Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Síða 34
Tíska
AFP
*Grace Coddington, sem starfað hefur yfir 25 árhjá bandarísku útgáfu tískutímaritsins Vogue,hefur sagt starfi sínu lausu sem listrænn stjórn-andi þekktasta tískublaðs heims. Coddingtonmun þó koma að nokkrum tískuþáttum á árinu.
Ekki er vitað hver tekur við starfi hennar.
Grace Coddington
yfirgefur Vogue
H
vað er það sem heillar þig við tísku? Það sem heillar mig mest er að
hver og einn hefur sinn stíl. Maður stjórnar því algjörlega hversu mik-
ið eða lítið maður fylgir helstu tískustraumum. Mér finnst töff hvað
tískan gengur í hringi og hlutir sem manni finnst fáránlegir þegar
maður hugsar til baka eiga eflaust eftir að verða aðalmálið á ný eftir nokkur ár.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Stíllinn minn er fjölbreytilegur og af-
slappaður, gæjalegur í bland við fínni flíkur. Mér finnst gaman að blanda saman
ólíkum stílum, til dæmis með strigaskóm við fína efri parta. Ég klæðist mest
svörtu og hvítu, en uppáhaldsliturinn minn er blár og því er ég alltaf
mjög hamingjusöm þegar ég finn falleg blá föt.
Hvað er þitt uppáhaldstískutrend þessa stundina? Strigaskór
hafa verið heitir síðustu misseri og verða það hiklaust áfram.
Það hefur verið uppáhaldstrendið mitt frá fyrsta degi og ég sé
ekki fram á að fá nokkurn tímann nóg af flottum strigaskóm.
Ég er líka rosalega skotin í rúllukragabolum og sanka þeim að
mér þessa dagana, bæði peysum og bolum. Loks er ég mikið
með alls kyns derhúfur sem hafa komið sterkar inn síðasta ár-
ið.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó,
þegar kemur að fatakaupum? Gæði fram yfir
magn. Ég hef lært í gegnum árin að ég verð
nánast aldrei þreytt á fötum sem eru úr góð-
um og vönduðum efnum. Þau kosta meira
en að lokum borgar það sig alltaf að kaupa
færri, dýrari flíkur. Að minnsta kosti í
mínu tilfelli.
Er eitthvert ráð sem þú getur gefið varð-
andi fatakaup? Ekki kaupa bara til
þess að kaupa. Mér finnst langbest að
vera handviss um að varan muni koma
mér að góðum notum og að hún sé pen-
inganna virði. Einnig finnst mér mik-
ilvægt að gera sér grein fyrir að þó svo
að einhver tískubylgja standi yfir þýðir það alls
ekki að maður verði að fylgja henni. Aðalmálið er
að klæðast því sem manni sjálfum finnst flott,
burtséð frá því hvort það sé á öllum síðum tísku-
blaðanna eða ekki.
Hvað kaupir þú þér alltaf þótt þú eigir nóg af
því? Skó! Þeir eru alltaf það fyrsta sem ég skoða í
búðum og ég vel yfirleitt dress dagsins út frá því
skópari sem mig langar að klæðast þann daginn.
Ég kaupi mér líka reglulega svartar gallabuxur, en
það er aðallega vegna þess að með tímanum upplitast
þær og mér finnst mikilvægt að eiga alltaf par af
svörtum, nýlegum gallabuxum.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Anja Rubik, hún er algjör töffari og við eigum það
sameiginlegt að elska svört föt. Ég hef fylgst
með henni lengi og alltaf verið hrifin af stílnum
hennar. Jourdan Dunn og Elsa Hosk eru líka of-
arlega í huga mér.
Hverju myndir þú aldrei klæðast? Aldrei að segja aldrei, en
akkúrat núna finnst mér afar ólíklegt að ég muni ganga í þröngum „bandage“-kjól
í nánustu framtíð.
Áttu þér uppáhaldsflík? Já, ég á nokkrar uppáhaldsflíkur. Ég fæ aldrei nóg af bi-
ker-leðurjakkanum mínum en hann er úr endurunnu leðri, keyptur í New York
fyrir tveimur árum. Þar á eftir koma glimmerbuxur sem ég klæddist í myndatöku
fyrir sex árum og fór beinustu leið í Zöru eftir tökurnar til að finna þar síðasta
parið af buxunum. Önnur ofnotuð flík í skápnum er svört silkiskyrta úr All Saints,
en hún hentar við öll tilefni og var hverrar krónu virði. Að lokum fer ég varla úr
Jökla Parka-úlpunni minni frá 66°N þessa dagana.
Áttu þér uppáhaldshönnuð? Alexander Wang, Donnu Karan, Olivier Rousteing
og Karl Oskar Olsen. Allt mjög ólíkir hönnuðir með mismunandi stíl.
SANKAR AÐ SÉR RÚLLUKRAGABOLUM
Andrea Röfn segir stílinn
sinn gæjalegan í bland
við fínni flíkur og henni
finnst gaman að blanda
saman ólíkum stílum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Velur fötin út
frá skónum
ANDREA RÖFN JÓNSDÓTTIR, NEMANDI, FYRIRSÆTA OG
BLOGGARI Á TRENDNET.IS, ER MEÐ FJÖLBREYTTAN OG AF-
SLAPPAÐAN FATASTÍL. ANDREA ER HRIFIN AF ÞVÍ AÐ PARA
STRIGASKÓ SAMAN VIÐ FÍNNI EFRIPARTA OG HEFUR TAMIÐ SÉR
AÐ KAUPA FÆRRI EN DÝRARI FLÍKUR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Úr sumarlínu
Alexanders
Wangs 2016.
Andreu finnst
mikilvægt að eiga
alltaf par af nýleg-
um svörtum
gallabuxum.
Andrea fer varla úr
Jökla Parka-úlpunni
sinni þessa dagana.
Fyrirsætan Anja
Rubik er alltaf
flott til fara.