Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 45
betra að leysa mál á staðnum en gegnum síma eða tölvupóst. Flestir ræðismenn Íslands eru líka vel tengdir í sinni heimabyggð sem skiptir miklu máli, ekki síst þar sem stjórnarfar er frábrugðið því sem við eigum að venjast. Þá liðka góð sambönd oftar en ekki fyrir lausn mála. Þá er ekki óalgengt að ræðismenn séu vel stæðir. „Það er ákveðin viðurkenning og jafnvel upphefð fólgin í því að vera fulltrúi erlends ríkis en mín tilfinning er samt sú að menn taki þetta samt fyrst og fremst að sér af greiðvikni og umhyggju fyrir náunganum,“ segir Jóhann. Stig embættisins eru þrjú; aðal- ræðismaður, ræðismaður og vara- ræðismaður. Yfir 40 þúsund Íslendingar eru talin búa erlendis, fyrir utan alla hina sem eru á faraldsfæti. Eitt og annað getur komið upp á og mik- ilvægt að geta leitað á vísan stað, eins og til sendiráðs eða ræðis- manns. Jónína og Jóhann segja mál koma upp á nánast hverjum einasta degi, einhvers staðar. Að þeirra sögn eru smærri mál sem betur fer algengari en stærri, svo sem vand- ræði vegna glataðs eða útrunnins vegabréfs. Þá lendi Íslendingar, eins og aðrir, reglulega í því að fé eða eigum er stolið af þeim. Stærri og tímafrekari mál varða til dæmis slys eða andlát. Fyrir kemur líka að íslenskir ríkisborgarar eru ýmist gerendur eða þolendur í glæpa- málum og lenda jafnvel bak við lás og slá. Af ánægjulegri málum má til dæmis nefna hjónabönd en þegar íslenskir ríkisborgarar ganga að eiga erlenda ríkisborgara hafa ræð- ismenn gjarnan milligöngu varðandi tilskilin leyfi og nauðsynlega papp- íra. Dæmi eru um að kær vinátta hafi tekist með ræðismönnum og fólki sem þeir hafa aðstoðað. Má í því sambandi nefna ræðismann Íslands í Izmir, Esat Kardiçali og eiginkonu hans, Iclal, en þau eru í góðu vin- fengi við fjölskyldu ungs drengs, Daníels Ernis Jóhannssonar, sem þau önnuðust fyrst eftir að for- eldrar hans fórust í bílslysi ytra haustið 2010. Allur gangur er á því hvernig ræðismenn eru valdir til starfa. Sumir gefa sig sjálfir fram, bent er á aðra og utanríkisþjónustan finnur enn aðra að undangenginni leit. Í mörgum tilfellum gengur starfið líka mann fram af manni í sömu fjölskyldunni. Skilyrði er að ræðis- menn séu ekki opinberir starfs- menn í heimalandi sínu enda óheim- ilt samkvæmt alþjóðalögum að vinna fyrir tvö ríki. Starfandi sendi- herra Íslands á viðkomandi svæði reynir yfirleitt að hitta nýtt fólk og leggja mat á hæfi þess. Að lokum þarf að fá samþykki stjórnvalda í viðkomandi ríki. Ræðismenn Íslands ásamt ráðherrum í ríkisstjórn á ráðstefnu í Hörpu haustið 2014. Ljósmynd/Gunnar Vigfússon Í tilefni af ræðismannaráðstefnunni 2014 færðu ræðismenn utanríkisráðuneyt- inu þetta borð sem sett er saman úr viðarbútum hvaðanæva að úr heiminum. 24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 sér af ótta við afskipti lögreglunnar.“ Rétt fyrir brottför var hann svo tekinn í yfirheyrslu og spurður hvers vegna teygst hefði úr dvöl hans í Kína. Þá gat hann framvísað fjölda tölvupósta og smáskilaboða milli þeirra Sy sem skýrðu málið. Var það tekið gott og gilt og maðurinn komst á ráðstefnuna í Manila. Undarleg lögmennska Óvenjulegasta málið sem komið hef- ur til kasta Elizabeth Sy snýst um arf. Eða meintan arf. Íslenskur lög- maður hafði þá samband við hana fyrir hönd umbjóðenda sinna, fullorð- inna barna nýlátins manns. Að sögn lögmannsins var börnunum kunnugt um að faðir þeirra hefði átt aðra fjöl- skyldu í Manila og voru þau að sögn reiðubúin að deila arfinum með hálf- systkinum sínum. Lögmaðurinn gaf Sy upp nöfn hálfsystkinanna en engar kontakt- upplýsingar og bað hana að sann- reyna að þau væru sannarlega börn hins látna. Einn galli var þó á gjöf Njarðar, skjölin sem hann sendi voru augljóslega ófullnægjandi, jafnvel röng. Sy óskaði eftir að fá að hitta börn mannsins á Filippseyjum vegna þessa en þá hætti lögmaðurinn skyndilega að svara og hún hefur ekki heyrt í honum síðan. Heiður að tengjast Íslandi „Þegar ég lít til baka yfir þetta mál skil ég ekki hvers vegna lögmaður, sem átti að kunna vel til verka, bað mig að staðfesta skjöl sem voru aug- ljóslega ekki í lagi. Og það sem meira er, hvers vegna mátti ég ekki boða börn hins látna til fundar við mig á ræðismannsskrifstofunni á Manila, sérstaklega þar sem faðir þeirra var íslenskur og arfur í húfi? Hvernig var þetta mál eiginlega vaxið? Maður spyr sig.“ Það sem Sy segist fá mest út úr hlutverki sínu sem aðalræðismaður er að geta lagt Íslendingum á Fil- ippseyjum lið. Vandamál eins og að tapa vegabréfi eða greiðslukorti geti verið mjög streituvaldandi og tíma- frek. „Vegna sambanda minna hér á Filippseyjum get ég oftar en ekki liðkað fyrir málum og hjálpað til og legg iðulega áherslu á að gera það á sem allra stystum tíma. Það skiptir máli.“ Elizabeth Sy varð loks að ósk sinni árið 2014 þegar hún kom til Íslands. Ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Að vori og hausti. Í fyrra skiptið kom hún ásamt fjölskyldu sinni, þar á meðal tveimur barnabörnum, sem þá voru sex og átta ára. Í seinna skiptið kom hún á þing ræðismanna sem haldið var í Hörpu og um tvö hundr- uð ræðismenn Íslands víðsvegar um heiminn sóttu. Hún kveðst svo sannarlega ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum. „Nátt- úrufegurð Íslands er ótrúleg og þar býr víðsýnt, hæfileikaríkt og úrræða- gott fólk. Það er sannur heiður að tengjast landinu ykkar og ég get ekki beðið eftir að koma aftur að heim- sækja ykkur í framtíðinni.“ Líf og fjör á trúarhátíð í Manila, höfuðborg Fil- ippseyja, nú í janúar. AFP * Fyrir vikið hafðihonum varlakomið dúr á auga, þessar 48 klukku- stundir sem hann var á flugvellinum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.