Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016 Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ég held að það væri alveg hægt að gera hvort tveggja. Selja í matvörubúðum og Ríkinu. Þá væri kannski lítið úrval í matvörubúðum þannig að þú gætir nýtt það ef það er langt í næstu áfengisverslun. Annars er Ríkið mjög þægilegt og mikið úrval þar. Hlynur Halldórsson Ég veit það ekki. Ég er hræddur um að úrval- ið myndi minnka við það. Gunnar Gunnarsson Nei, ég er alveg á móti því. Þórhalla Haraldsdóttir Prentun Landsprent ehf. Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Já. Mér finnst að þetta eigi að vera jafn- aðgengilegt öllum á landinu. Erna Dögg Úlfhéðinsdóttir Morgunblaðið/Styrmir Kári SPURNING VIKUNNAR: FINNST ÞÉR AÐ SELJA EIGI ÁFENGI Í MATVÖRUBÚÐUM? Guðrún Hannes- dóttir byrjaði ekki að yrkja fyrr en á miðjum aldri en hefur nú sent frá sér fimm ljóðabækur. Ljóðin eru órímuð og einföld við fyrstu sýn. „Ég ætla að halda ótrauð áfram. Það er þannig með ljóðlistina að þegar maður hefur eitt sinn ánetjast henni verður ekki aftur snúið.“ 50 ÚR BLAÐINU Hvað geturðu sagt okkur um þennan nýja Spaugstofuþátt, Andspyrnuhreyfinguna? „Hann fjallar um nokkur gamalmenni sem leiðist þófið og taka til óspilltra málanna. Tilgangurinn mun vera að upp- lýsa í eitt skipti fyrir öll hvað þjóðin lærði af hruninu. Þetta eru eldri týpurnar úr Spaugstofuþáttunum, eins og Sig- finnur, Þórður húsvörður og fleiri góðir menn. Mitt hlut- verk í þættinum er aðallega að vera leiðsögumaður og fara með túrista í lundabúðir og fleira. Andspyrnuhreyfingin er þáttur í anda klassísku Spaugstofuþáttanna eins og þeir voru á milli 1990 og 2000.“ Hverjir koma fram? „Við fimm sem lengst af mynduðum Spaugstofuna; Sig- urður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og ég. Og svo er Laddi með okkur.“ Er þetta svanasöngur Spaugstofunnar í sjónvarpi? „Ég veit það ekki. Satt best að segja. Ríkissjónvarpið bað um þennan þátt sem hala við þessa heimildarþætti um Spaugstofuna sem sýndir hafa verið í vetur. Það er ómögulegt að segja hvað ger- ist í framtíðinni. En ætli sé ekki komið nóg! Alla vega í sjónvarpi. Við erum ennþá að sýna leiksýninguna okkar, Yfir til þín, í Þjóð- leikhúsinu. Hún hefur fengið fínar viðtökur og verið uppselt. Næstu sýningar verða 28. janúar og 1. febrúar. Við höldum áfram með hana eins lengi og það er eftirspurn.“ Nú eru allmörg ár síðan þú varst síðast á ferðinni með Spaugstofunni. Hvernig var að koma aftur? „Það var eins og ég hefði aldrei farið. Þetta er alveg sami andinn og áður og ég var fljótur að komast inn í þetta.“ Hvað ertu annars að fást við þessi misserin? „Ég lauk leiðsögumannsprófi í fyrravor og hef verið að vinna hjá Grey Line síðan. Þeir eru með mikið úrval af ferðum og ég hef verið að fara með túrista um Reykjavík, Gullna hringinn og suðurströndina, svo dæmi sé tekið. Það er brjálað að gera, allt árið um kring.“ Ertu eitthvað að spauga við túristana? „Maður reynir að vera gáfulegur og miðla upplýsingum um land og þjóð en auðvitað slær maður á léttari strengi inn á milli. Þetta er bara eins og hver annar performans. Og stundum í átta tíma, eins og Gullni hringurinn.“ Það er bara eins og grísku harmleikirnir? „Já, það má segja það. Og maður tuðandi allan tím- ann.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári RANDVER ÞORLÁKSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Klassísk Spaugstofa Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Svanhvít Þóra Sigurðardóttir stofnaði ásamt skólasystur sinni Maiken Bille merkið Mai Svanhvit sem hún mun kynna á tískuvikunni í Kaup- mannahöfn í febrúar. Fyrsta lína þeirra er innblásin af íslenskri náttúru og skandinav- ískum mínimalisma. Tíska 36 Það dreymir marga um einfaldara líf og það þarf að skera niður á fleiri stöðum en í mataræðinu í byrjun árs. Í þessu eins og öðru er gott að vera staðfastur en hér koma sex góð ráð fyrir fjölskyldur, ráð sem hjálpa til við að mynda góðar venjur, minnka draslið á heimilinu og róa hugann um leið. Fjölskyldan 30 Vala Valþórsdóttir og Rún- ar H. Bridde hafa komið sér upp fallegu heimili í Kópavogi. Vala og Rúnar halda upp á vandaðar hönnunarvörur frá ýmsum tímabilum og segja heim- ilisstílinn mínimalískan og einfaldan. Heimili og hönnun 24 Randver Þorláksson er meðal leikenda í glænýjum Spaug- stofuþætti. Andspyrnuhreyfingunni, sem sýndur verður í Ríkissjónvarpinu í kvöld, laugardag, kl. 19:45. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Í fókus

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.