Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 12
Þ
egar nægilega margir hafa orðað
forsetaframboð við tiltekinn ein-
stakling og jafnvel skorað á hann
eða hana opinberlega er líklegra
að viðkomandi fari fram. Líklegt
verður að teljast að í forsetakosningunum
framundan verði mikilvægt fyrir frambjóð-
endur að kunna að „koma fram“ á sam-
félagsmiðlum ekki síður en í raunheimum.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir fram-
kvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, telur að fram-
bjóðendur í þessum kosningum þurfi líklega
að kynna sig á mörgum miðlum.
„Bæði í forsetakosningum og næstu rík-
isstjórnarkosningum munu samfélagsmiðlar
spila stórt hlutverk. Ef þú ætlar að ná til
yngri hópa verðurðu að fara þessa leið.“
„Periscope-kosningar“
í Bandaríkjunum
Hún telur að Facebook og Twitter skipti
máli en spáir því að frambjóðendur þurfi líka
að læra að nýta sér fleiri miðla. „Við munum
sjá frambjóðendur nýta sér Snapchat líka til
að ná enn yngri hópum. Þetta verður algjört
lykilatriði í kosningunum, að ná til fólks á
sem flestum miðlum,“ segir Ragnheiður og
nefnir einnig sem dæmi myndaforritið In-
stagram, myndbandaforritið Vine og svo
Periscope.
Síðastnefnda smáforritið gerir notendum
kleift að streyma efni „í beinni“ úr símanum.
Í Bandaríkjunum er talað um að kosning-
arnar 2008, þegar Barack Obama komst til
valda, hafi verið Facebook-kosningar en for-
setakosningarnar 2016 verði hins vegar Per-
iscope-kosningar því frambjóðendur noti for-
ritið í auknum mæli til að
koma boðskap sínum á
framfæri og miðla efni til
kjósenda á sínum eigin
forsendum.
Áskorendasíður
farnar af stað
Þónokkrar síður hafa farið
af stað á Facebook þar
sem skorað er á fólk að
bjóða sig fram til forseta.
Fljótt á litið virðast tvær
áskorendasíður hafa flesta
fylgjendur, síður sem
skora annars vegar á
Andra Snæ Magnason og
hins vegar á Höllu Tóm-
asdóttur að gefa kost á
sér.
Í byrjun desember á
síðasta ári fór í loftið
Facebook-síða undir
heitinu „Við skorum á
Höllu Tómasdóttur í for-
setaframboð 2016.“ Rúm-
lega 1.400 manns virðist líka við síðuna ef
marka má nýjustu talningu.
Halla svaraði því til að það væri ekki auð-
velt að svara slíkri áskorun og að hún þyrfti
að gefa sér tíma í að hugsa og ræða við sína
nánustu áður en hún segði af eða á.
Fleiri eru kallaðir til. Í byrjun nóvember
var síðan „Við skorum á Andra Snæ Magna-
son að bjóða sig fram til forseta“ sett af stað
á Facebook. Nærri 3.000 manns líkar við þá
síðu.
Í samtali við mbl.is
snemma í desember sagði
Andri Snær það vera fal-
legt að vita til þess að fólk
treysti honum í þetta og
bætti við að hann teldi það
skyldu sína að íhuga fram-
boð alvarlega.
En hvaða þýðingu hafa
þessar síður og er hægt að
lesa eitthvað um mögulegt
gengi viðkomandi út frá
fjölda þeirra sem gera
„læk“ við síðuna?
Ragnheiður segist telja
afar erfitt að segja til um
það enn sem komið er.
„Ég held þó að þeir sem
eru að íhuga framboð ættu
að skoða sérstaklega
hraðann á „lækunum“ því
hann gæti sagt meira til
um mögulegt fylgi en
endilega fjöldi þeirra. Svo
gengur þetta auðvitað út á
að ná lykilfólki í hópinn,
einstaklingum sem eru með stóran vinahóp
og margir fylgja.“
Halldóra vildi ekki fram
þrátt fyrir áskoranir
Halldóra Geirharðsdóttir er einn þeirra ein-
staklinga sem skorað hefur verið á að bjóða
sig fram til forseta með því að kalla eftir
kröftum hennar gegnum áskorendasíðu á
Facebook. Halldóra hélt magnaða ræðu við
afhendingu Grímuverðlauna síðastliðið sumar
og í ágúst var stofnuð Facbook-síða undir
heitinu „Við skorum á Halldóru Geirharðs að
bjóða sig fram sem forseta“ en alls líkar
tæplega 1.200 manns við þá síðu. Í samtölum
við fjölmiðla í ágúst tók Halldóra þessu frek-
ar á léttu nótunum, en útilokaði þó ekki
framboð.
Vonir stuðningsmanna Halldóru urðu þó
að engu í byrjun desember þegar Halldóra
steig fram í Kastljósi þar sem hún flutti
stuttan pistil og tók af allan vafa, hún ætlaði
sér ekki í framboð til forseta.
Áskorendasíða eða -hópur á Facebook
gæti mögulega gefið einhverjum hugmynd
en það er ekki þar með sagt að allir svari
kallinu.
Forseti margra miðla
FRAMBOÐ TIL FORSETA ÞURFA EKKI ENDILEGA AÐ HEFJAST Á ÞVÍ AÐ EINSTAKLINGUR GEFI KOST Á SÉR. FORLEIKURINN AÐ
FRAMBOÐI FELST OFT Í ÞVÍ AÐ SKORAÐ ER Á EINHVERN AÐ BJÓÐA SIG FRAM, GJARNAN Á SAMFÉLAGSMIÐLUM. Í ÞESSUM
KOSNINGUM VERÐUR NAUÐSYNLEGRA EN NOKKRU SINNI FYRR AÐ HAFA VALD Á TÆKNINNI OG KUNNA Á MARGA MIÐLA.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Stuðningsmenn máta gjarnan frambjóðendur við stól forseta með því að stofna áskorendasíður á Facebook. Til að ná til yngri kjósenda þarf þó að huga að fleiri samfélagmiðlum.
Morgunblaðið/Ómar
Halla
Tómasdóttir
Ragnheiður H.
Magnúsdóttir
21
vika til kosningaAndri Snær
Magnason
Halldóra
Geirharðsdóttir
Forsetavaktin
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016