Morgunblaðið - 22.10.2015, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2015
JÓLAbakstur
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Framundan er uppáhaldsárstími
margra, aðventan og jólin, og er
hans beðið með mikilli eftirvænt-
ingu á mörgum heimilum. „Á með-
an sumir vilja geyma allan jóla-
undirbúning þangað til desember
gengur í garð geta aðrir ekki setið
á sér og byrja að hita upp fyrir
jólahátíðina í byrjun nóvember –
og sumir meira að segja fyrr,“
segir Gréta Björg Jakobsdóttir, á
markaðssviði Mjólkursamsölunnar.
„Þess vegna er það svo að á
heimasíðunni gottimatinn.is er nú
þegar heill hafsjór af fjölbreyttum
uppskriftum sem geta aðstoðað
áhugasama við undirbúning
jólanna og má þar finna úrval af
smákökum, jólakökum og öðru
jólalegu bakkelsi.“ Gréta bætir því
við að það geti verið skemmtileg
hefð að baka alltaf eina nýja smá-
kökusort fyrir hver jól, en taka þá
aðra út í staðinn til að enda ekki á
því að þurfa að baka tuttugu sort-
ir. „Smekkur fólks er misjafn en
smákökuflóran er endalaus á vefn-
um og gaman getur verið að prófa
eitthvað sem manni hefði kannski
ekki dottið í hug að láta á reyna.
Önnur skemmtileg hefð er að
bjóða alltaf upp á nýjan eftirrétt á
jólunum og það má alveg vera á
jóladag, annan í jólunum eða ein-
hvern tímann milli hátíða. Það er
nefnilega ekki nauðsynlegt að
koma öllu fyrir á aðfangadegi því
jólin standa nefnilega yfir í heila
þrettán daga og um að gera að
dreifa gleðinni.“ Þá bendir Gréta
réttilega á að vel mætti byrja nýja
hefð og bjóða góðum vinum í að-
ventukaffi og brydda þá upp á ein-
hverjum nýjungum fyrir gestina á
hverju ári.
Hér að neðan eru nokkrar góðar
hugmyndir að hnossgæti um hátíð-
arnar sem Gréta mælir með.
Hátíðareftirréttir
Skyrmús með bökuðum eplum,
pekanhnetu- og kanil krunsi
Fyrir 6-8 manns
Innihald
70 g smjör
5 msk. dökkur púðursykur
150 g tröllahafrar
100 g pekanhnetur grófsaxaðar
2 tsk. kanill
Skyrblanda
500 g skyr með bökuðum eplum
¼ l rjómi, þeyttur
½ tsk. kanill
Aðferð
Bræðið smjör á pönnu yfir með-
alháum hita ásamt púðursykri.
Grófsaxið pekanhnetur og setjið á
pönnuna áasamt tröllahöfrum og
kanil. Ristið á pönnunni í rúmar
15 mínútur. Hrærið stanslaust all-
an tímann til að koma í veg fyrir
að pekanhneturnar brenni við.
Setjið blönduna í skál og geymið
inni í ísskáp á meðan þið und-
irbúið skyrblönduna. Gott er þó að
geyma pekanhnetublönduna í ís-
skáp í 15-20 mínútur.
Þeytið rjóma og hrærið honum
saman við skyrið. Blandið kanil
saman við og hrærið þar til bland-
an verður mjúk og slétt. Takið
pekanhnetublönduna út úr ís-
skápnum. Setjið 2 msk. í botninn á
hverju glasi fyrir sig, sprautið
u.þ.b. 1-2 cm þykku lagi af skyr-
blöndu ofan á, setjið aftur 1-2 msk
af pekanhnetublöndunni, setjið svo
aðra umferð af skyri og endið á
því að skreyta toppinn með pek-
anhnetublöndunni. Geymið í kæli
þar til borið er fram. Þennan eft-
irrétt er best að njóta samdægurs
þar sem skyrið gerir pek-
anhnetublönduna mjúka. Best er
að hafa pekanhnetublönduna
stökka á móti skyrinu.
Piparmyntudraumur í
glasi með After eight
Fyrir 6-8 manns
Botn
16 stk. Oreo-kexkökur
Skyrblanda
500 g hreint skyr
¼ l rjómi, þeyttur
2½ tsk piparmyntu Stevia
Toppur
¼ l rjómi
After Eight súkkulaði
Aðferð
Setjið Oreo kexkökur í mat-
vinnsluvél og hakkið þar til þær
verða fínmalaðar. Setjið 1-2 msk
af kexinu í hvert glas fyrir sig.
Þeytið rjóma og blandið honum
saman við skyrið ásamt pip-
armyntu Steviunni. Hrærið þar til
blandan verður mjúk og slétt.
Sprautið skyrblöndunni í hvert
glas fyrir sig. Þeytið restina af
rjómanum og sprautið honum fal-
lega ofan í hvert glas. Skreytið
með heilu eða hálfu After eight
piparmyntusúkkulaði. Geymið í
kæli þar til borið er fram.
Jólasmákökur
Karamellufylltar smákökur
Magn úr uppskrift u.þ.b. 48 stk.
Innihald
320 g hveiti
70 g kakó
1 tsk. matarsódi
225 g sykur
200 g dökkur púðursykur
225 g smjör við stofuhita
2 stk. egg
2 tsk. vanilludropar
100 g H-berg hakkaðar heslihnetur
48 stk. Rólóbitar
50 g hvítt súkkulaði
smásmjör
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður.
Blandið saman hveiti, kakói og
matarsóda í skál og setjið til hlið-
ar. Blandið saman sykri, púð-
ursykri og smjöri og hrærið vel,
eða þangað til blandan verður ljós
og létt. Bætið eggjum og van-
illudropum saman við og hrærið
vel saman. Bætið síðan hveiti-
blöndunni saman við og hrærið
vel, setjið því næst 70 g hakkaðar
heslihnetur saman við og hrærið
þangað til þær hafa blandast vel
saman við deigið, restin af hesli-
Forskot á jólabaksturinn
Hugmyndir að allra handa hátíðarnammi Gaman að prófa
eitthvað nýtt um hver jól Smákökur, eftirréttir og sætabrauð
Jólanammi „Skemmtileg hefð að baka alltaf eina nýja smákökusort fyrir
hver jól,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir á markaðssviði MS.