Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Qupperneq 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Qupperneq 51
24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Ghadda Samman er fædd í Da- maskus 1942, afkastamikill, virtur en umdeildur sýrlenskur rithöfundur og blaðamaður. Hún hefur sent frá sér á fimmta tug bóka af ýmsu tagi. Sögusvið Beirut Nightmares er borg- arastyrjöldin í Líbanon. Sögu- maðurinn er fastur í íbúð sinni í tvær vikur vegna ástandsins en notar tímann til að skrifa. Samman fjallar um áhrif ófriðarins á samfélagið og um fáránleika átaka vegna mismun- andi trúðarskoðana fólks, eins og það var orðað í kynningu á bókinni á sínum tíma. Bókin kom fyrstu út á arabísku en hefur verið þýdd á fjölda tungumála, m.a. ensku, þýsku, frönsku, ítölsku og rússnesku. Martraðir í Beirút David heitinn Bowie hafði yndi af bókum og þakkaði foreldrum sínum mjög fyrir að kveikja áhuga hans snemma. Hann sagði að einn vendi- punkta í lífinu hefði verið þegar hann las Allen Ginsberg og Jack Keroua sem unglingur. Hann sagðist, fyrir nokkrum árum, slaka best á með því að setjast niður með góða bók í hönd. Vika var vel heppnuð, að hans sögn, læsi hann þrjár til fjórar bækur. Rokkgoðið safnaði bókum um árabil og þegar hann lék í kvikmyndinni The Man Who Fell to Earth, í Mexíkó 1976, hafði hann með sér 400 bækur! Reyndar ekki til að lesa heldur sagðist hann hafa umgengist býsna vafasamt fólk í New York á þeim tíma og óttaðist að það myndi stela bókum úr safninu! Eftir þetta tók Bowie með sér gífurlegt magn þegar hann fór í tónleikaferðalög. Átti sérstaka skápa, nokkurs konar ferðabóka- safn, þannig að hann hefði alltaf út nógu að velja. David Bowie var mikill lestrarhestur. AFP BOWIE VAR BÓKAORMUR 70 ár í Dalnum, um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi og verk hennar, er heiti á námskeiði sem verður í Endur- menntun Háskóla Íslands þrjú mið- vikudagskvöld í mars. Það verður fjallað um rithöfundinn Guðrúnu frá Lundi, verk hennar og áhrif á marg- víslegan hátt, en á þessu ári eru 70 ár frá því fyrsta bindi Dalalífs kom út. Sú fræga og víðfeðma skáldsaga markaði skil í íslenskri bókmennta- og menn- ingarsögu hvað vinsældir og efnistök varðar en átti ekki upp á pallborðið hjá öllum. „Hvað gerði það að verkum að kerlingin mátti ekki skrifa í friði á 6. og 7. áratugn- um? Í hverju lá hættan?“ er spurt á vef Endurmenntunar. Farið verður yfir æviferil Guðrúnar Árnadóttur frá Lundi og bókin Afdalabarn tekin sérstaklega fyrir. Hún var endurútgefin árið 2014 en kom fyrst út 1950. Þátttakendur lesa söguna og ræða efni hennar. Kennari á námskeiðinu er Marín Guðrún Hrafnsdóttir, sem er með MA-próf í bók- menntum frá háskólanum í Leeds og er langömmubarn skáldkonunnar. Gestafyrirlesari verður Kristín Sigurrós Einarsdóttir blaðamaður, sem í sumar bauð upp á nokkrar ferðir þar sem farið var um slóðir Guðrúnar frá Lundi í Skagafirðinum. DALALÍF Í 70 ÁR Skáldkonan Guðrún Árnadóttir frá Lundi árið 1949. Rúmlega tvítug sýrlensk kona, Sara Azmeh, fluttist til Noregs fyrir tveimur áratugum sem flóttamaður frá Sýrlandi þar sem hún er fædd 1973 og upp- alin. Síðan hefur hún búið í landi frænda vorra, þykir beitt- ur rithöfundur og dálkahöf- undur á dagblaðinu Aften- posten. Sara er transmaður og heitir nú Sara Mats Azmeh Rasm- ussen og er mikill baráttu- maður fyrir auknum mannrétt- indum hvarvetna. Skyggeferden er sjálfs- ævisöguleg skáldsaga þar sem höfundurinn varpar ljósi á sýr- lenskt samfélag þegar hann var að alast þar upp, gríðarlega þrá fyrir frelsi og í raun það ferða- lag höfundar sem staðið hefur yfir allar götur síðan. Bókin kom fyrst út í Noregi 2012 og var fyrsta bók höfundar. Af mikilli þrá fyrir frelsi Sara Azmeh Rasmussen Heldur rýr safnkostur SÝRLAND ÓVÍSINDALEG SKOÐUN, Í TILEFNI KOMU HÓPS SÝRLENSKRA FLÓTTAMANNA TIL LANDSINS Í VIKUNNI, LEIÐIR Í LJÓS AÐ TVÆR BÆKUR ÞAR- LENDRA RITHÖFUNDA ERU TIL Á BÓKASAFNI Á ÍSLANDI. ÖNNUR, BEIRUT NIGHTMARES EFTIR GHADA SAMMAN, Á BORGARBÓKASAFNI Í GRÓFINNI, HIN Í NORRÆNA HÚSINU; SKYGGE- FERDEN EFTIR SARA AZMEH RASMUSSEN SEM BÚIÐ HEFUR Í NOREGI UM ÁRABIL. Þegar hefur aragrúi bóka komið út um harmleikinn í Sýrlandi sem hófst 2011 og fjölmargar er hægt að kaupa á ýmsum vefsíðum á netinu. Í einni, sem kom út 2014 og mynd er af hér til hliðar, er að finna fjölda greina sem birtust í breska dag- blaðinu The Independent á árunum 2011 til 2014, eftir þekkta blaða- menn á borð við Patrick Cockburn, Robert Fisk og Kim Sangpupta. Fjöldi bóka um borgarastríðið Sýrlendingurinn Ali Ahmad Said Esber, sem notar rithöfundarnafnið Adunis, er eitt allra virtasta ljóðskáld arabaheimsins. Hann hefur í mörg ár verið orðaður við Nób- elsverðlaunin en reyndar ekki hlotið. Eftir að Adunis fékk þýsku Goethe- verðlaunin 2011 var hann talinn líklegastur til að hljóta Nóbelinn en sænska ljóð- skáldið Tomas Tranströmer varð fyrir val- inu. Síðan hefur Adonis unnið að því að koma Tranströmer á framfæri í arabalönd- unum og kom iðulega fram með honum. Esber er fæddur 1. janúar 1930 og er því nýorðinn 86 ára. Hann flýði frá Sýrlandi 1956 og settist að í Beirút, en hefur búið í París frá 1975. Adunis lengi verið orðaður við Nóbelinn BÓKSALA 14.-20. JAN. Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 DauðaslóðinSara Blædel 2 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir 3 Mitt eigið HarmagedónAnna Heiða Pálsdóttir 4 Mínímalískur lífsstíll- það munar um minna Áslaug Guðrúnardóttir 5 Þýska húsiðArnaldur Indriðason 6 SogiðYrsa Sigurðardóttir 7 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir 8 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson 9 Fram hjáJill Alexander Essbaum 10 Almanak Háskóla Íslands 2016Þorsteinn Sæmundsson /Gunnlaugur Björnsson Íslenskar kiljur 1 DauðaslóðinSara Blædel 2 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir 3 Fram hjáJill Alexander Essbaum 4 SjóræninginnJón Gnarr 5 Britt - Marie var hérFredrik Backman 6 Spámennirnir í BotnleysufirðiKim Leine 7 HrellirinnLars Kepler 8 Svo þú villist ekki í hverfinu hérnaPatric Modiano 9 Víga-Anders og vinir hansJonas Jonasson 10 DNAYrsa Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.