Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Síða 57

Víkurfréttir - 15.12.1988, Síða 57
\>íKun juiUt JÓLABLAÐ1988 Sameining VSFK og VKFKN: Fyrsta sameiginlega stjðrn- arkjörið að fara fram í dag klukkan 17 rennur út framboðsfrestur til fyrsta sam- eiginlega stjórnarkjörsins hjá verkakonum og körlum í Keflavík og Njarðvík, hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis. En bæði VSFK og VKFKN hafa samþykkt sameiningu félag- anna sem verður að veruleika nú um áramót. Að sögn Guðrúnar Olafs- dóttur, fráfarandi formanns Verkakvennafélagsins, urðu miklar umræður um málið á aðalfundi VKFKN, en þar var samþykkt að allir sjóðir og aðrar eignir félagsins leggðust við sjóði VSFK. -En er þetta ekki öfug þróun nú á tímum aukinnar kvenna- baráttu? „Nei, þess verður gætt að fulls jafnræðis fylgi varðandi hlutfall kynja í trúnaðarstörf- um. Auk þess sem félögin verða mun sterkari sem ein sameinuð heild og því er það undir okkur sjálfum komið hver þróunin verður," svaraði Guðrún. Aður en félögin samþykktu sameininguna höfðu konur, bæði í Höfnum og Vatnsleysu- strönd, gengið til liðs við VSFK. En þeirra félög, Verka- lýðsfélag Hafnahrepps og Verkalýðsfélag Vatnsleysu- strandarhrepps, sem voru blönduð félög, gengu fyrir nokkrum árum sem ein heild inn í VSFK. Er félagssvæði VSFK því fyrir Keflavík, Njarðvík, Hafnir og Vatns- leysustrandarhrepp. En sér- stök félög með báðum kynjum eru í Sandgerði, Garði og Grindavík. „Félögin verða sterkari sem ein sameinuð heild“, segir Guðrún Olafsdóttir. Happdrætti Krabbameinsfélagsins: Suðurnes undir lands- meðaltali Miðar í hinu árlega happ- drætti Krabbameinsfélagsins hafa nú verið sendir inn á hvert heimili í landinu. Margt glæsi- legra vinninga er í boði í þessu happdrætti, en starfsemi fél- agsins er háð happdrættinu og byggist allt fræðslustarf á happdrættisfé því sem aflast. Fá m.a. skólarnir árlega fræðslu um tóbaksvarnir og hefur Krabbameinsfélag Suð- urnesja verið þar með í ráðum og lagt þeirri fræðslustarfsemi lið. í fyrra var farið að reikna út (eftir póstnúmerum) hvaða skil fengjust hverju sinni fyrir heimsenda miða í Happdrætti Krabbameinsfélagsins. Suður- nes hafa að þessu leyti ekki komið mjög vel út hlutfalls- lega miðað við suma aðra landshluta heldur verið undir landsmeðallagi. Athyglisvert er að bæði í hausthappdrætti 1987 og vorhappdrætti 1988 voru Keflavík og Sandgerði að heita má með hnífjöfn skil, þau bestu á svæðinu. Njarð- vík, Vogar og Grindavík komu næst þeim í vorhapp- drættinu og voru þessir þrír staðir með nánast sömu út- komu. Lestina ráku þá Garð- ur og Hafnir. Góðir viðskiptavinir! Hjá okkur getið þið verslað þegar ykkur hentar því við höfum opið alla daga vikunnar til kl. 23. Við höfum frábært vöruúrval, jólafötin og jólagjafirnar. Með jólakveðju, Sandgerði - Sími 37415 A MORGUN, 16. DES., ER SIÐASTI „SJENS“! umfram 7,25% vexti 15 mánuðina Þú getur fengið verðtryggingu næstu ef þú leggur strax inn á Afmælisreikning Landsbankans. í^ands^^^' Banki allra landsmanna Leifsstöð - Sandgerði - Grindavík

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.