Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 23
MÍKUK {UUU „Þetta var náttúrulega mik- ið stærra en nokkuð mót sem ég hef keppt á og mikið harð- ari keppni. Þarna kepptiég við menn sem voru alveg eins og ég, þ.e. vantaði á hendi. Það var nákvæm flokkun á þátt- takendum, þannig að allir væru í eins styrkleikaflokki. JOLABLAÐ1988 Geir með verðlaunapening þann er hann hlaut fyrir 100 m bringusund á OL. fatlaðra í Seoul í sumar. Ljósmyndir: hbb. Ég var nokkuð trekktur á taugum fyrir bringusundið, því ég vissi að þetta ætti eftir að verða hörkukeppni." -Hvað var gert í frítímum á leikunum? „Það var lítið um frítíma, ég rétt svo hafði tíma til þess að skrifa Siggu systur í Éþíópíu póstkort. Það var farið í skoð- unarferðir undir lok heim- sóknarinnar til Seoul. Það var ódýrt að versla þarna og ég prúttaði á fullu.“ -Hvernig finnst þér áhugi fatlaðra Suðurnesjamanna vera fyrir íþróttum? „Hann er ekki alveg nógu góður. Við reyndum að stofna íþróttafélag fatlaðra en það datt upp fyrir vegna lélegrar þátttöku. Það er vonandi að fatlaðir drífi sig nú í íþróttirn- ar, því þeir hafa gott af þessu. Það þarf ekki endilega að keppa, heldur bara að hreyfa sig.“ -Hefur sundíþróttin haft mikil áhrif á þig? „Sundið hefur bæði haft áhrif á líkama og sál, mikið líkamlega. Að ráðleggingu lækna, þá átti ég að fara í end- urhæfingu hjá Þroskahjálp, en sú rálegging hefur týnst í rusli eftir að ég byrjaði að æfa sund.“ -Nú veit ég að þú hefur fleiri áhugamál en sundíþróttina? „Já, ég og Sigga systir erum með ljósmyndadellu. Hún smitaði mig. Við höfum komið okkur upp myrkraherbergi, þar sem við framköllum okkar myndir sjálf.“ -Hvernig er að vinna með myndavélina, þegar þú hefur aðeins aðra hendina til þess að vinna með? „Ég er með rafeindamynda- vél, fékk mér handfang af stóru flassi sem er skrúfað undir myndavélina og tengdi afsmellarann yfir í handfang- ið. Ég tek töluvert af myndum í svart/hvítu og kaupi 30 metra filmur, sem ég þræði síð- an sjálfur. Ég hef því miður haft lítinn tíma í þetta undan- farið en ég ætla að stúdera þetta í jólafríinu mínu frá skól- anum. Ég er kominn með tæk- in sem til þarf í þessa dellu og þá er bara að læra af reynsl- unni.“ -Þú ert einnig með tölvu- dellu? „Já, ég hef mikinn áhuga á tölvum og er að læra í sam- bandi við tölvur og fer örugg- lega út í kerfisfræði. Ljós- myndunin er bara áhugamál, ég fer ekki að leggja hana fyrir mig. Ég byrjaði á því að tölvu- væða fyrirtækið hjá pabba og sé einnig um gerð reikninga fyrir hann. Dellurnar eru að heltaka mig.“ -Svo við snúum okkur aftur að sundinu. Þú starfar mikið með sunddeildinni í Njarðvík og það er mikið að gera hjá ykkur þessa dagana? „Ég keppi mikið með UMFN, hvort sem ermeðfötl- uðum eða ófötluðum. Við er- um líka að fara af stað með fjáraflanir vegna æfingabúða sem við erum að fara í, jafnvel erlendis. Eins og þú veist, þá er aðstaðan til æfinga í Njarðvík ekki góð og þess vegna æfum við yfirleitt á Keflavíkurflug- velli.“ -Eitthvað að lokum? „Ég vil bara koma á fram- færi þakklæti til þjálfara míns. Friðriks Ólafssonar. Hann er að hætta þjálfun hjá okkur núna. Hann hefur verið mér góður. Ég vona að það eigi eft- ir að ganga eins vel hjá Eðvarði Þór. Þá ætla ég að fá að lauma kveðju til Siggu systur í Eþí- ópíu, því ég veit að hún fær blaðið sent,“ sagði Geir Sverr- isson sundkappi að lokum. ÁLAFOSSBÚDIN I0AVÖLLUM 14b - KEFLAVfK - SÍMI 12791 Útivistar- og skíða- fatnaður \n/fí bizerto sport POSTULfN, M.A. matar- og kaffistell frá ISLENSKAR ULLARVÖRUR. M.A. TEPPI. PEYSUR, VETTLINGAR OG HÚFUR. KOPARVÖRURí MIKLU ÚRVALi M.A. Gamlir munir 3-500 ára. 0PNUNARTILB0Ð: Leðurjakkar frá kr. 13.600 T0PP-GÆÐAVARA 0PIÐ ALLA VIRKA DAGA 9-18 0G LAUGARDAGA I DESEMBER

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.