Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 35
Huxley: „Það var kannski
mér að kenna og ég vildi fara
lengra.“
Vilborg: „Hann vildi fara
alla leið þangað sem vatns-
tankurinn er en mér fannst það
svo agalega langt að þurfa
að sækja mjólk alja leið niður
að Hafnargötu. Ég var með
margt í heimili og þurfti því að
kaupa fimm potta af mjólk á
dag og þurfti að burðast með
það á brúsa. Þá var engin
heimsendingarþjónusta og
mér óaði alveg við því.“
Gott útsýni
Huxley: „Ég vildi hafa gott
útsýni. Hafa fjallasýn."
Vilborg: „Hér var geysilega
fallegt útsýni, sáum við alveg
yfir sjóinn. Hér höfðum við
það reglulega yndislegt, með
fuglasöng og öðru þvíum-
líku.“
-Voruð þið ekki nokkuð lengi
fjarri byggðarkjarnanum?
‘ „Það var engin byggð þá
ofan Hringbrautar," svaraði
Huxley. „Nema Benni (Bene-
dikt Jónsson) og Hreggviður,
þeir byggðu um svipað leyti og
við,“ bætti Vilborg við og
sagði síðan: „Fólki blöskraði
alveg að við skyldum byggja
hérna og hélt að við værum
ekki með öllum mjalla (og hún
hlær við), sem kannski var
,von.“
Huxley: „Þar sem ég varal-
inn upp í Þjórsártúni hafði ég
mikið og gott útsýni og falleg-
an fjallahring. Því vildi ég
komast eitthvert, þar sem ég
gæti séð til fjalla.“
„A HverFisgötunni sá mað-
ur yfir sjóinn, sólsetrið í norðri
og er mér það minnisstætt,"
sagði Vilborg.
-Hvarf þetta útsýni þegar
byggt var hér allt í kringum
ykkur?
Þessu svöruðu þau á þann
veg að nú sé það mikið horfið
vegna bygginga og trjágróðurs
sem þau settu niður til skjóls
fyrir norðanáttinni.
Innri-Njarðvík
-Vilborg, nú er Huxley búinn
að rifja upp hluta af sinni ævi-
sögu. Hvað með þig á þessum
tíma, varst þú húsmóðir?
„Já, ég var húsmóðir með
4-6 í heimili.“
Huxley: „Við keyptum
Fiskimjölsverksmiðjuna í
Innri-Njarðvík fjórir saman,
ég, Hreggviður, Margeir Jóns-
son og Jón Karlsson, en verk-
smiðju þessa keyptum við af
Jóni Jónssyni. Lok þeirrar
verksmiðju var að hún brann
1969. Þá var Vilborg bókhald-
ari þar.“
-Hófsl vinna þín utan heimil-
is, Vilborg, sem bókhaldari í
Innri-Njarðvík?
„Ég hafði verið smávegis í
launaútreikningi í Fiskiðjunni
Viðtal: Emil Páll.
Myndir: epj. og hbb.
með Friðriki Þorsteinssyni og
sá síðan um bókhaldið í Innri-
Njarðvík."
Kvenfélagið
-Nú hefur þú tekið mikinn
þátt í félagsstarfi, Vilborg, er
það ekki?
„Jú, hjá kvenfélaginu aðal-
lega. Þar var ég ein af stofn-
endunum fyrir einum 45 árum
og gegndi stöðu gjaldkera frá
upphafi og þar til í hitteðfyrra.
Var ég í bygginganefnd Tjarn-
arlundar ásamt þeim Vigdísi
Jakobsdóttur, Steinunni Þor-
steinsdóttur, Guðnýju Ásberg
og Guðnýju Árnadóttur. Var
ég formaður nefndarinnar og
því hvíldi heilmikið á mér. Átt-
um við síðan húsið þar til bær-
inn keypti það af okkur.“
-Hafðir þú afskipti af fleiri
félögum?
„Ekki svona mikið. Þó hef
ég verið bæði í Sjálfstæðis-
kvennafélaginu og Slysa-
varnafélaginu sem endurskoð-
andi og þess háttar. En mitt
aðalstarf var þarna í kvenfél-
aginu.“
Vinnuveitendafélagið
-Huxley, varst þú ekki einnig
í ýmsum félagsmálum?
„Ég var í stjórn Sölumið-
stöðvarinnar sem einn af
stofnendum hennar og einnig
nokkuð lengi í stjórn Skreiðar-
samlagsins. Þettaeru nú helstu
félagsmálin mín.“
„Þú varst í fleiri félögum"
skaut Vilborg inn í.
„Jú, félagi í Faxa, Rotary-
félagi Keflavíkur, form. Guð-
spekifélagsins Heiðarblómið
og í stjórn Vinnuveitendafél-
ags Suðurnesja."
-Sást þú ekki alveg um rekst-
ur þess félags hér á þessum ár-
um sem Vinnuveitendafélagið
var beinn samningsaðili við
verkalýðsfélögin?
„Jú, þá var það beinn samn-
ingsaðili en nú fer þetta allt í
gegnum Reykjavík.“
-Var þetta þá ekki heilmikið
starf á þessum árum?
Jú á tímabilum, þegar
samningar voru lausir. Þá fór
oft mikill tími í þetta, bæði fyr-
ir stjórn og formann.“
Vilborg Amundadóttir og Huxley Olafsson á skrifstofu Kjalar sf. við Víkurbraut í Keflavík.
JÓLABLAÐ1988
Við óskum öllum
Suðurnesj amönnum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári.
SAMBAND
SVEITARFÉLAGA
A SUÐURNESJUM
Líf eyrissj óður
verkalýðsfélaga
á Suðurnesjum
Sendum sjóðsfélögum og
öðrum Suðurnesjamönnum
hugheilar jóla- og
nýársóskir.
Þökkum samstarfið á árinu.