Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.10.2015, Side 56
SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2015
Róbert Lagerman og Daníel Már Sigurðsson munu
heyja einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í kotru í Ráð-
húsi Reykjavíkur í dag, laugardag, klukkan 14. Kotra
nýtur nú vaxandi vinsælda hér á landi en um er að
ræða eitt elsta borðspil heims, mögulega það elsta, en
til eru heimildir fyrir því að menn hafi byrjað að
stunda það fyrir 5.000 árum.
Landslið Íslands tók fyrr í haust í annað sinn þátt í
Evrópumeistaramótinu í kotru sem fram fór í Búda-
pest. Hafnaði liðið í þrettánda sæti eftir að heilladís-
irnar yfirgáfu það á lokametrunum. Þess má geta að
Róbert Lagerman er landsliðseinvaldur. „Þetta mót fer
í reynslubankann fræga, og allir leikmenn eru betri
eftir þessa reynslu í Búdapest. Við mætum að ári til
Kaupmannahafnar með mun meiri reynslu og visku í
farteskinu, og þar getur allt gerst enda er Kaup-
mannahöfn hálfgerður heimavöllur okkar,“ segir Ró-
bert.
Daníel Már Sigurðsson og
Róbert Lagerman. Hvor þeirra
lyftir bikarnum eftirsótta að
loknu einvíginu í dag?
EITT ELSTA BORÐSPIL Í HEIMI
Kljást um Íslands-
meistaratitilinn í kotru
„Hvers vegna er þessi mynd af
Janis Pege kvikmyndaleikkonu
birt í blaðinu í dag?“ spurði Morg-
unblaðið miðvikudaginn 17. októ-
ber 1945.
„Ja, það er nú það,“ svaraði
blaðið sjálft. „Nú þegar stríðs-
frjettamyndirnar hætta að berast
þykir mönnum kannske gaman að
sjá eitthvað nýtt, svona til tilbreyt-
ingar og Janis er ekki verra en
hvað annað.“
Aldeilis ekki. Og gaman að
heyra hversu létt hefur verið yfir
mönnum á ritstjórn þessa blaðs
svona skömmu eftir hildarleikinn
mikla, heimsstyrjöldina síðari.
Mynd af þokkafullri kvikmynda-
stjörnu hefur án efa verið góð til-
breyting frá ítrekuðum myndum
af stríðsbröltinu.
Glöggir lesendur hafa ugglaust
áttað sig á því þegar en Morgun-
blaðið fer þarna rangt með ætt-
arnafn stjörnunnar, sem heitir
auðvitað Janis Paige, en hún var
að stíga sín fyrstu skref í skemmt-
anabransanum á þessum tíma.
Paige lék í sínum fyrstu myndum
árið 1944, Bathing Beauty og
Hollywood Canteen.
Paige lék mest í söngleikjum,
bæði á hvíta tjaldinu og sviði og
var að fram yfir aldamót. Hún kom
einnig við í sjónvarpi, m.a. í eigin
gamanþætti, It’s Always Jan, á
sjötta áratugnum. Paige fagnaði
93 ára afmæli í síðasta mánuði.
GAMLA FRÉTTIN
Hvers vegna er þessi
mynd í blaðinu?
Janis Paige fyrir sjötíu árum.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Magnús Harðarson
hagfræðingur
Páll Harðarson
forstjóri Kauphallarinnar
Kim Larsen
dægurlagasöngvariSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
GM 3200
GM 7700
GM 9900
Borðstofuborð