Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Page 41
18.10. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
spjalla mikið saman. Ég fann strax að
Sara var allt öðruvísi en þær stelpur sem
ég hef kynnst hingað til,“ segir Rich
Piana.
Þegar Sara kom til Bandaríkjanna lét
hún gamlan draum rætast, fékk sér þjálf-
ara og prófaði sig áfram í fitnesskeppnum
meðfram náminu. Hún segir það hafa
kostað mikla orku og vinnu og hún þakki
Rich það að hafa ekki verið að sólunda
meira af lífi sínu í þann iðnað.
„Það er bæði ákaflega dýrt og mikið
álag fyrir líkamann þar sem fólk leggur
allt í sölurnar til að líta sem best út á
pallinum. Ég vil eyða tíma mínum í ann-
að.“
Öðruvísi en aðrar
konur í fitnessheiminum
Áður en Sara hitti Rich hafði hún heyrt
af honum gegnum líkamsræktarheiminn og
skoðað myndböndin hans.
„Ég man að þegar ég var að skoða
myndböndin hans í fyrsta skipti varð ég
hreinlega orðlaus. Hver þessi gaur væri
eiginlega! Mér fannst hann fullkominn í
einu og öllu. Ég vissi samt minna um
hann en flestir. Ástæðan var sú að hann
sjálfur hafði ekki verið að keppa um tíma
þótt hann hefði verið viðloðandi þennan
heim í 20 ár og ég var glæný í þessu.
Ég fann strax að við ættum samleið, við
höfum svipaðan stíl og viðhorf og svo
komst ég að því síðar að við höfum alveg
sömu ástríðu fyrir lífinu.“
Rich segist sjálfur hafa fundið það strax
að í Söru væri mikið spunnið. „Því miður
er það svo að þær stelpur sem eru við-
loðandi líkamsræktina eru í raun oft að
burðast með mikla komplexa og óöryggi
og skortir oft ákveðið innihald. Það er al-
veg dæmigert að sjá fallega konu, með
fallegan líkama, sem þú myndir halda að
væri sátt í eigin skinni en í rauninni er
það algerlega andstæðan. Þótt aldursmun-
urinn á okkur sé talsverður, en ég er 44
ára, hef ég aldrei fundið þann aldursmun
því Sara er svo andlega þroskuð. Ég skil
ekkert í því að hún vilji ekki hanga á
klúbbum og vera að skemmta sér. Á
hennar aldri veit ég alveg að ég hefði
aldrei látið sjá mig heima að hafa það
bara huggulegt á kvöldin. Okkar markmið
í lífinu eru fullkomlega þau sömu. Við
fundum það strax og við kynntumst.“
Sara tekur undir það. „Ég hugsa að ég
fari ekki strax aftur í námið. Ég hef aðr-
ar hugmyndir um lífið í dag en að þurfa
að fara eftir einhverjum hefðbundnum
leiðum í gegnum það. Við erum að njóta
þessa frelsis til að láta drauma okkar
rætast í botn og vera okkar eigin herrar.
Það er þessi hugmynd um að fólk eigi að
lifa lífinu eftir fyrirframgefnum hug-
myndum samfélagsins sem ég hef áttað
mig á, sérstaklega eftir að ég kynntist
Rich, að er ekki endilega sú leið sem er
best að fara.
Maður er alinn upp við það að eiga að
fara í skóla, fá sér vinnu, verða læknir
eða lögfræðingur, kaupa hús og reyna að
halda fjölskyldu sinni uppi. Það er hægt
að velja aðrar leiðir – nám er dýrt og af
hverju ekki að eyða frekar orku og pen-
ingum í að láta viðskiptahugmyndir sínar
rætast; búa til sín eigin fyrirtæki og nýta
það í botn sem lífið hefur upp á að
bjóða.“
Rich segir að sjálfum hafi honum aldrei
dottið í hug þegar hann var yngri að það
væri hægt að gera eitthvað á eigin for-
sendum og stofna fyrirtæki. „Frá unga
aldri er manni aldrei gert ljóst að það er
hægt að fara óhefðbundnar leiðir í lífinu.
Manni er einfaldlega kennt að maður eigi
að gera svona og svona og svona; allt
fremur hefðbundið og eins og allir hinir.
Ég var rosalega feginn þegar ég áttaði
mig til dæmis á því að ég væri að eyða
peningum og tíma í það að keppa – og að
ég gæti verið að njóta lífsins og þess sem
það hefur upp á að bjóða með því að
koma eigin hugmyndum í framkvæmd og
búa til peninga. En það tók mig 18 ár að
finna út úr því og öll árin á undan sner-
ist lífið um að vinna titla.“
Jafnvel í undirfataiðnaðinn
Rich hefur nýtt sér samfélagsmiðlana til
þess að koma sér á framfæri og það hef-
ur tekist. „Til að fá milljónir manna til að
horfa þarf maður að hafa eitthvað sem er
„öðruvísi“. Auðvitað hjálpar þar útlit mitt,
öll tattúin og stærðin á mér, en það
skiptir líka máli að tala beint til áhorf-
enda, vera hreinskilinn og hafa eitthvað
að segja sem þeir vilja hlusta á. Þar hef-
ur reynst mér best að segja hlutina eins
Ljósmyndir/Ingólfur Guðmundsson
„Ég fann strax að við ættum samleið, við höfum svipaðan stíl og viðhorf og svo komst ég að því síð-
ar að við höfum alveg sömu ástríðu fyrir lífinu,“ segir Sara Heimisdóttir.
Ljósmyndarinn Ingólfur Guðmundsson heimsótti þau Söru og Rich Piana á heimili þeirra í Los
Angeles fyrir Morgunblaðið og myndaði þau í bak og fyrir, með hundunum að sjálfsögðu.
* Þótt aldursmun-urinn á okkur sétalsverður, en ég 44 ára,
hef ég aldrei fundið
þann aldursmun.