Víkurfréttir - 15.12.1988, Blaðsíða 58
JÓLABLAÐ 1988
Eini tíminn
99
til afslöpp-
unar er í
bílnum
úú
- segir keflvíski KR-ingurinn
og fyrsti landsliðsmaður Keflavíkur
í handbolta - Einvarður Jóhannsson
Pantið jólaklippinguna
tímanlega
Opið í hádeginu
desember
Asdís Pálmadóttir hárgreiðslumeistari
Marta Teitsdóttir hárgreiðslumeistari
Jáhunn Oladóttir hárgreiðslumeistari
Svala Úlfarsdóttir (jóla)sveinn
Hárgreiöslustofan
£L
a<jcn5
Tímapantanir í síma 14848
Gleðileg jól, farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiplin.
góður matur - á góðu verði.
Munið að panta snitturnar
tímanlega fyrir jól.
Heitar vöfflur
m/rjóma. Alltaf
gott með kaffinu.
Lítið við í leiðinni.
MATSTOFAN
ÞRISTURINN
Hólagötu 15 - Sími 13688
Einvarður .lóhannsson varð í
sumar sem leið fyrsti landsliðs-
maðurinn í handknattlcik sem
Keflvíkingar eignast. Skemmti-
legt er til þess að vita að við
skulum loksins eiga mann í
fremstu röð handknattleiksins,
ekki síst þar sem landsliðið er á
meðal þeirra bestu í heimi.
Einvarður hefur allt frá unga
aldri lagt mikla stund á íþróttir
og jafnan verið í fremstu röð.
Þeir sem þekkja hann vita að
honum líður best þegar hann æf-
ir mest. Það kom því engum á
óvart að leið hans skyldi liggja á
íþróttabraut F.S. og þaðan
beint á Laugarvatn, þar sem
hann lauk íþróttakennaraprófi
frá ÍKÍ sl. vor. Eftir að Einvarð-
ur var valinn í U-21 landsliðið í
sumar hellti hann sér af fullum
krafti í handboltann og skömmu
síðar ákvað hann að ganga til
liðs við KR-inga og spila „al-
vöru“ handknattleik í vetur með
reyndum leikmönnum undir
stjórn eins besta handknatt-
leiksþjálfara Islands.
íslandsmeistari í körfu
Einvarður hóf íþróttaiðkun
sína, eins og svo margir aðrir, í
fótboltanum hjá UMFK, 6 ára
gamall. Fótboltann lét hann
duga fyrstu árin, en smitaðist
síðan af körfuboltadellu af
Gunnari bróður sínum, nú:
verandi formanni KKRK. 1
körfuboltanum varð Einni,
eins og vinir hans kalla hann,
síðan Islandsmeistari mörgárí
röð og var Keflavíkurliðið í
þessum árgangi nærósigrandi.
Einvarður ákvað síðan af illri
nauðsyn að hætta körfubolta-
iðkun sinni á ,,toppnUm“ eins
og hann orðaði það, en hann
var þá fyrirliði drengjalands-
liðs íslands. Önnur íþrótt,
handknattleikurinn, var orðin
yfirsterkari í honum.
„Ég byrjaði 12-13áraaðæfa
handboltann ásamt nokkrum
félögum mínum úti í Sand-
gerði undir stjórn Guðmund-
ar Arna Stefánssonar, sem þá
lék með og þjálfaði Reyni, en
situr nú og stjórnar Hafnar-
firði. Þá fór ég beint af körfu-
boltaæfingum út á Sandgerðis-
veg og húkkaði bíl út eftir.“
íþróttahúsið annað
heimili hans
•Einvarður gerði stuttan hjá
Reyni, því IBK byrjaði árið
eftir með handknattleiksæf-
ingar í nýja íþróttahúsinu í
Keflavík. Það hús átti á næstu
árum eftir að verða hans ann-
að heimili, og hafði mamma
hans oft á orði að nær væri að
leita hans þar en heima hjá sér.
Einvarður var öllum stundum
á æfingum og lagði stund á all-
ar íþróttir sem hann komst
yfir. Á veturna stundaði hann
körfubolta, handbolta og fót-
bolta samhliða og greip gjarn-
an í badmintonspaðann ef lítið
var að gera. Eftir að hann byrj-
aði í F.S. bættist íþróttanámið
ofan á hefðbundnar æfingar
og viðveran í íþróttahúsinu
jókst. Á sumrin fóru svo allar
frístundir í fótboltaiðkun og
körfubolta.
Eftir að hafa lokið námi á
íþróttabraut F.S. tókst Ein-
varði að komast inn í íþrótta-
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja auglýsir
Enski skyggnilýsingamiðillinn Dorothy Kenny starfar hér á
vegum félagsins frá 9.-31. jan. n.k. Miðasala á einkafundi
verður í húsi félagsins að Túngötu 22, Keflavík, sunnudag-
inn 18. des. n.k. kl. 14-18.
Stjórnin
kennaraskólann á Laugar-
vatni, og þá fyrst komst hann
almennilega á kaf í íþróttirn-
ar.
Keflavík-Laugarvatn-
Keflavík, 5 X í viku
„I skólanum var maðurallt-
af nokkra tíma á dag í íþrótta-
salnum, svo var tekinn sund-
sprettur, og svo byrjaði ég að
æfa blak með HSK auk þess
sem ég hafði félagaskipti úr
IBK í körfuboltanum, til þess
að geta spriklað með HSK í 1.
deildinni, svona rétt til að
halda kunnáttunni við. Síðan
keyrði ég heim 2-3 og allt upp í
5 sinnum í viku, 150 km leið, til
þess að æfa og keppa með IBK
í 2. deildinni í handboltan-
um.“
-En hvernig líkaði svo vistin
á Laugar'yatni?
„Þar var mjög gött að vera
og ég tel að tvímælalaust ætti
að halda skólanum þar og
byggja upp „super“-aðstöðu.
Menntunin hefur hins vegar
verið stöðnuð um árabil enda
íhaldssamir menn við stjórn-
völinn. Hins vegar hefur
ánægjuleg þróun verið að eiga
sér stað núna á allra síðustu ár-
um og með nýjum kennurum
og lengingu skólans er námið
að verða markvissara og
betra."
Erfitt að skilja við ÍBK
Eftir að Einvarður útskrif-
aðist frá ÍKÍ var hann valinn í
U-20 landslið íslands í hand-
bolta og það val varð til þess að
hann tók stóraákvörðun varð-
andi alla sína íþróttaiðkun.
Hann ákvað að taka fyrir eina
íþrótt, nokkuð sem hann hefur
aldrei verið frægur fyrir, og
pað sem meira var, hann
ákvað að segja skilið við ÍBK
og ganga til liðs við KR.
„Þetta var spurning um að
bindast einni íþrótt í staðinn
fyrir margar. Ég hef mest gam-
VIÐTAL: GVK - MYNDIR: PKET.