Morgunblaðið - 25.11.2015, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2015
Ýmislegt
Teg 607 - mjúkir, notalegir í
stærðum 36-41 á kr. 3.650,-
Teg 819 - hlýir í stærðum 36-41 á
kr. 5.950,-
Teg 803 - sætur og með rennilás í
stærðum 36-41 á kr. 5.950,-
Teg 824 - gamli góði í stærðum
36-46 á kr. 4.685,-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
✝ SigurbergAustdal Krist-
jánsson fæddist á
Skatastöðum í
Austurdal í Skaga-
firði 3. maí 1943.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu
á Akureyri 16.
nóvember 2015.
Sigurberg var
sonur hjónanna
Kristjáns Austdal
Guðjónssonar, f. 7.6. 1919, d.
9.10. 1988, og Sólborgar Indi-
önu Bjarnadóttur, f. 28.11.
1923, d. 27.4. 2014.
Systkini Sigurbergs voru: 1)
Hreinn, f. 15.5. 1945, d. 21.5.
1945. 2) Kristján Hreinn, f. 7.6.
1947, maki Sigríður Jónsdóttir,
f. 9.3. 1930, d. 29.4. 2011. 3)
Guðjón Austdal, f. 22.2. 1951,
maki Guðrún Ágústa Árna-
Sigurðardóttir, f. 15.6. 1973.
Börn þeirra eru Fjóla Indiana
og Björn Austdal fædd 2008.
Synir Ingibjargar frá fyrra
sambandi eru Aron Smári Páls-
son, f. 1996, og Sindri Snær
Pálsson, f. 1998.
3) Steindór Búi, f. 21.3. 1983,
m. Sigrún Anna Pálsdóttir, f.
30.7. 1982. Þeirra börn eru
Bergey Jökla, f. 2012, og Sig-
urbergur Hreinn, f. 2014.
4) Marta Kristín, f. 10.2.
1984, m. Jón Runólfur Jónsson,
f. 20.2. 1983. Sonur þeirra er
Eiríkur Örn, f. 2013.
5) Guðmundur Árni, f. 8.9.
1989, m. Irma Guðvarðsdóttir,
f. 15.4. 1988.
Sigurberg ólst upp á Skata-
stöðum. Um tvítugt flutti hann í
Bústaði í Austurdal og stundaði
þar búskap alla sína starfsævi.
Hann greip í vinnu utan heim-
ilis, sérstaklega á yngri árum
og stundaði skeifnasmíði um
árabil samhliða búskapnum.
Útför Sigurbergs fer fram
frá Sauðárkrókskirkju í dag,
25. nóvember 2015, klukkan 11.
Jarðsett verður á Skatastöðum.
dóttir, f. 3.12.
1957.
4) Ingibjörg
Anna, f. 28.6. 1954,
maki Ágúst Braga-
son, f. 26.2. 1948.
5) Stefanía
Kristín, f. 26.11.
1955, maki Her-
mundur Ármanns-
son, f. 25.2. 1950.
6) Tómas Ólafur,
f. 30.1. 1959, maki
Hjördís Rakel Gunnarsdóttir, f.
1.10. 1960.
Eftirlifandi eiginkona Sigur-
bergs er Sigríður Hugrún
Björnsdóttir frá Borgargerði í
Skagafirði, f. 17.6. 1957.
Börn þeirra voru: 1) Kristján
Björn, f. 8.11. 1973, d. 30.5.
1986.
2) Sólberg Logi Sigurbergs-
son, f. 5.11. 1977, m. Ingibjörg
Í dag er borinn til grafar ást-
kær tengdafaðir minn, Sigur-
berg á Bústöðum. Hann var einn
af þeim mönnum sem fæddust
inn í gamla bændasamfélagið
fyrir miðja tuttugustu öldina
þegar afkoma fólks byggðist á
vinnu frá morgni til kvölds flesta
daga ársins. Hugtakið frí þekkt-
ist vart og ferðalög sem ekki
töldust nauðsyn voru sjaldan
farin. Þrátt fyrir breytingar á
þjóðfélaginu til þess sem við
þekkjum í dag, þar sem átta
tíma vinnudagur þykir eðlilegur
varð slíkt aldrei viðmið í huga
Sigurbergs.
Kynni mín af Sigurberg voru
mér mikils virði. Það er gæfa að
kynnast slíkum manni og á ég
margar ánægjulegar minningar
frá okkar samskiptum undanfar-
in ár.
Sigurberg var hæglátur í
framgöngu, ekki margmáll en
hlýr í viðmóti og hafði notalega
nærveru. Hann var ósérhlífinn
og fylginn sér, bæði í orði og
verki, og lét ekki stjórnast af
skyndihugmyndum. Hann var
fjölhæfur og gekk jafnt í störf
utandyra sem innan. Var hann
meðal annars iðinn við matar-
verkun og vinnslu.
Sigurberg fylgist vel með
málefnum samtímans, ekki síst
efnahags- og landbúnaðarmál-
um. Hann hafði sterkar skoðanir
á ýmsum málefnum en flíkaði
þeim ekki dags daglega. Dýra-
vinur var hann mikill og hænd-
ust dýr gjarnan að honum. Sig-
urberg var barngóður og sóttu
afabörnin í að vera nálægt, ekki
eingöngu vegna þess að hann
gaf þeim gjarnan eitthvað gott í
gogginn heldur ekki síður vegna
þess að hann hafði lag á að tala
við börn. Undir yfirveguðu og
oft á tíðum alvarlegu yfirbragði
Sigurbergs leyndist glettni og
húmor. Hann naut þess að vera í
góðra vina hópi og hafði gaman
af söng og gleðskap og lét ekki
sitt eftir liggja á dansgólfinu
þegar svo bar undir.
Sigurberg var fæddur og upp-
alinn í Austurdal í Skagafirði.
Þar átti hann flest sín ævispor
og þar verður hann borinn til
hinstu hvílu, á fæðingarstað sín-
um, Skatastöðum. Við fjölskyld-
an í Víðinesi 1 kveðjum í dag
föður, afa og tengdaföður með
söknuði og þakklæti. Við kjósum
að kveðja með ljóði Jóa frá
Stapa, sem ber heitið Dalurinn
minn fagri.
Dalurinn fagri í fjallanna þröng
fegurstu minningar geymir.
Til þín ég leita í ljóðum og söng
löngum mig um þig dreymir.
Fyrrum hér átti ég æskulétt spor
og undi í fegurstum draumi.
Sálina fangaði sólskin og vor
og söngur í lækjanna straumi.
Hér hlýddi ég forðum á fuglanna
klið
sem fagnandi lét mér í eyra.
Á hugljúfum stundum í fjallanna
frið
er fegurstu hljómana að heyra.
Breyst hefur myndin frá bernskunnar
tíð
bærinn minn forni í eyði.
Þó heyrist þar ennþá um sumarkvöld
síð
söngur er löngum ég þreyði.
Svo þegar endar mín ævinnar
stund
indælt er mótlæti að gleyma.
Þá vil ég sofna minn síðasta blund
við sönglist í dalnum heima.
(Höf. Jóhann P. Guðmundsson.)
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Elsku Lilli bróðir.
Það var frekar fljótt sem þú
kvaddir okkur. Þetta var ekki al-
veg inni í myndinni þó að heilsan
væri ekki upp á það besta.
Margar ljúfar og góðar minn-
ingar skjóta upp kollinum og
þær geymum við í hjörtum okk-
ar. Góða ferð inn í ljóssins heim
og hafðu þökk fyrir allt og allt.
Nú ertu horfinn í himnanna borg
og hlýðir á englanna tal.
Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg
í sólbjörtum himnanna sal.
Þeim öllum sem trúa og treysta á
Krist
þar tilbúið föðurland er.
Þar ástvinir mætast í unaðarvist
um eilífð, ó, Jesú, hjá þér.
(Ingibjörg Jónsdóttir.)
Vottum Siggu og fjölskyldu,
okkar dýpstu samúð. Minningin
lifir um góðan mann.
Þín systkini,
Kristján, Guðjón,
Anna, Stefanía, Tómas
og fjölskyldur þeirra.
Elsku Lilli frændi.
Hér sit ég og minningarnar
þjóta í gegnum hugann.
Það að þú sért farinn finnst
mér sárt. Þú hefur alltaf átt sér-
stakan stað í hjarta mínu.
Tengslin fóru því miður
minnkandi eftir því sem ég varð
eldri og flutti frá Króknum. Ég
er mjög þakklát fyrir að hafa
stoppað í kaffi hjá ykkur í sumar
og setið í stutta stund og talað
um breytta tíma og einnig um
„gamla“ tímann.
Það var æðislegt að koma til
ykkar í sveitina þegar ég var
barn. Oftast fékk maður far með
þér fram eftir á Lödunni þegar
þú komst á Krókinn til að út-
rétta. Þú þurftir svo að stoppa í
Varmahlíð á heimleiðinni til að
stökkva þar inn og kaupa tögg-
ur, súkkulaði eða brjóstsykur.
Þessar töggur eiga alltaf eftir að
minna mig á þig.
Að komast í fjárhúsin finnst
mér mikil forréttindi fyrir börn
og mér fannst fátt skemmtilegra
en að fara í fjárhúsin bæði nið-
urfrá og suðurfrá. Ég þakka það
oft enn í dag að hafa haft tæki-
færi sem barn að vera í sveit.
Hvort sem það var yfir helgi eða
lengri tíma. Veturinn 1995 var
verkfall í skólanum og við tvíbb-
arnir fengum að koma til ykkar.
Það var mikill snjór þennan
veturinn og við tvíbbarnir,
Marta og Búi lögðum undir okk-
ur stórt svæði sunnan við lækinn
og bjuggum þar til heilu snjó-
vegina og þorpin úr litlum gröf-
um, traktorum og vörubílum.
Við fórum út í birtingu og Sigga
kallaði á okkur inn í kvöldmat.
Þá voru augabrúnirnar á okkur
einn klaki. Við höfðum engan
tíma til að vera inni að leika þeg-
ar allur þessi snjór beið okkar
fyrir utan.
Sumrin voru ekki síðri í sveit-
inni. Heyskapurinn stendur allt-
af upp úr. Öll tún stútfull af
böggum sem hægt var að hnoð-
ast með alveg endalaust. Það
voru líka ófáar hallirnar sem
maður gat byggt úr böggunum.
Sumar byggingarnar okkar voru
skólar, aðrar bara risa hús með
sér sundlaug, allt sett saman úr
böggum. Þetta mátti alveg því
það voru alltaf búið til fullt af
baggahrúgum hingað og þangað
á túnunum til að einfalda bíl-
stjóranum á traktornum lífið
með því að stoppa bara á nokkr-
um stöðum og láta henda bögg-
unum upp á vagninn. Mesta
sportið var svo að fá að sitja of-
an á staflanum á leiðinni í hlöð-
una.
Svona gæti ég lengi haldið
áfram með minningarnar en ég
geymi þær í hjarta mínu.
Elsku frændi, þín verður sárt
saknað og ég vildi að börnin mín
hefðu fengið að kynnast þér eins
og ég sjálf gerði.
Elsku Sigga, Sólberg, Búi,
Marta, Gummi og fjölskyldur.
Ég bið guð um að gefa ykkur
styrk á þessum erfiðu tímum.
Guð geymi þig, elsku frændi.
Þín frænka,
Sólrún Harpa.
Sigurberg Austdal
Kristjánsson
HINSTA KVEÐJA
Afi minn var skemmti-
legur og hann gaf okkur
alltaf nammi þegar við
komum í heimsókn til hans.
Takk fyrir samveruna.
Fjóla Indiana
Sólbergsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR BIRNU
ÞORSTEINSDÓTTUR,
Skildinganesi 58.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heimahlynningar og líknardeildar LHS fyrir
einstakt viðmót og umönnun.
.
Gunnar I. Hafsteinsson,
Sigrún Magnea Gunnarsdóttir, Benedikt Magnússon,
Bergljót Soffía, Inga Birna, Freyja Dís og Lóa Mjöll.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við fráfall elskulegrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU SIGURJÓNSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hlévangi,
áður Kirkjuvegi 1, Keflavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Hlévangs fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Fyrir hönd fjölskyldu okkar,
.
Jónína Guðmundsdóttir og Oddur Sæmundsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINGERÐUR SÓLVEIG
JÓNSDÓTTIR,
Grænavatni,
Mývatnssveit,
sem lést fimmtudaginn 12. nóvember,
verður jarðsungin frá Skútustaðakirkju
laugardaginn 28. nóvember klukkan 14.
.
Jónas Helgason, Guðrún Bjarnadóttir,
Haraldur Helgason, Freyja Kristín Leifsdóttir,
Þórður Helgason, Helga Þyri Bragadóttir,
Árni Hrólfur Helgason, Kristín List Malmberg,
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÞÓRA HARALDSDÓTTIR,
Vesturbergi 52,
er lést 14. nóvember síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 13.
.
Óskar Ármannsson,
Haraldur Bjarni Óskarsson,
Harpa Óskarsdóttir, Jens Pétur Kjartansson,
Óskar Ingi Jensson,
Elías Bjarni Jensson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI EINARSSON,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
20. nóvember.
Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju
föstudaginn 27. nóvember klukkan 14.
.
Ursula Einarsson,
Líana Hass, Udo Hass,
Ingibjörg Guðnadóttir, Ármann Agnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
föðursystur
KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR,
Dalbæ,
áður til heimils að Bjarkarbraut 5,
Dalvík.
Starfsfólki á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík,
eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða
umönnun og veitta aðstoð.
.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir,
Kristín Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Gunnarsdóttir.