Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Blaðsíða 41
því og þá fékk ég leyfi. Þau hafa reynst mér
mjög vel,“ segir hún.
Pressan 4 í tökur á árinu
Árið 2007 fékk Sara stórt hlutverk í sjón-
varpsþáttaröðinni Pressunni sem sló í gegn
hjá landanum. Þar lék hún blaðakonuna
Láru og fyrir þann leik hlaut hún Edduna
fyrir leikkonu ársins árið 2013 en þrjár serí-
ur hafa verið gerðar. Fyrirhugað er að gera
fjórðu seríu af Pressunni og hefjast tökur
síðar á árinu. „Við erum búin að gera þrjár
seríur, þetta er í raun eins og níu bíómynd-
ir!“ segir hún og að reynslan hafi verið frá-
bær. „Ég hef mjög gaman af þessum miðli
og öllu í honum, að fylgjast með öllu,“ segir
Sara en vill ekki taka kvikmyndir og sjón-
varpsleik endilega fram yfir sviðsleikinn.
„Ég vil ekki gera upp á milli, mér þykir
mjög vænt um leikhúsið. Mér finnst æfinga-
tímabilið í leikhúsinu alveg frábært. Þessar
átta vikur, sirka. Þar sem farið er ofan í
saumana, þessi rannsóknarvinna. Tíminn
sem þú mátt prófa allt og leika þér og kryfja
hlutina til mergjar. Mér finnst gaman að
skoða hlutina djúpt. Þannig að ég myndi allt-
af vera til í það. Þetta er bara öðruvísi unnið
í bíó. Hraðinn hentar mér vel þar og þar eru
líka meiri líkur á að vinna utandyra,“ segir
hún.
Sviðsleik fylgir sú áskorun að standa á
sviði kvöld eftir kvöld og leika sama hlut-
verk. „Þar er áskorunin, að gera þetta alltaf
eins og í fyrsta sinn. Það er ekkert auðvelt.
En hver vill hafa hlutina auðvelda.“
„Ég ætla að leika í þessari mynd“
Fleira spennandi er á döfinni hjá Söru á
þessu ári. „Núna er ég að fara að leika lög-
reglukonu hjá Óskari Þór (Axelssyni) í mynd
Yrsu, Ég man þig. Og mér finnst svo spenn-
andi að fá afsökun til fylgjast með vinnu lög-
reglu,“ segir Sara sem er nú að kynna sér
störf lögreglunnar til að fá innsýn í starfið.
Hún fer svo vestur á Ísafjörð í mars í tökur.
„Ég las bókina þegar hún kom út og þurfti
að vera viss um að vera ekki ein heima þeg-
ar ég las hana. Langt síðan ég hafði lesið
svoleiðis bók, hún kom við mann. Ég man að
ég hugsaði: já, ég ætla að leika í þessari bíó-
mynd,“ segir Sara en þá var ekki kominn
neinn kvikmyndaréttur að bókinni. „Það
voru aftur smátöfrar,“ segir Sara með blik í
brúnu augunum. „Ég hef góða tilfinningu
fyrir þessu,“ segir hún en hlutverkið í mynd-
inni er stórt. „Ég fór í prufur og var í hesta-
ferð að læra textann á kvöldin þegar ég var
búin að taka hnakkinn af,“ segir hún og
hlær.
Frægðin ekki eftirsóknarverð
Þegar Sara er spurð um draumahlutverkið
stendur ekki á svarinu. Hún segist vera
þakklát fyrir hvert hlutverk, stór sem smá,
og í þeim skilningi eru þau öll drauma-
hlutverk sem hafa leitt hana á þann stað
sem hún er nú á. En eitt hlutverk væri hún
til í að leika og þá í sjónvarpsþáttum eða
kvikmynd. „Ég er með eitt á heilanum og
hef verið með í mörg ár. Mig hefur alltaf
langað að leika Karítas í Karítas án titils
sem Kristín Marja (Baldursdóttir) skrifaði.
Þessa konu vil ég leika, hún er merkilegur
karakter fullur af togstreitu. Saga íslenskra
kvenna býr í henni.“
Sara segir að hana dreymi ekki um frægð.
„Það hefur aldrei heillað mig, ég er aðeins of
prívat manneskja fyrir slíkt en ég segi það
ekki að ég myndi ekki leika í bíómynd í út-
löndum. Ég væri svo sannarlega til í að
prófa það. Og bara að fá áskoranir, hvort
sem það er á Íslandi eða erlendis. Ég tek
því fagnandi,“ segir hún og segist ekki eiga
neina leynda drauma um frægðina. „Við vit-
um hvað hún er fallvölt frægðin.“
Leikkona ársins í Suður-Kóreu
Sara segir að það hafi verið mjög skemmti-
legt að fá Edduna 2013 fyrir bestu leikkonu
ársins í hlutverki Láru í Pressunni en bendir
* Þetta er bara töfrar. Við erum höfundar að okk-ar lífi. Við skrifum söguna og ráðum hvernighún er. Ég trúi því. Ég trúi því að við getum bara
gert nákvæmlega það sem við viljum.
24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41