Morgunblaðið - 22.10.2015, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 2. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 248. tölublað 103. árgangur
FRUMKVÖÐL-
AR OG FJÁR-
FESTINGAR
HRÁEFNI OG
SPENNANDI
UPPSKRIFTIR
BÝÐUR
TENGINGU UM
ALLAN HEIM
JÓLABAKSTUR 56-67 VIÐSKIPTAMOGGINNNÝSKÖPUN 16 SÍÐUR
Glæsileg tilboð í allan dag
Skoðaðu dagskrána og tilboðin á smaralind.is
Miðnæturopnun
Eins og þeir sem meðvitaðir eru um hnattstöðu jarðar vita þá
er vetrardrunginn handan við hornið. En er á meðan er og
fjallasýnin frá Rauðavatni skartaði sínu fegursta í fallegu
haustveðri í gær. Engu var líkara er en að húsin í Norð-
lingaholti og Bláfjöllin spegluðu sig í síðasta skipti áður en
hryssingslegur veturinn markar sín spor með fylgjandi
hrukkum. Fjöllin eru í það minnsta komin í vetrarklæðnað,
reiðubúin í hvað sem er. Samkvæmt veðurspá er búist við
nokkru frosti um allt land á laugardag, fyrsta vetrardag.
Spegla sig fyrir veturinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ekki liðu átta
vikur frá því að
Arion banki
eignaðist Hótel
Ísland í skulda-
skilum undir lok
árs 2013, uns
bankinn hafði
selt hótelið nýj-
um eigendum
með rúmlega
hálfs milljarðs
hagnaði. Viðskiptin vöktu furðu
forsvarsmanna Hótels Sögu, sem
látið höfðu eignina af hendi í fyrr-
nefndum skuldaskilum, og í kjölfar
alvarlegra athugasemda af þeirra
hálfu var fyrri samningur tekinn
upp. Hótel Saga fékk mismuninn að
nokkru bættan eftir samnings-
umleitanir en bankinn hafði um
langt skeið staðið fast á því að virði
eignarinnar sem skipti um hendur
væri ekki meira en fyrsta sam-
komulagið kvað á um.
Fyrrverandi formaður Bænda-
samtakanna gagnrýnir bankann
harðlega fyrir framgöngu sína í
málinu. »ViðskiptaMogginn
Seldu Hótel Ísland
með 500 milljóna
hagnaði eftir 8 vikur
Hótel Ísland var í
eigu bænda.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Greiðslur frá Tryggingastofnun
hækkuðu mun meira á síðasta ári en
laun og tengd hlunnindi. Launin
hækkuðu um 6,1% en greiðslur
Tryggingastofnunar um 10,5%. Þró-
unin hefur verið í þessa átt síðustu
árin eins og sjá má á samantekt um
álagningu skatta á einstaklinga í ár,
vegna tekna á síðasta ári, sem birt er
í Tíund, fréttablaði Ríkisskattstjóra
sem kemur út á morgun.
„Það er athyglisvert að greiðslur
frá Tryggingastofnun hafa hækkað
um 27,2% að raunvirði frá árinu 2010
á sama tíma og laun hafa hækkað um
14,4%. Þá lækkuðu tryggingabætur
ekki í hruninu, ólíkt launum. Þær
hafa hækkað um 27,1% ef miðað er
við árið 2007 en launagreiðslur eru
enn 8,2% lægri en þær voru þá,“
skrifar Páll Kolbeins, rekstrarhag-
fræðingur hjá Ríkisskattstjóra.
Hann getur þess einnig að 53.619
manns hafi fengið skattskyldar
greiðslur frá Tryggingastofnun á
síðasta ári, 1.507 fleiri en árið áður.
Hann vekur athygli á því að þeim
sem fá greiðslur frá Tryggingastofn-
un hafi fjölgað um 8.815 frá 2010, eða
tæp 19,7%. Fjölgunin í þessum hópi
er margföld á við fjölgun framtelj-
enda. Þeir sem fengu greidd laun
voru hins vegar aðeins 6.679 fleiri ár-
ið 2014 en 2010 og hafði aðeins fjölg-
að um 3,8% á þessum tíma.
„Í ljósi þess að vinnandi fólk
stendur að mestu undir velferðinni í
landinu þá er áhugavert að laun hafa
aukist um 105,8 milljarða á sama
tíma og tryggingagreiðslur, skatt-
skyldar jafnt sem skattfrjálsar, juk-
ust um 16,1 milljarð.“ »
Bætur að aukast
meira en launin
Launin hækkuðu um 6,1% Greiðslur trygginga um 10,5%
MHagur landsmanna ... »6
Skattatölfræði
» Nú voru 271.807 ein-
staklingar í skattgrunnskrá,
3.356 fleiri en árið áður. Þeim
hefur fjölgað frá 2010 og hafa
aldrei verið fleiri en nú.
» Tekjur jukust mikið í þjóð-
félaginu árið 2014.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefst á morgun og stendur til sunnu-
dags. Búist er við á milli 1.100 og
1.200 fulltrúum til fundarins.
Samkvæmt samtölum við lands-
fundarfulltrúa virðast fæstir eiga
von á að um átakafund verði að
ræða, en þó búast menn við pólitísk-
um skylmingum að venju, t.d. um
skattamál, gjaldmiðilsmál og Evr-
ópusambandið.
Ólöfu Nordal er spáð góðri kosn-
ingu í varaformannsembættið.
Sömuleiðis er Bjarna Benediktssyni
spáð góðu formannskjöri.
Af samtölum við fulltrúa virðist
sem það sé skoðun margra lands-
fundarfulltrúa að Hanna Birna
Kristjánsdóttir, fyrrverandi innan-
ríkisráðherra og fráfarandi varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, sé á leið
út úr pólitík. Hanna Birna sagðist í
samtali við Morgunblaðið enga slíka
ákvörðun hafa tekið. »16
Ekki búist
við átökum
Spá Ólöfu Nordal
varaformennskunni