Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Síða 36

Víkurfréttir - 15.12.1988, Síða 36
JÓLABLAÐ1988 -Huxley, þú varsl búinn að rífja upp tímann fram að verk- smiðjunni í Innri-Njarðvík. Hvað tók þar við? „Eftir brunann 1969 var sú verksmiðja lögð niður og Fisk- iðjan keypti það sem nýtilegt var. Tók ég þá að mér Utvegs- mannafélagið og var með það í tvö ár, að ég fór að fikta við verslun. Kjölur -Þá erum við komin að Kili? „Ég var með honum þarna í Utvegsmannafélaginu" svar- aði Vilborg og Huxley bætti við „hún sá um bókhaldið og var gjaldkeri hvar sem hún hefur verið.“ -Upp úr þessu stofnið þið Kjöl og hefjið innflutning og smásölu. Var það aða/lega á smíðavið? „Egill Þorsteinsson var með okkurí þessufyrstuárin ogvið fluttum inn nánast hvað sem við gátum náð í,“ svaraði Huxley -Er Kjölur í dag á tveimur stöðum? Vilborg: „Við erum búin að vera það í nokkur ár, hér og í Reykjavík. Vorum þar fyrst á Vesturgötunni, síðan í Borgar- túni og nú að Hverfisgötu 37.“ -Hefur Ólafur sonur ykkar séð unt Reykjavíkurdeildina? Þessu svarar Vilborg á þennan máta: „Olafur hefur verið með okkur lengi. Hann kom inn í þetta smátt og smátt. Hann er einnig með annað fyrirtæki sem hann rek- ur sjálfur og heitir það Vang- ur.“ -Hver er munurinn á Kili I Keflavík og Kili í Reykjavík? Hér urðu þau bæði fyrir svör- um. „Þetta er alveg sama fyrirtækið. Við förum nú bráð- um að draga okkur úr þessu og hætta.“ -Er það? „Já, við stefnum að því,“ svarar Vilborg. „Verði maður lengi í svona fyrirtæki gæti maður orðið dragbítur á það. Það gæti orðið gamalt, bara vegna þess að maður er orðinn gamall," bætir Huxley við. Vilborg: ,,Það gæti orðið verra fyrir þá ungu að vera með þessa gömlu í eftirdragi." Huxley: „Þetta verður allt að endurnýjast." Erlendar bréfaskriftir -Vilborg, ef ég man rétt þá sást þú um allar erlendar bréfa- skriftir? „Jú. en Huxley lagði þetta nú í hendurnar á mér.“ „Hún er svo mikill mála- maður,“ bætti Huxley inn í umræðuna. Nú rifjaði blaðamaður upp fyrir þeim hvernig skrifstofan hjá Kili hefur verið í gegnum árin. Vilborg með erlendu bréfasamböndin á sinni könnu þrátt fyrir háan aldur; þá var Ólafur að vísu ekki kominn inn í fyrirtækið. Skrifstofan á Víkurbrautinni er enn í sama horfi og í upphafi, engar tölv- ur eða annað sem menn telja nú frumskilyrði fyrir skrifstof- VERKTAKAR senda starfsmönnum sínum, viðskiptamönnum og öðrum Suðurnesj amönnum bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár, með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. V erslunarbanki f Islands hf. Útibú - Keflavík óskar viðskiptavinum sínum og öðrum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsœls komandi árs, og þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða. ur. í framhaldi af þessu kom spurningin, hvernig þetta gæti þó gengið? Fyrir svörum varð fyrst Huxley: „Tölvurnar eru ekki nema fyrir stór fyrirtæki. Varð- andi tungumálin, þá er Vilborg góð í þeim. Alveg fullkomin í ensku, þýsku og noiðurlanda- málunum og slarkfær í frönsku". -Vilborg, kom þessi tungu- málakunnálta á menntaskóla- árunum? „Já, ég lærði þetta í mennta- skólanum. Þar fékk ég ágætis kennslu. Býr maður alltaf af því hvað við höfðum góðan kennara þar. Síðan tók ég frönskunámskeið í Reykjavík og aftur hér síðar í öldunga- deildinni. Hefði þátttakan ver- ið meiri hérna hefði ég haldið áfram og væri þar sennilega ennþá." -Þú ert þá ekkert á því að hœtta að læra? „Nei, alls ekki.“ -Ætlið þið nú að setjast í helgan stein? Vilborg var fljót að svara því neitandi og Huxley sam- sinnti því og sagði að þá væri maður fljótur að fara. „Ég er viss um að hann myndi trénast allur upp“ sagði Vilborg þá. -Miðað við það sem égþekki til ykkar, þá farið þið ekki nú að setjast niður og horfa fram- an í hvort annað eftir svona at- hafnasama œvi? Svaraði hún strax að þau yrðu að fara í eitthvað. „Ann- að væri sama og uppgjöf" sagði liann. Síðan sagði Vil- borg: „Hitt er svo annað mál að það væri hægt að draga úr ýmsu og hafa meiri fristundir til aðgeraþaðsem manni lang- ar til. Ég tel mig ekki svo gamla að ég geti ekki farið út í ýmislegt annað s.s. ýmiskonar nám, sem gefur lífinu gildi og einhver áhugamál. Tíminn flýgur áfram ef maður hefur nóg að gera.“ Innflutningur -I hverju er innflutningurinn hjá Kili aðallega fólginn? „Eldhústækjum, eldhúsinn- réttingum, klæðningum, raf- magnsofnum, hitakútum og mörgu fleiru,“ svaraði Huxl- ey. -Seljið þið innflutninginn beint til neytenda í smásölu eða er honum dreift til annarra verslunarfy rirtœkja? „Það er hvorutveggja“ svar- aði Huxley. Vilborg bætti við að ýmsir aðilar keyptu af þeim til endursölu, s.s. rafvirkjar, kaupmenn, kaupfélög ogýms- ir aðrir út um allt land. Hafa vörur þessar fengið mjög góða dóma. Hálfgerður bakkgír -Hvernig er að vera kaup- maður I dag? Er það verra en þegar þið voruð að byrja? Þessu svarar Huxley á þenn- an hátt: „Það er eiginlega ekki hægt að vera kaupmaður í dag. Það er allt orðið eitthvað á \)tmr< skjön.“ -Verðið þið þá vör við ein- hvern samdrátt núna? spyr ég hann. „Feikimikill samdráttur. Það er eins og allir séu komnir í hálfgerðan bakkgír. Fólkið er orðið hrætt.“ -Nú eruð þið búin að stunda þennan rekstur all lengi. Hefur komið svona sltemur kafli áður? Vilborg: „Einhvern veginn finnst manni þetta vera það versta sem komið hefur.“ -Ef við horfum tilframtíðar- innar, hvað haldið þið að við eigum eftir að vera lengi íþessu eða haldið þið að við vinnum okkur fljótlega upp úr þessu? Huxley: „Ég gæti vel trú- að að þetta stæði svona í tvö eða þrjú ár. Miða ég þar við fiskinn. Hann verður að auk- ast og við verðum að fá þau mál í lag. -Hvað finnst ykkur um þenn- an hugsunarhátt sem ríkjandi er gagnvart sjávarútvegi? Sumum finnst nánast eins og þetta sé tómur óþarfi að stunda sjávar- útveg. Hajftð þið ekki heyrt það? Þessu svarar Huxley á þenn- an hátt: „Þegar vel gengur líta margir á sjávarútveginn sem aukaatriði, en þegar herðir að snúa menn spilunum við.“ Vilborg bætir við: „Við verðum nú að vera bjartsýn. Það hlýtur að rofa til aftur, en það tekur sinn tíma.“ Huxley: „Þetta verðurerfítt, einkanlega ef ríkisstjórnin get- ur ekki komið sér saman um aðgerðir. Það verður að hafa stjórn á heimilinu, hvort sem um er að ræða ríkisstjórnar- heimilið eða eitthvert annað. Ráðamenn hafa verið of blind- ir fyrir vandanum og ekki séð hann í tíma.“ Keflvíkingar -Lítið þið á ykkur sem Kefl- víkinga? „Ég hefalltaf kunnað vel við mig hérna, þó svo að mínir nánustu séu í Reykjavík og hefði því getað breytt til. Um það hef ég ekki kært mig. Hér hef ég alltaf kunnað vel við mig en undir niðri er ég alltaf Reykvíkingur" svaraði Vilborg. Huxley svaraði þessu, að hann liti alltaf á sig sem Kefl- víking. Ferðalög „Við erum búin að ferðast mikið um heiminn eins og t.d. þegar hann varð fimmtugur. Þá fórum við til Indlands og Tíbet. Það var alveg stórkost- legt en ferðalagið þar stóð yfir í mánuð og síðan dvöldum við í annan mánuð í Evrópu. Strax 1934 fórum við um Evrópu, Þýskaland, Tékkóslóvakíu, Frakkland og víðar. Við höf- um alltaf haft mjög gaman af því að ferðast og fræðast, enda afskaplega lærdómsríkt og gefur manni mikið“ var svar Vilborgar við lokaspurning- unni sem hljóðaði á þá leið, hvort þau hefðu ferðast mikið. Hér skaut Huxley því inn í að „það er ánægjulegt og fróð- legt að fara til landa, sem mað- ur þekkir ekki, ferðast þar um og kynnast löndum og þjóð- um.“ Vilborg tók þarna upp þráðinn og bætti um betur: „Við höfum engan áhuga á að fara til sólarlanda og liggja í sól.“

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.