Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.12. 2015
Þ
egar handboltakappinn
Ólafur Stefánsson
snéri heim til Íslands
eftir um tveggja ára-
tuga atvinnumennsku í
handbolta og lagði skóna á hill-
una var hann viss í sinni sök
hvert hann vildi beina orku sinni
næst. Það kom sumum á óvart
hvert sá vegur átti að liggja, ein-
hverjir spurðu hann hvort hann
ætlaði ekki bara að fara að dytta
að sumarbústaðnum, nú eða auð-
vitað að þjálfa. Ólafur stefndi
hins vegar að því að skapa forrit
sem hjálpar til við að halda bet-
ur utan um þá miklu vinnu sem
nemendur og kennara leggja á
sig öll grunn- og framhaldsskóla-
árin.
Forrit að nafni KeyWe er það
sem Ólafur hafði lengi gengið
með í maganum. Eftir að Ólafur
kom heim var því komið í farveg
og framkvæmd og er nú farið á
siglingu með meðal annars 14
milljóna króna styrk frá Rannís.
KeyWe, þar sem „Key“ stendur
fyrir lykil og We einfaldlega fyrir
„við“ er forrit sem heldur utan
um það efni sem nemendur vinna
með frá degi til dags; námsefni,
áhugamál og hugmyndir. Forritið
umbreytir því í tölvuleiki sem
þjálfa nemendur til að muna efn-
ið og kalla það hratt fram þegar
notandinn þarf að tengja á milli
ólíkra efnisþátta.
„Það er svo mikið af upplýs-
ingum sem við fáum um ævina
og á námsferli okkar sem gufar
svo bara upp. Með því fer mikill
tími og upplýsingar til spillis.
Þetta er ekki ólíkt matarsóun –
helmingurinn af því sem við
kaupum fer beint í ruslið. Við er-
um alltaf að týna upplýsingum
eða einhverju sem okkur hefði
langað að muna. Og um leið er-
um við líka oft, vegna hefðar eða
skyldurækni, að reyna að muna
upplýsingar sem heilinn hefur
kannski engan áhuga á. Forritið
hjálpar til við að sigta út það
sem skiptir mann persónulega
máli og hvað ekki.“
Ólafur hefur einlægan áhuga á
því að krakkar noti tíma sinn
betur. „Það er svo mikilvægt að
við notum tæknina til að styrkja
sjálfstæða hugsun hjá krökkum í
stað þess að tæknin steli allri
sjálfstæðri hugsun frá þeim. Allir
þeir skemmtilegu tölvuleikir sem
eru til í dag spila stóra tímarullu
hjá börnum og unglingum. Sumir
eru flottir eins og Mincecraft og
QuizUp en flestir hafa litla merk-
ingu nema það að auka við-
bragðs- og hreyfifærni í heimum
sem hafa litla merkingu í sjálfu
sér.“ Tilraunin með KeyWe miðar
að því að lauma merkingu inn í
þennan mikla leiktíma barna og
unglinga.
Ólafur segir að þegar hann fór
að velta fyrir sér hvernig þær
upplýsingar sem fást í námi geta
farið forgörðum horfði hann líka
til þeirrar visku sem einstakl-
ingar sanka að sér í öðrum kim-
um lífsins. „Í gegnum lífið al-
mennt er maður alltaf að læra
eitthvað; jafnvel bara í kaffibolla
hjá afa eða ömmu, af einhverju
sem þau segja, eða fær ein-
hverjar hugljómanir. Manni tekst
vel upp, gerir mistök og síðar
meir er maður búinn að gleyma
því hvað gerði það að verkum að
manni tókst vel eða illa upp.
Eitthvað sem maður hefði viljað
geyma með sér en hafði engin
tæki og tól til þess.
Mig langaði að gera krökkum
kleift að festa með sér það sem
þau vilja virkilega muna. Þetta
snýst því líka um einstaklings-
bundið val, að þau geti alltaf,
hvar sem þau eru og hvað sem
þau eru að gera; tekið þar eitt-
hvað sem þeim þykir merkilegt
og tengt það við forritið. Þetta
er leikjastílabók 21. aldarinnar
þar sem nemendurnir ásamt
kennurum eru þannig alltaf að
móta námsefni á rauntíma í
gegnum og inn í tölvurnar. Kenn-
arar og kennslufræðingar fá
þannig kærkomið tækifæri til að
sjá hvernig námsefni birtist á
ólíkan hátt í huga hvers og eins
nemanda.“
Upphafið að þessu öllu er að
Ólafur tók í fjarnámi heimspeki,
bókmenntir og sálfræði meðfram
handboltaferlinum. NLP, neuro-
linguistic programming, sú hug-
myndafræði að öll hegðun hafi
ákveðið mynstur og mynstrið sé
hægt að tileinka sér, læra og
breyta ásamt hugkortapælingum,
fæðing Instagram og Evernote, í
bland við hugmyndafræðinga á
borð við Giles Deleuze fékk hann
til að endurskoða þær hefð-
bundnu námsaðferðir sem hafa
ÓLAFUR STEFÁNSSON HANDBOLTAKEMPA SEGIST TRÚA
ÞVÍ AÐ MEÐ ÞVÍ AÐ VELTA SÉR EKKI UPP ÚR FORTÍÐ EÐA
FRAMTÍÐ NÁIST VELLÍÐAN OG ÁRANGUR. FYRIR HONUM
ER ÞAÐ ÁSTRÍÐUEFNI AÐ FARA INN Í GRUNNSKÓLA
LANDSINS OG HJÁLPA KRÖKKUM VIÐ AÐ NÝTA SÉR
TÆKNINA Í ÞÁGU NÁMSINS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
* Það er svo mikilvægt að við notumtæknina til að styrkja sjálfstæðahugsun hjá krökkum í stað þess að tæknin
steli allri sjálfstæðri hugsun frá þeim.
Þarf nýja
hugsun til að
gera heiminn
að betri stað
* Þetta var togstreita sem ég upplifði – aðvera klofinn milli verkefna; annars veg-ar að sinna þjálfun og svo KeyWe. Ég valdi
óvissuleiðina með því að velja KeyWe
Viðtal