Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Page 21
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Stefnumót við Fransmenn
MARGIR VELTA NÚ FYRIR SÉR FRAKKLANDSFÖR NÆSTA SUMAR, ÞEGAR KARLALANDSLIÐ ÍSLANDS Í FÓTBOLTA TEKUR Í FYRSTA SKIPTI ÞÁTT Í ÚR-
SLITAKEPPNI EVRÓPUMÓTSINS. LEIKIÐ VERÐUR Í TÍU BORGUM OG HÉR ERU STUTTLEGA KYNNTAR ÞÆR FJÓRAR SEM ERU Í NORÐURHLUTA LANDSINS;
LENS, LILLE, PARÍS OG ÚTBORG HENNAR, SAINT-DENIS. SÍÐAR VERÐUR SAGT FRÁ BORDEAUX, TOULOUSE, SAINT-ETIENNE, LYON, MARSEILLE OG NICE.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Oft er sagt að gott sé að fara ást-
fanginn til Parísar og eyða tíma með
sinni heittelskuðu, eða sínum. Það er
líka auðvelt að verða ástfanginn af
París.
Borgin er magnþrungin, ef til vill
erfitt að útskýra nákvæmlega hvers
vegna og því best að upplifa. Skila-
boð til fólks í ferðahug eru einföld:
Farið til Parísar!
Hvar er best að byrja?
París er Eiffel-turninn, jafnvel
fyrir lofthrædda, Sigurboginn og
Louvre-safnið. París er rauðvín og
ostur, hvítvín og ostrur. Kaffi og cro-
issant og hani í víni. Hún er tíska,
lögga með flautu, mannlíf og fallegir
garðar. París er Vinstri bakki og sá
hægri. Hún er áin Signa, sem liðast
um hana miðja, kirkjurnar Notre
Dame og Sacré Coeur. Kirkjugarðar
þar sem stórmenni hvíla. Hver hefur
ekki áhuga á að sækja þau heim?
Svo er París auðvitað fótbolti.
Sá sem þetta skrifar hefur hitt
einn mann sem ekki fannst gaman
að fara til Parísar en gerir ekki ráð
fyrir því að hitta annan.
París er falleg á nóttu sem degi. Horft yfir borgina frá Montparnasse.
Morgunblaðið/Ómar
Unaðsreitur
á Signubökkum
Lens er liðlega 200 km norðan við
París. Íbúar borgarinnar eru um
35.000 en alls búa um það bil tíu
sinnum fleiri í héraðinu öllu.
Borgin var nánast lögð í rúst í
fyrri heimsstyrjöldinni og eyði-
legging þar varð aftur gríðarleg í
þeirri seinni.
Á árum áður var svæðið eink-
um þekkt fyrir kolanámur og segja
má að lífið hafi að mestu leyti snú-
ist um þá starfsemi í 100 ár frá því
um miðja 19. öldina.
Undanfarið hefur uppbygging
verið mikil í Lens og nágrenni. Há-
skóli var stofnaður þar fyrir tæp-
um aldarfjórðungi og breytti
ímynd svæðisins töluvert, einnig
útibú frá hinu heimsþekka
Louvre-listasafni í París en þar er
að finna margt dýrgripa víða að úr
heiminum.
Fótboltaáhugamenn á miðjum
aldri og þaðan af eldri kannast
væntanlega við staðinn því lands-
liðsmaðurinn Teitur Þórðarson
lék með liði borgarinnar fyrir
rúmum þremur áratugum.
Borgin Lens nyrst í landinu. Ásýnd hennar hefur mikið breyst síðustu áratugi.
Frá kolanámi
til háskólanáms
Íbúar Lille eru um 230.000 og er hún tíunda fjöl-
mennasta borg Frakklands. Í héraðinu búa alls um
tvær milljónir. Borgin er liðlega 200 km norðan Par-
ísar, steinsnar frá belgísku landamærunum.
Lille er mikil viðskiptaborg, nokkurs konar hlið
landsins til norðurhluta Evrópu og þekkt háskólaborg
Einn landsliðsmanna Frakka í fótbolta er frá Lille,
varnarmaðurinn Raphael Varane. Þar er og fæddur
og uppalinn einn merkasti stjórnmálamaður Evrópu
á síðustu öld, Charles de Gaulle, hershöfðingi, stofn-
andi og fyrsti forseti fimmta lýðveldisins, 1958-1969.
Safn er á heimili ömmu de Gaulles í borginni þar sem
m.a. má sjá einkunnablöð hans frá því í barnaskóla og
Citroën-bifreið, eins og gatasigti eftir skotárás þegar
reynt var að ráða forsetann af dögum 1962.
Heimaborg de Gaulles
Aðaltorgið í borginni Lille, sem kennt er við de Gaulle
hershöfðingja, síðar fyrsta forseta fimmta lýðveldisins.
Saint-Denis er 100.000 manna útborg Parísar, aðeins
tæpum 10 km norðan við miðju höfuðborgarinnar.
Þekktasta kennileiti Saint-Denis í gegnum tíðina er
miðaldakirkjan Basilique royale, sem var hluti klaust-
urs Benediktsreglu í kaþólskum sið. Í Saint-Denis
voru langflestir konungar Frakklands og fjölskyldur
þeirra lagðar til hinstu hvílu um aldir; þar eru leifar
allra nema þriggja sem ríktu í landinu frá því á 10. öld
til 1789. Þekktasta kennileiti Saint-Denis í seinni tíð
er líklega íþróttaleikvangurinn Stade de France, sem
byggður var fyrir HM í fótbolta 1998, fimmti stærsti
íþróttaleikvangur Evrópu. Flestir heimaleikir Frakka
í fótbolta og rugby fara þar fram á vellinum, og fjöldi
annarra viðburða, t.d. tónleika.
Þar sem kóngarnir hvíla
Þjóðarleikvangurinn, Stade de France, er í Saint-Denis.
Morgunblaðið
gefur út stórglæsilegt
Jólablað
fimmtudaginn 19. nóvember
Fjallað verður uppáhalds
jólauppskriftirnar að veislumatnum,
grænmetisrétti, jólasiði og jólamat í
útlöndum, gjafapakkningar, viðburði
í kringum jólahátíðina, jólabækur,
jólatónlist og margt fleira.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 12 mánudaginn
16. nóvember.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is