Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Síða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Síða 57
20.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 í frelsinu á Íslandi, og mér fannst merkilegt hvernig þær brugðust við ýmsum aðstæðum. Hvernig þeim tókst að hnoða veröldina til og verða þannig valdar að sínum litlu bylt- ingum.“ Litlar byltingar er skáldsaga en persón- urnar allar byggðar á raunverulegum konum. „Ég byggi þær mjög augljóslega á manneskj- um; ég hef oft gert það í mínum skáldskap, og finnst spennandi, hef nýtt mér fólk og um- hverfi, sögur og aðstæður. Ég hef til dæmis oft nýtt mér Garðabæinn, en þaðan er ég. Ég kalla konurnar í bókinni auðvitað skáldsagna- persónur af því að ég raða saman gömlum sögum á minn hátt og kasta litlum verndar- hjúpi yfir konurnar með nýjum nöfnum og gef þeim þannig nýtt líf. En þetta eru sögur sem ég hef heyrt, sumum var bara hvíslað.“ Sannar sögur Frásögnin er ekki línuleg heldur ferðast Kristín Helga um öldina og sögurnar gerast á þremur tímaplönum; þær spanna eitt kvöld, eitt ár og heila öld. „Þetta eru sannar sögur. Ein skarast til dæmis á við mjög fræga sögu af skilnaði í valdafjölskyldu, sögu sem teygði sig inn í bæði stjórnmálin og dómskerfið. Ungur óska- sonur giftist bandarískri konu, hjónabandið fór út um þúfur og konan, sem komin var með þrjú börn, þráði ekkert heitar en að komast heim til Bandaríkjanna. Hún gerði tvær tilraunir en var stöðvuð í bæði skiptin. Ég segi ekki þessa sögu enda búið að gera það í annarri bók. En þrjár konur, sem ég þekkti, lögðu á ráðin og buðu karlaveldinu birginn. Þetta voru ungar konur, flugfreyja, saumakona og skrifstofustelpa, sem ákváðu að koma þessari vinkonu sinni úr landi með klækjum og ráðabruggi og tókst það. Þetta var leyndarmál sem hvíslað var ofan í kaffi- bolla og ég heyrði sem barn. Þegar ég fór svo að tala um gamlar sögur minna kvenna við fólk heyrði ég aðrar og enn aðrar sögur af sterkum konum.“ Konurnar þrjár þekkti enginn, segir Krist- ín Helga; „þær bara komu og fóru eins og hægt er að segja um svo okkur flest, en ég held að þær eigi ekki síður skilið en margir aðrir að frá þeim sé sagt og til þeirra er þessi bók“.Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristín Helga Gunnars- dóttir: Þessar konur eiga ekki síður skilið en margir aðrir að frá þeim sé sagt. Mér finnst við verða að þekkja þess-ar sögur; það eru feður okkar ogafar sem standa þarna í eldlín- unni, og í einstaka tilfellum ömmur, þótt af- ar fáar konur komi við sögu. Ég geri mér grein fyrir því að fyrirfram sé það líklega helst fólk á miðjum aldri sem hefur áhuga á þessu en vonandi get ég líka vakið áhuga unga fólksins okkar á þessum sögum, segir Illugi Jökulsson rithöfundur, sem hefur sent frá sér bókina Kafbátur í sjónmáli, þá þriðju í flokknum Háski í hafi. „Þetta er í grundvallaratriðum upprifjun á sjávarháskum, sjóslysum, björgunarafrekum og þess háttar í hafinu við Ísland.“ Frásögnin er í gamalkunnu annálsformi. Í fyrri bókunum tveimur rifjaði Illugi upp at- burði í upphafi 20. aldar en stekkur að þessu sinni fram til síðari heimsstyrjaldar- innar. „Í þessari bók tek ég fyrir fyrri hluta stríðsáranna, 1939 til ’41. Því miður er frá svo hryggilega mörgu að segja að ég kom ekki lengra tímabili fyrir í einni bók. Þetta voru örlagatímar, bæði urðu venjulegir sjóskaðar við landið og svo bættist stríðið ofan á sem olli gríðarlegu manntjóni hjá ís- lenskum sjómönnum. Ég tók reyndar þann pól í hæðina að segja söguna ekki bara frá sjónarhóli íslenskra sjómanna heldur líka þýskra kafbátamanna sem voru á sveimi hér nálægt og gerðu alls kyns hervirki. Í stað þess að þeir komi fram sem andlitslausir draugar sem birtast út úr myrkrinu reyni ég að segja frá þeim.“ Illugi hefur lengi haft mikinn áhuga á þessu tímabili sögunnar. „Já, ég verð að við- urkenna það. Strax 14 ára fékk ég af dular- fullum ástæðum mikinn áhuga á sjóhernaði og sérstaklega sjóhernaði í seinni heims- styrjöld og aðgerðum þýska flotans ekki síst. Fyrir mig er þetta því eins og að ganga í barndóm eða fá útrás fyrir gamalt áhuga- mál. Ég var óskaplegur spesíalisti á þessu sviði og pantaði mér 15 ára gamall marga hillumetra af þessu efni. Lá í því í nokkur ár en fór svo að sinna öðru.“ Illugi segir að eftir að netið kom til sög- unnar sé mun auðveldara að afla heimilda en áður. Hann hafi nýtt sér fjölmargar er- lendar vefsíður, „en vil þó vekja sérstaka at- hygli á kafbátavef Guðmundar Helgasonar í Hafnarfirði [www.uboat.net]; hann heldur úti alþjóðlegum vef um þýsku kafbátana, vef sem er frábær. Ég fæ ekki nógsamlega þakkað fyrir þann vef.“ skapti@mbl.is HÁSKI Í HAFI - KAFBÁTUR Í SJÓNMÁLI Ekki má gleyma ILLUGI JÖKULSSON SENDIR FRÁ SÉR ÞRIÐJU BÓKINA UM HÁSKA Í HAFI. FJALLAR NÚ UM FYRRI HLUTA HEIMSSTYRJALDARINNAR SÍÐARI. „Strax 14 ára fékk ég af dularfullum ástæðum mikinn áhuga á sjóhernaði,“ segir Illugi Jökulsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg BÓKSALA 07. 12.-13. 12. Allar bækur Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 SogiðYrsa Sigurðardóttir 2 Þýska húsiðArnaldur Indriðason 3 Mamma klikkGunnar Helgason 4 Útkall í hamfarasjóÓttar Sveinsson 5 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson 6 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir 7 Stríðsárin 1938 - 1945Páll Baldvin Baldvinsson 8 Café SigrúnSigrún Þorsteinsdóttir 9 Vísindabók Villa: geimurinn oggeimferðir Vilhelm Anton Jónsson og Sævar Helgi Bragason 10 Eitthvað á stærð við alheiminnJón Kalman Stefánsson 1 SogiðYrsa Sigurðardóttir 2 Þýska húsiðArnaldur Indriðason 3 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir 4 Eitthvað á stærð við alheiminnJón Kalman Stefánsson 5 NautiðStefán Máni 6 HundadagarEinar Már Guðmundsson 7 EndurkomanÓlafur Jóhann Ólafsson 8 DimmaRagnar Jónasson 9 ÚtlaginnJón Gnarr 10 Sjóveikur í MünchenHallgrímur Helgason 1 Mamma klikkGunnar Helgason 2 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson 3 Jólasyrpa 2015Walt Disney 4 Ég elska mávaÞorgrímur Þráinsson 5 Grimmi tannlæknirinnDavid Walliams 6 Skósveinarnir - leitið og finnið 7 DúkkaGerður Kristný 8 Kvöldsögur fyrir krakka 9 Kafteinn ofurbrók og endurkomaTúrbó 2000 klósettsins Dav Pilkey 10 FjársjóðskistanÝmsir Íslensk skáldverk Barnabækur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.