Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Page 39
20.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Samsung Galaxy S6 Edge+
skákar flestum ef ekki öll-
um keppinautum sín-
um í útliti, virkni
og hraða.
Því var slegið fram á árinu að bensínið
væri búið að vera. Sá sem sagði það
hefur verið að keyra Teslu rafbíl.
iPad Pro setti ný við-
mið í skjástærð - 12,9"
skjár hvorki meira né minna.
Þegar við bætist framúrskarandi upp-
lausn og sprækur örgjövi er komið nýtt uppá-
hald, öflugri, flottari og miklu betri.
Nýtt ár, nýr iPhone - nú er það iPhone 6s. Víst
er hann endurbætt útgáfa af iPhone 6, en
breytingarnar eru umtalsverðar og fyrir vikið
er hann miklu, miklu betri en fyrirrennarinn.
Breska efnisveitan Hopster og
Vodafone hafa samið um dreifingu
á Íslandi. Efnisúrval Hopster og
app sem leggur áherslu á vandað
og lærdómsríkt efni fyrir börn
verður hluti af Vodafone Sjónvarpi
undir merkjum Vodafone PLAY,
allt með íslensku tali.
Hopster til Íslands