerir Lind-
holm það ekki og á hrós skilið fyrir
það. Maria er meira en kona sem
grætur í símann. Asbæk er einkar
sannfærandi sem liðsforinginn, leikur
hans hárfínn og jafnvel lágstemmdur
á köflum og af öðrum leikurum sem
skila sínu óaðfinnanlega má svo nefna
hinn ágæta Søren Malling sem lauk
nýverið tökum á kvikmyndinni
Hjartasteini hér á landi. Þar fer leik-
ari sem klikkar aldrei og hefur mikla
breidd.
Í anda Lindholm fær áhorfandinn
enga lausn undir lok myndar, hann
situr uppi með efann. Endar myndin
vel eða endar hún illa? Því verður
hver að svara fyrir sig.
Föðurást Claus faðmar börnin sín við heimkomuna til Danmerkur.
Stríðið ytra og innra
RIFF
Krigen/Stríðið bbbbn
Leikstjórn og handrit: Tobias Lindholm.
Aðalleikarar: Pilou Asbæk, Tuva Novot-
ny, Dar Salim og Søren Malling. Dan-
mörk, 2015, 115 mín. Flokkur: Sjónar-
rönd: Danmörk.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sýnd í Bíó Paradís 2. okt. kl. 17.30
og 4. okt. kl. 16í Háskólabíói.
Agent Fresco fagnar útgáfu breið-
skífu sinnar Destrier með útgáfu-
tónleikum í Silfurbergi í Hörpu í
kvöld kl. 21. Platan hefur hlotið
prýðilegar viðtökur gagnrýnenda
víða um heim og framundan hjá
sveitinni er fjöldi tónleika í Evrópu
og á næsta ári mun hún halda til
Bandaríkjanna til tónleikahalds.
Agent Fresco ætlar að tjalda öllu
til á þessum útgáfutónleikum sínum
og flytja nýjustu plötu sína í heild
ásamt hinum ýmsu hljóðfæraleik-
urum til að skapa þann stóra hljóð-
heim sem býr yfir Destrier, eins og
segir um tónleikana á vef Hörpu.
Hljómsveitina skipa söngvarinn
Arnór Dan Arnarson, trommuleik-
arinn Hrafnkell Örn Guðjónsson,
bassaleikarinn Vignir Rafn Hilm-
arsson og gítar- og píanóleikarinn
Þórarinn Guðnason.
Í Silfurbergi Agent Fresco leikur Destrier í heild sinni í Silfurbergi í kvöld.
Agent Fresco heldur útgáfutónleika
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2015
Pawn Sacrifice 12
Snillingurinn Bobby Fischer
mætti heimsmeistaranum
Boris Spassky í einvígi í
Reykjavík árið 1972. Æðsti
titill skáklistarinnar var að
veði en einnig var einvígið
uppgjör milli fulltrúa risa-
velda kalda stríðsins.
Metacritic 66/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
Háskólabíó 20.00, 22.30
The Intern Sjötugur ekkill sér tækifæri til
að fara aftur út á vinnumark-
aðinn og gerist lærlingur á
tískuvefsíðu.
Metacritic 50/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.35
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
The Man From
U.N.C.L.E. 12
Metacritic 55/100
IMDB 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Akureyri 22.30
The Martian 12
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Laugarásbíó 22.30
Love & Mercy 12
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Vacation 12
Metacritic 34/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.45,
22.35
Sambíóin Akureyri 17.50
Mission: Impossible
- Rogue Nation 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 75/100
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Maze Runner: The
Scorch Trials 12
Mbl. bbmnn
IMDb 75/100
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 18.00, 21.00,
22.40
Borgarbíó Akureyri 17.40
Knock Knock 16
Metacritic 69/100
Sambíóin Álfabakka 22.45
Inside Out Metacritic 93/100
IMDB 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Akureyri 17.50
Skósveinarnir Metacritic 56/100
IMDB 6,8/10
Smárabíó 15.30
Töfrahúsið Sambíóin Álfabakka 18.00
Chasing Robert
Barker (Q&A)
Bió Paradís 13.30
Jia Zhang-ke, a Guy
from Fenyang
Bíó Paradís 13.30
International Shorts
B
Bíó Paradís 14.00
Babai
Bíó Paradís 15.30
The Closer We Get
Bíó Paradís 15.30
In the Same Boat
Norræna húsið 16.00
A Gay Girl in
Damascus
Bíó Paradís 16.00
Coming of age (Q&A)
Bíó Paradís 17.30
The Living Fire
Bíó Paradís 17.30
We Monsters (Q&A)
Háskólabíó 18.00
Krisha (Q&A)
Bíó Paradís 18.00
Golden Egg A
Tjarnarbíó 18.00
Masterclass:
Kissinger Twins
Norræna húsið 18.00
Dead Ringers
Háskólabíó 18.00
Planetary
Norræna húsið 18.00
Rams
Bíó Paradís 19.30
Sleeping Giant
Bíó Paradís 19.30
A Flickering Truth
(Q&A)
Bíó Paradís 20.00
Icelandic Shorts B
Tjarnarbíó 20.00
The Fly (Q&A)
Háskólabíó 20.15
The Here After
(Q&A)
Háskólabíó 20.15
Stand-Up Comedy
Stúdentakjallarinn 21.00
Rosenstrasse
Bíó Paradís 21.30
Those Who Fall Have
Wings (Q&A)
Bíó Paradís 21.30
Lobster Soup
Included
Tjarnarbíó 22.00
Who Took Johnny
(Q&A)
Bíó Paradís 22.00
Mountains May
Depart
Bíó Paradís 22.45
Eastern Promises
Háskólabíó 23.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
RIFF 2015
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Stórmynd í leikstjórn Baltasars Kormáks byggð á sann-
sögulegum atburði. Átta fjallgöngumenn fórust í aftaka-
veðri 11. maí árið 1996, en það er alvarlegasta slys sem
orðið hefur á Everest.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00, 22.40
Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.20, 20.00, 20.00,
22.40, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40
Smárabíó 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.40, 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20
Everest 12
Alríkislögreglukonan Kate er ráðin í sérsveit sem vinnur á svæði við
landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó þar sem ríkir hvorki lög né
regla, til að berjast í stríð-
inu gegn eiturlyfjum.
Metacritic 83/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.40
Smárabíó 20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Sicario 16
Drakúla hefur þungar áhyggjur. Afastrákurinn hans, Dennis, sem er
hálfur maður og hálfur vampíra, virðist ekki hafa nokkurn áhuga á
vampírskum eiginleikum sínum.
IMDB 7,7/10
Laugarásbíó 18.00, 18.00
Sambíóin Álfabakka 18.00
Sambíóin Egilshöll 17.20
Smárabíó 15.30, 15.30,
17.40, 17.40
Háskólabíó 17.30
Borgarbíó Akureyri 17.40
Hotel Transylvania 2