Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Side 33
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Tækni í þína þágu
hitataekni.is
Bjóðum upp á fjölbreyttan
búnað svo sem loftræsingar,
hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað
og stýringar.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
AFSLÁTTUR Á EDDUNA Í AUSTURBÆ
MOGGAKLÚBBURINN
Almennt miðaverð 4.900 kr.
Moggaklúbbsverð 3.500 kr.
Hægt er að kaupa miða á afslætti á midi.is og í miðasölu
Austurbæjar gegn framvísun Moggaklúbbskortsins.
Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13:00-16:00.
Hvernig fæ ég afsláttinn?
Farðu inn á midi.is og leitaðu að viðburðinum „Eddan“, veldu þér
miða til kaups og í reitinn „Ertu með afsláttarkóða“ í skrefi #3 sláðu
þá inn eftirfarandi: mbl2016. Smelltu á „Virkja“ og þá sérðu að
afslátturinn kemur inn um leið.
ATH: Staðfestið EKKI greiðslu fyrr en afsláttur
er sýnilega orðinn virkur.
* Framfarir í tækni veita okkur þægindi og tækifæri til að látaokkur líða betur. En það sem heita þægindi hjá fyrstu kyn-slóðinni, sem reynir það, verður nauðsynleg krafa hjá þeirri næstu.
Nafnlaus grein í Fálkanum, árið 1937.
Tækninýjungar ársins 2016 snúast ekki allar um snjall-
síma, spjaldtölvur og armbönd. Í júní munu nefnilega
svokölluð snjallhnífapör koma á markað og taka öll
hin vinsælu mataræðisöpp, svo sem MyFitnessPal,
skrefinu lengra.
Snjallfyrirbæri þetta kallast „Spün“ og samanstendur
af snjallgaffli og snjallskeið sem notuð eru til að snæða
allar máltíðir með. Með samnefndu smáforriti í síman-
um; Spün, skynja hnífapörin fyrir þann sem snæðir
hversu mikið hann er búinn að borða og með hjálp
appsins er þá reiknað út hversu margar hitaeiningar
eru í þeim mat. Sá útreikningur uppfærist með hverj-
um viðbótarmunnbita. Þá reiknar forritið líka út
hversu hratt viðkomandi er að borða.
Í byrjun máltíðar skal taka mynd af matnum, segja
hversu mikið maður ætlar að borða af honum, með
því einfaldlega að draga hring utan um það magn af
matnum á disknum sem þið teljið æskilegt. Appið ber
yfirleitt sjálft kennsl á það hvaða matur er á disknum
en svo er líka hægt að stimpla það sérstaklega inn.
Svo má setjast að snæðingi.
Allir útreikningar, á hitaeiningum og þyngd birtist
jafnóðum á símaskjánum og því auðvelt að fylgjast
með. Sitji maður með einhverjum til borðs og vilji
eyða tímanum frekar í að spjalla en glápa á símann er
hægt að stilla appið þannig að það lætur vita með
hljóði eða titringi ef máltíðin er að fara úr böndunum
og hitaeiningarnar komnar yfir æskilegt magn.
Forritið leggur þá til að stöðva átið og segir að nú
sé komið nóg. Eða þá að það lætur þig vita að þú
hafir annars ekki pláss fyrir eftirrétt.
Appið kemur að auki með vinsamlegar ábendingar
um hvernig mætti setja fæðuna betur saman, hvort
það vanti grænmeti, ávexti, kolvetni, prótín eða fitu í
máltíðina til að hún sé sem best.
Hægt er að taka gaffal- og skeiðarhausinn af og
þrífa í uppþvottavél eða bara skola undir vatni. Einnig
er hægt að fá einnota gafal- og skeiðarhausa til að
henda svo í ruslið og þannig auðvelt að fara með
Spün á veitingastaði.
SPENNANDI NÝJUNGAR Á ÁRINU
Snjallhnífapör á leiðinni
ÞEGAR EINHVER HÉLT AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI
LENGUR HÆGT AÐ GERA TILVERUNA
SNJALLARI ERU TÆKNIFRÖMUÐIR BÚNIR
AÐ ÞRÓA SVOKÖLLUÐ SNJALLHNÍFAPÖR.
Spün er talið munu
marka tímamót í lífi
þeirra sem þurfa að
fylgjast með vigtinni.
Mörgum þykir það sem er ókeypis vera það besta við netið. Því
fólki má benda á ókeypis kennslustundir á vegum Khan Academy,
um hin ýmsu viðfangsefni. Slóðin er khanacademy.org.
Ókeypis nám á netinu
Á annað þúsund smáforrit í Apple
Store eru berskjölduð fyrir tölvu-
hökkurum samkvæmt nýrri rann-
sókn hins leiðandi netöryggisfyr-
irtækis FireEye.
Telegraph greindi meðal annars
frá þessari rannsókn í vikunni en í
stuttu máli snýst málið um að
hakkarar geta nýtt sér glufu á
appinu til að komast meðal annars
í allar ljósmyndir á símanum og
hljóðnemann.
Talið er að þessi smáforrit sem
bjóða þessari hættu heim séu eins
og stendur 1.220 talsins en Fire-
Eye hefur ekki nefnt þau öpp sem
eru hættuleg hvað þetta varðar.
Engu að síður hafa þeir gefið
það út að til að forðast svona þurfi
að hafa nokkur grundvallaratriði í
huga. Þau eru að hlaða aðeins nið-
ur smáforritum sem fólk þarf
virkilega á að halda, sem það
þekkir og sem það treystir. Og
forðast öpp sem biðja um yfir-
gripsmikinn aðgang að upplýs-
ingum á símanum til að hægt sé
að hlaða þeim niður.
Þess má geta að þrátt fyrir
þetta segja þeir hjá FireEy að
Apple Store sé með sterkar ör-
yggisvarnir og sé mun öruggari en
Google Play Store.
EKKI HLAÐA NIÐUR UMHUGSUNARLAUST
Það er góð regla að forðast öpp sem
vilja fá aðgang að miklum upplýs-
ingum í snjalltækinu.
Varasöm smáforrit
í Apple Store
Notendur Facebook
hafa lengi rætt það sín
á milli að það vanti
fleiri möguleika til að
bregðast við stöðuupp-
færslum á samfélags-
miðlinum sem birtist í
efstu línu, það er að
segja að það sé hægt að
gera eitthvað annað en
að ýta á þumalinn - „lík-
ar við“. Til dæmis
mætti vera takki með
þumli sem vísi niður þegar fólki mislíki.
Facebook virðist vera að bregðast nokkurn veginn við þessu en brátt verð-
ur hægt að gera merki sem tákna ást, hlátur, undrun, leiða og reiði. Flest
þessara nýju tákna eru í formi broskarla. Þessi er viðbót er væntanleg á allra
næstu vikum að sögn Marks Zuckerberg.
MANNLEG SAMSKIPTI Í NETHEIMUM
Viðbrögð á Facebook
Enn vantar „dislike“-
takkann á Facebook en
nýja viðmótið er í áttina.