Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Græjur og tækni
Vísindamenn við Oxford-háskólann hafa
komist að þeirri niðurstöðu að meðal-
manneskjan á Facebook eigi 150 vini. Þar af
eru aðeins fjórir þeirra sem stendur raun-
verulega ekki á sama um mann og hægt er
að treysta. Og ekki nema 14 hafa raunveru-
lega samúð með manni ef eitthvað fer úr-
skeiðis.
Skeytingarlaus Facebook
S
krefateljarar hafa selst í milljónavís í
heiminum undanfarna áratugi enda
viðtekin þumalfingursregla að tíu
þúsund skref á dag komi heilsunni í
lag. Nú er komið á markað smáforrit sem
byggir á aðferð sem mögulega er betur til
þess fallin að mæla heilsubætandi aðgerðir,
Personal Activity Intelligence, PAI, sem
mælir hjartslátt fólks í stað skrefafjölda. Um
er að ræða smáforrit fyrir snjallsíma og
heilsuarmband sem tengt er við símann.
Framleiðandi er fyrirtækið Mio Global.
Geoffrey A. Fowler, blaðamaður The Wall
Street Journal, réðst nýverið í heilsuátak og
ber heilsuarmbönd og öpp saman í grein í
blaði sínu í vikunni. Niðurstaða hans er sú
að PAI gefi mun gleggri mynd af brennslu
og þar af leiðandi árangri með hreyfingunni
en gamli góði skrefateljarinn.
Viðmið skrefateljarans, 10.000 skref á dag,
má rekja aftur til markaðsátaks vegna græj-
unnar í Japan á sjöunda áratug síðustu ald-
ar. Læknar hafa aldrei kvittað upp á þá tölu.
Fowler bendir á að þá hafi verið aðrir tímar
enda hafi einkatölvan ekki rutt sér til rúms
fyrr en löngu síðar með allri þeirri óhollustu
sem getur fylgt hömlulausri ást á henni.
Ekki sama 10.000 og 10.000
Læknar og heilsufrömuðir hafa lengi fullyrt
að öll hreyfing sé holl fyrir líkamann en það
segir sig eigi að síður sjálft að það að ganga
á jafnsléttu eða niður í móti reynir ekki á
mann með sama hætti og að ganga upp í
móti. Þess utan gengur fólk auðvitað mis-
jafnlega hratt. 10.000 skref eru með öðrum
orðum ekki sama og 10.000 skref.
Það má líka fara út að hjóla eða skella sér
í spinning-tíma og skrefateljarinn haggast
ekki. Ekki frekar en þegar maður refsar lóð-
unum, tekur kannski löðursveittur 150 kg í
bekk. Og rymur vel á eftir.
Í þessu felast yfirburðir PAI yfir skrefa-
teljarann. Með PAI smáforritinu er áhersla
lögð á hjartsláttinn og maður sér því mun á
því að ganga upp hæð eða niður brekku.
Brennslan er ekki sú sama.
Þekkt er að tæki af þessu tagi, svo sem
Fitbit, Jawbone, Basis og græjur frá Micro-
soft, séu með hugbúnað sem breytir upplýs-
ingum í ráð. Jawbone leitar til dæmis að
mynstri í venjum notandans. Heilsu-
armböndin sem notast við PAI aðferðina
ganga ennþá lengra. Freistandi er að segja
skrefinu lengra en það á svo innilega ekki
við í þessu sambandi. Öllum upplýsingar um
hjartslátt er safnað saman og breytt í tölu
sem allir eiga auðvelt með að skilja. Notand-
inn safnar stigum og því meira sem hann
hreyfir sig þeim mun fleiri verða stigin.
Rannsóknir hafa þegar sýnt fram á, að sögn
Fowlers, að haldi fólk PAI-tölunni sinni
reglulega í kringum 100 geti það framlengt
líf sitt um að minnsta kosti tvö ár. Sé fólk
undir fimmtugu gæti þetta þýtt allt að tíu ár
í viðbót. Það er ekki lítið.
Öfugt við skrefamælinn byrjar PAI-
mæliaðferðin ekki á núlli á hverjum morgni
sem þýðir að auðveldlega má vinna upp
slugs mánudagsins á þriðjudeginum.
Engin PAI eru nákvæmlega eins en form-
úlan tekur með í reikninginn aldur notand-
ans, kyn, hjartslátt í hvíld og hámarki og
sitthvað fleira. Ekki þarf að gangsetja arm-
bandið sérstaklega, sé maður á hreyfingu
skynjar það hana.
Sér heilsurækt í öðru ljósi
Fowler hefur prófað tækið við ýmsar æfing-
ar og komist að forvitnilegum niðurstöðum.
Þannig fékk hann ekki nema 7 PAI-stig fyrir
klukkustundarlanga göngu, sem taldi 6.000
skref en 56 PAI-stig fyrir hressilegan hjól-
reiðatúr.
Karlanginn viðurkennir að hann hafi verið
dottinn úr formi, þegar átakið hófst, en PAI
hafi beinlínis hjálpað honum að taka sig á.
„Eftir að hafa fylgst með hreyfingu minni
gegnum tækið hugsa ég með allt öðrum hætti
um það að koma mér í form,“ segir hann.
Framkvæmdastjóri Mio, Liz Dickinson,
segir heilsuarmböndin sem tengjast PAI
smáforritinu einmitt upplögð fyrir fólk sem
hefur gengið illa að koma sér í form eða
halda sér í formi, vegna þess að tækið lagar
sig að ástandi og þörfum hvers og eins.
„Það mun ekki hvetja mann til að gera hluti
sem maður ræður ekki við,“ segir Dick-
inson.
Þess má geta að PAI er sprottið upp úr
einni elstu heilsurannsókn sem um getur,
Hunt-rannsókninni, þar sem fylgst var með
heilsu sextíu þúsund Norðmanna í tvo ára-
tugi. Það er einmitt norskur prófessor, Ulrik
Wisløff, sem lagði drög að heilsuforritinu
sem PAI byggist á.
Gott að fara yfir 100
PAI vilji fólk létta sig
Spurður um galdratöluna, 100, segir Wisløff
allt benda til þess að hún henti öllum en
ennþá sé of snemmt að segja til um hvort
það skipti máli fyrir heilsuna til lengri tíma
litið og þar af leiðandi lífslíkur manna að
fara yfir hana, það er upp í 130 eða 150 PAI.
Vilji fólk á hinn bóginn losa sig við einhver
aukakíló geti þó til skamms tíma verið gott
að fara eitthvað yfir hundraðið.
Hlustið á hjartað en ekki fótatakið
AÐFERÐ SEM KALLAST PERSONAL
ACTIVITY INTELLIGENCE, EÐA PAI,
NÝTUR NÚ SÍVAXANDI VINSÆLDA
EN HÚN MÆLIR HJARTSLÁTT VIÐ
HREYFINGU Í STAÐ ÞESS AÐ TELJA
SKREF OG SKILAR FYRIR VIKIÐ NÁ-
KVÆMARI UPPLÝSINGUM OG
MÖGULEGA BETRI ÁRANGRI.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
PAI tekur með í reikninginn aldur notandans, kyn, hjartslátt í hvíld og hámarki og sitthvað fleira.
Með því að velja hráefnið
af kostgæfni, nota engin aukaefni
og hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Samkaup,
Iceland verslanir, Kostur,
Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni
Keflavík, Sunnubúðin.
Meðan fólk er rétt að venjast til-
hugsuninni um sjálfkeyrandi bif-
reiðir eru sjálfkeyrandi barnakerr-
ur á leið á markað.
Kerran, sem er sambland af
kerru og vagni, kallast „Smartbe“
og er drifin áfram af mótor. Hug-
búnaðurinn í kerrunni, með inn-
byggðum skynjurum, virkar þannig
að kerran forðast allar hindranir,
beygir fram hjá þeim, og eltir for-
eldrið, eða þann sem fer með
stjórn kerrunnar, og heldur sig ná-
lægt því. Ef mamma eða pabbi
ákveða að skokka í hina áttina fer
vagninn þá leið. Ef foreldrið stopp-
ar stoppar Smartbe-kerran líka.
Kerruna má að sjálfsögðu líka
keyra áfram með eigin handafli en
það getur komið að góðum notum
að hafa mótorinn til að hjálpa sér í
erfiðustu brekkunum. Þess má geta
að vagninn inniheldur ýmis auka-
þægindi svo sem að hita pela og
spila vögguvísur.
NÚTÍMINN Í BARNAUPPELDI
Sjálfkeyrandi barnakerra
Það lítur út fyrir að vera
þægilegt að skokka með
Smartbe.