Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 46
Ræðismenn 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016 Daginn eftir náttúruhamfarirnar mikluí Taílandi jólin 2004 hringdi síminnhjá Mark Viravan, vararæðismanni Íslands í Bangkok. Það var íslenska utanrík- isþjónustan að biðja hann að fara þegar í stað til eyjarinnar Phuket og ganga úr skugga um hvort einhver íslenskur ríkisborgari hefði lát- ist eða slasast í hamförunum. Viravan flaug til Phuket daginn eftir. Hann segir eyðilegginguna sem blasti við aldrei líða sér úr minni og ástandið á staðn- um hafi verið skelfilegt. Hann kom meðal annars inn í hof, þar sem fimm hundruð lík lágu á gólfinu. Vegabréf lágu ofan á brjósti sumra þeirra og Viravan þurfti ásamt fjöl- mörgum öðrum að fara gegnum þau, til að kanna hvort um einhverja Íslendinga væri að ræða. „Þetta var hræðilegt en fólkið hafði, þegar hér var komið sögu, verið látið í þrjá daga,“ rifjar hann upp. Til allrar hamingju týndi enginn Íslend- ingur lífi í hamförunum en þjóðin lá eigi að síður ekki á liði sínu. „Ég var mjög stoltur af Íslendingum þarna en önnur flugvélin sem kom með hjálpargögn til Phuket var íslensk. Ég hitti flugstjórann og fréttamenn sem komu með vélinni. Í byrjun janúar kom svo önnur vél sem flutti slasaða Svía til síns heima. Það var virkilega vel gert.“ Að undirlagi Jóns Sigurðssonar Skömmu fyrir síðustu aldamót flutti íslenskur maður, Jón Sigurðsson að nafni, með sitt haf- urtask til Taílands. Þegar sú staða kom upp að hann þurfti á aðstoð að halda áttaði hann sig á því að enginn ræðismaður var í landinu. Danskur maður hafði gegnt því hlutverki um árabil en var hættur fyrir löngu. Fyrir vikið stakk Jón upp á vini sínum, Chamnarn Virav- an, föður Marks, við íslensku utanríkisþjón- ustuna. Í framhaldinu kom þáverandi sendi- herra Íslands í Kína til Bangkok og hitti þá feðga og mælti með Chamnarn. Árið 2000 var hann svo skipaður aðalræðismaður. Mark var föður sínum innan handar nánast frá fyrsta degi og ári síðar var ákveðið að skipa hann vararæðismann. Hæg voru heimatökin en feðgarnir deila einmitt skrifstofu. Chamnarn er orðinn 84 ára en við góða heilsu. Ræðismannsverk- efnin mæða þó meira á Mark í seinni tíð. Feðgarnir höfðu ekki aðra tengingu við Ís- land en þá að téður Jón Sigurðsson var vinur þeirra. Hann er nú látinn. Viravan segir starfið mjög erilsamt. Inn á borð til hans komi að minnsta kosti þrjú til fjögur mál á viku og jafnvel á hverjum ein- asta degi vikunnar. „Mér skilst að engir ræð- ismenn Íslands séu eins uppteknir og við feðgarnir hér í Bangkok. Hvergi koma upp fleiri mál,“ segir hann. Hjónabönd og skilnaðir Eins og aðrir ræðismenn segir Viravan vega- bréfamál mjög algeng. Fólk hafi ýmist týnt vegabréfum sínum eða þeim verið stolið. Þá MARK VIRAVAN, VARARÆÐISMAÐUR Í BANGKOK Fimm hundruð lík lágu á gólfinu Taílenskir sjálfboðaliðar koma líki fyrir í kistu, fáein- um dögum eftir hamfar- irnar í Asíu um jólin 2004. Manntjón varð mikið. Mark Viravan ásamt föður sínum, Chamnarn Vi- ravan, sem er aðalræðismaður Íslands í Bangkok. Tímafrekasta og flóknasta mál-ið sem ég hef komið að varð-aði íslenskan ríkisborgara sem hnepptur var í varðhald hér í Venesúela að beiðni alþjóðalögregl- unnar, Interpol,“ segir Karel Ben- tata, aðalræðismaður Íslands í Caracas, höfuðborg Venesúela. Hann kveðst hafa heimsótt manninn einu sinni til tvisvar í viku meðan hann var í haldi til að færa honum mat og lyf. „Þess utan þurfti ég að hitta lögmann manns- ins reglulega. Eins yfirvöld hér í Venesúela til að skipuleggja fram- sal hans. Það tók mig um það bil einn og hálfan mánuð að leysa þetta mál.“ Bentata erfði ræðismannsstarfið. Faðir hans, dr. Victor Bentata, gegndi því frá því um miðjan átt- unda áratuginn fram til ársins 2004, að hann féll frá. Sonur hans hafði raunar hlaupið reglulega í skarðið áður enda ferðaðist faðir hans mik- ið seinustu árin sem hann lifði. Karel Bentata var skipaður ræð- ismaður 2004 og aðalræðismaður 2014. Ekki tímafrekt Á heildina litið segir Bentata starf- ið ekki tímafrekt, eitt til fjögur mál komi til hans kasta á ári hverju og langt geti liðið á milli mála. Strangt til tekið starfar hann bara í Vene- súela en eigi að síður hafa mál sem komið hafa upp í Kólumbíu og á eyjunum í Karíbahafinu lent á hans borði. Algengasta viðfangsefnið er að gefa út neyðarvegabréf vegna þess að viðkomandi hefur annaðhvort týnt vegabréfinu sínu eða því verið stolið af honum. Hann hefur einnig verið beðinn um að framlengja gild- istíma vegabréfa og útvega fólki flugmiða úr landi. Þá berast honum reglulega fyrirspurnir frá fólki í heimalandinu sem hefur áhuga á að búa og starfa á Íslandi. Óvenjulegasta málið sem Bentata hefur fengist við snerist um Íslend- ing sem kom staurblankur til Vene- súela siglandi á bát. „Það tók um það bil mánuð að snúa honum aftur til Íslands og á endanum borgaði ég brúsann, þar sem aumingja maðurinn átti enga peninga.“ Spurður hvað hann fái út úr starfinu úr því það er ekki launað svarar Bentata: „Það gerir manni kleift að setja upp annan hatt stöku sinnum og kynnast nýju fólki. Þess utan er því ekki að neita að það er ákveðin mannvirðing í því fólgin að vera aðalræðismaður.“ Bentata hefur margoft komið til Íslands ásamt eiginkonu sinni, Norelys. Þau koma á fjögurra ára fresti til skrafs og ráðagerða í utan- ríkisráðuneytinu og nýta tækifærið til að heimsækja fjölmarga vini sína og ferðast um landið. Gönguferðir vítt og breitt eru í miklu uppáhaldi og nú eru þau að undirbúa að fara hringinn kringum landið á vél- hjólum. Væntanlega sumarið 2017. Ísland á topp tíu Þeim þykir ekki síðra að slaka á með góðum vinum og bregða sér jafnvel á veitingahús, sem þau segja yfirleitt í háum gæðaflokki hér á landi. „Ísland hefur alltaf heillað mig upp úr skónum,“ segir Bentata. „Bæði lífsgæðin og náttúra lands- ins. Ég myndi ekki hika við að segja að Ísland væri á topp tíu yfir þau lönd þar sem best er að búa í heiminum. Á móti kemur að mörg- um Íslendingum bregður í brún þegar þeir koma til Venesúela, lífs- skilyrðin eru svo miklu lakari hérna. Við hjónin eigum marga frá- bæra vini á Íslandi, gestrisið og vingjarnlegt fólk með afbragðsgott skopskyn.“ Til að draga þetta saman segir hann: „Við elskum Ísland vegna náttúrunnar, ómengaðs loftsins, dásamlegs vatnsins, útivistarinnar og alls þessa vingjarnlega fólks.“ KAREL BENTATA, AÐALRÆÐISMAÐUR Í CARACAS Íslendingur eftir- lýstur af Interpol Fólk á gangi fyrir utan þinghúsið í Caracas, höfuðborg Venesúela. AFP Karel Bentata borgaði einu sinni fyrir blankan Íslending heim. *... á endanumborgaði égbrúsann, þar sem aumingja maðurinn átti enga peninga.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.