Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Síða 32
F imm ára leiðangri geimfarsins Júnó til Júpíters lýkur nú í ár og er niðurtalning hafin á helstu vígstöðvum áhugafólks um geimvísindi. Rúmlega 150 dagar eru í lendingu en ómönnuðu geim- farinu var skotið á loft í ágúst 2011. Júnó er hluti af New Frontiers- áætlun Nasa en hluti af þessari áætlun eru könnunarleiðangrar eins og New Horizons-geimfarið fór, sem flaug framhjá Plútó á síðasta ári. Ferð geimfarsins Júnó til Júpíters hefur gengið samkvæmt áætlun en það þurfti að leika miklar kúnstir til að koma því til Júpíters þar sem geimfarið er þungt og ekki er til eldflaug sem getur skotið því beina leið til plánetunnar. Fyrst fór það því á braut um sól og fór framhjá jörðinni árið 2013 og jók hraðann með því að fá hverfi- þunga. Svo öflugt var þetta að það hægði um stund á snúningi jarðar. Markmið ferðarinnar er að reyna að fá svör við spurningum eins og hve mikið vatn og súrefni er á Júpí- ter og hvenær hún varð til. Sökum þess hve stór Júpíter er hefur plán- etan mikil áhrif á sólkerfi okkar og að kynnast Júpíter betur getur haft mikil áhrif á vitneskju okkar um sól- kerfið í heild og eru þetta því taldar tímamótarannsóknir. Nokkrar góðar vefsíður hafa verið settar upp til að fylgjast með Júnó og ein sú besta er missionj- uno.swri.edu. Þar er hægt að lesa sér til um allt sem tengist geim- farinu, tilgangi ferðarinnar og mik- ilvægi hennar, horfa á heimild- armyndir og allar ljósmyndir frá könnun Júnó munu birtast þar jafn- óðum og þær fara að berast í sum- ar. Júnó hefur nú þegar sett merki- legt met, 13. janúar síðastliðinn, þegar geimfarið sló met Rosetta- geimfarsins með því að fljúga 793 kílómetra með sólarrafhlöðum. Aldr- ei áður hefur geimfar sem knúið er áfram af sólarrafhlöðum flogið svo langa vegalengd. Til að Júnó geti starfað við Júpíter, þar sem sólar- ljósið er 27 sinnum daufara en í innra sólkerfinu, eru þrjár stórar einingar af sólarrafhlöðum. Í júlí hefst svo 20 mánaða rannsókn- arvinna á efni og andrúmslofti plán- etunnar en það er fimm mánuðum lengri dvöl en áætlað var í upphafi. Fleiri ferðir eru áætlaðar til Júpí- ters en þær ferðir munu byggjast á gögnum Júnó. Þar af eru það þrjú afar áhugaverð tungl Júpíters sem áætlað er að kanna árið 2022. Júnó nálgast Júpíter AFP AFP FIMM ÁRA BIÐ ER SENN AÐ LJÚKA ÞEGAR ÓMANNAÐA GEIMFARIÐ JÚNÓ KEMST Á SPORBAUG UM JÖRÐU NÚ Í SUMAR. JÚNÓ SLÓ MET UM MIÐJAN MÁNUÐINN ÞEGAR ÞAÐ VARÐ ÞAÐ GEIMFAR SEM HEFUR FLOGIÐ HVAÐ LENGST Á SÓLARORKU. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Þessa mynd lét Nasa útbúa en hún sýnir hvernig geim- farið mun vera þegar það fer á sporbaug um Júpíter. Júnó geimfarinu var skotið á loft með Atlas V eld- flaug í ágúst 2011 og er fimm ára ferðalagi geim- farsins að ljúka. 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016 Græjur og tækni Verið velkomin í glæsilega verslun okkar Laugaveg 99 - S. 777 2281 (gengið inn frá Snorrabraut) Útsala 20-40% afsláttur af völdum vörum 10% afsláttur af öðrum vörum meðan á útsölu stendur Concept aff.is Í dag er hægt að kaupa öryggiskerfi fyrir heimilið sem maður vaktar sjálfur. Eitt þeirra er Withings Home frá Apple en í því eru margskonar skynjarar sem senda upp- lýsingar og myndir í símann. Kerfið virkar einnig með Apple-úrinu. Öryggiskerfið í símann

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.