Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 12
wicur
JÓLABLAÐ 1988
S. Björgvinsson hf.:
Verslun og
viðgerðir
S. Björgvinsson er nýtt fyr-
irtæki, sem opnað hefur versl-
un við Hafnargötu í Keflavík.
Eigendur eru þeir Steinar
Björgvinsson og Sigurður
Björgvinsson og verða þeir
með viðgerðir og söiu á tækj-
um fyrir skrifstofur og fyrir-
tæki. Eru þeir félagar með um-
boð fyrir Sharp og hafa m.a. til
sölu búðarkassa, ljósritunar-
vélar, faxtæki, sírrkerfi og
Steinar Björgvinsson og Sigurður Björgvinsson. Ljósm.: hbb.
einnig eru þeir í S. Björgvins- I vogum íýrir fiskvinnslufyrir-
son hf. með viðgerðir á tölvu- | tæki á Suðurnesjum.
Hefurðu velt því fyrir þér hverjir eru
KOSITR
ÓKOSTIR
þess að versla hér á Suðurnesjum?
Kostirnir er þessir:
1. Hér eru fjölmargar verslanir með nánast allan þann varning sem við
þurfum.
2. Þú sparar þér ferðakostnað. Reykjanesbrautin hefur hingað til ekki
heldur verið talin mjög „skemmtileg14.
3. Verð í verslunum á Suðurnesjum er fyllilega samkeppnisfært við það sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu. Verðkannanir eru þar órækasta vitnið.
4. Aukin verslun eykur veltuhraða og eflir verslun hér og gerir hana þar
með færari að veita góða þjónustu.
5. Þú styður ekki aðeins við bak verslananna sjálfra, heldur og alls bæjar/
sveitarfélagsins - þar með talið þitt eigið - þar sem aukin velta færir því
meiri tekjur af versluninni. Þetta kemur þérogokkur öllum tilgóða,t.d.
í framkvæmdum hjá bæjar/sveitarfélaginu.
6. Vöruúrval er gott, í langflestum tilfellum ekki síðra en annars staðar. Ef
varan er ekki til staðar er hægt að útvega hana með stuttum fyrirvara.
7. Þín viðskipti halda uppi atvinnu. Þú velur hvort sú vinna er unnin í
heimahéraði eða annars staðar.
Okostirnir eru:
í þeirri hörðu samkeppni sem nú er í allri verslun, t.d. á höfuðborgarsvæð-
inu, er gripið til margvíslegra gylliboða. Hugleiddu nú hvers virði það
er að hafa góða verslunarþjónustu á Suðurnesjum og hvaða áhrif þaðhefur
á búsetu hérna, ef þessi þjónusta flyst í auknum mæli til annarra
byggðarlaga.
Lesandi góður. Við ætlum að láta þér eftir, að tína til þá ókosti sem þér
finnst samfara því að versla hér á Suðurnesjum. Ef þú telur þig geta fengið
betri vöru, verð og þjónustu utan bæjarmarkanna, veltu því þá fyrir þér
hvort ferð þangað sé þess virði.
VERSLUM HEIMA
Bæjaríulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í Keflavík:
Harðorð bókun
f HK-málinu
Eftirfarandi bókun lögðu þau
Garðar Oddgeirsson og Stella
Björk Baldvinsdóttir, bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins, fram á
fundi bæjarstjórnar Keflavíkur
síðasta þriðjudag:
„Undanfarna mánuði hafa mál-
efni HK mjög verið til umfjöllun-
ar. Menn hafa sameinast um að-
gerðir tii að reyna að halda skipum
félagsins i Keflavík. Má þar til
nefna alla þingmenn svæðisins,
sveitastjórnamenn og miklu fleiri
aðila.
Flestum sem nálægt þessu máli
hafa komið hefur litist mjög illa á
þann kost sem stjórn HK virðist
hafa einblínt á, það er skipti á tog-
urum HK, Aðalvík og Bergvík, í
staðinn fyrir Drangey sem er svo-
kallaður frystitogari.
Nú í síðustu viku var iagt fram
milliuppgjör HK (fyrir fyrstu 8
mánuði 1988). Sýnir milliuppgjör-
ið aðstaða HK er miklu mun verri
en áður var talið. Það varð til þess
að útgerðarfélagið Eldey hf. féll frá
tilboði sínu i hlut SÍS í H.K.
Því hafa aftur hafíst áætlanir
stjórnar HK um áðurnefnd skipa-
skipti við Sauðkræklinga.
Við bæjarfulitrúar Sjálfstæðis-
flokksins bendum á ábyrgðstjórn-
ar HK og sérstaklega ábyrgð full-
trúa Keflavíkurbæjar í stjórn HK.
Einnig bendum við á ábyrgð bæj-
arstjóra sem eftiriitsmanns eigna
bæjarsjóðs.
Við krefjumst þess aðhagsmun-
ir HK verði látnir sitja í fyrirrúmi.
Þetta teljum við að best verði
tryggt á eftirfarandi hátt.
1. Að togarar félagsins verði
boðnir til sölu á frjálsum markaði.
Þannig og á þann eina hátt er
tryggt að HK fái besta mögulega
verð fyrir skipin. Einnig gefur
þetta aðilum á Suðurnesjum
möguleika að bjóða í togarana.
2. Verði um að ræða skipaskipti
þau sem áður hefur verið rætt um,
þá bendum við á að þau hafa verið
tortryggð af fjölda manna ogsum-
ir taiið að um undanskot eigna úr
fallandi fyrirtæki sé að ræða.
Verði þessi kostur valinn þá
ítrekum við áðurnefndar ábyrgðir
stjórnar HK, sem ber að hafa hag
HK ávallt nr. 1. Sérstaklega bend-
um við á ábyrgð fulltrúa bæjar-
sjóðs í stjórn HK svo og bæjar-
stjóra."
Minni hlutinn í Keflavík:
Vill Helguvíkina
utan Landshafn-
arsamkomu-
lagsins
Bæjarfulltrúar minnihluta
bæjarstjórnar Keflavíkur
lögðu fram eftirfarandi tillögu
á fundi stjórnarinnar í síðustu
viku, er til umræðu var sam-
komulag Keflavíkur og Njarð-
víkur um rekstur Landshafn-
arinnar:
„Það er skoðun okkar að
þetta samkomulag eigi ein-
ungis að fjalla um eignir og
skuldbindingar Landshafnar
Keflavík-Njarðvík, enda eðli-
legt að bæjarfélögin reki þær
hafnir sameiginlega.
Við erum þvi hinsvegar and-
víg að samkomulag náist yftr
öll önnur hafnarmannvirki
innan lögsagnarumdæmis
bæjarfélaganna þ.m.t. þeim
sem seinna kunna að verða
byggð, eins og segir í 1. m.gr.
samkomulagsins. Við teljum
óþarft og ótímabært að flækja
hugsanlegar framkvæmdir í
Helguvík inn í þetta sam-
komulag og greiðum þ.a.l.
ekki atkvæði að óbreyttu.“
Undir þetta skrifuðu þau
Magnús Haraldsson, Hjördís
Árnadóttir, Garðar Oddgeirs-
son og Stella Björk Baldvins-
dóttir.
Var tillaga þessi felld með 5
atkvæðum gegn 4.
Frístund í Hólmgarði:
Vídeoupptökuvél
á 300 krónur
Nú stendur yfir happdrætti
á vegum Frístundar í Hólm-
garði. Að sögn eins eigenda
Frístundar, Ástþórs B. Sig-
urðssonar, þá gengur happ-
drættið þannig fyrir sig, að í
hvert skipti sem tekin er
myndbandsspóla, tekur við-
komandi viðskiptavinur þátt í
happdrættinu. Á gamlársdag
verða dregin út ein verðlaun úr
leigunótum, og mun hinn
heppni viðskiptavinur hljóta
Orion videóupptökuvél í vinn-
ing. Eru viðskiptavinir Frí-
stundar í Hólmgarði því beðn-
ir að geyma leigunóturnar
fram yfir áramót, þegar ljóst
verður hvaða númer hefur
hlotið vinninginn.