Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 34
H vernig myndir þú lýsa fatastílnum þínum? Stíllinn minn er leif- ar af stíl hjólabrettastráks sem horfir á rappvídeó. Ég sendi systrum mínum oft myndir af mér í dressinu sem ég vel mér áður en ég spila á tónleikum. Þær eru með miklu betra auga en ég í svona málum og ef ég fæ já frá þeim fer ég út í óvissuna í flottum föt- um. Hvað er það sem heillar þig við tísku? Ég fylgist voðalega lítið með tískuheiminum sjálfum. Ég er ekki með á hreinu hvað er nett að sögn tískusérfræðinga. Ég get þó ekki neitað að maður verður auðvitað fyrir áhrifum frá tísku sem er í kringum mann en ég reyni þó að forðast það að líta út eins og afrit af hjörðinni. Áttu þér uppáhaldshönnuð? Ég þekki ekki marga hönnuði en ég held upp á ákveðnar týpur af skóm. Það er maður sem heitir Tin- ker Hatfield sem hannaði flesta skóna sem eru í uppáhaldi hjá mér svo ég ætla að nefna hann sem uppáhaldshönnuðinn minn. Hvað er uppáhaldstískan þín þessa stund- ina? Mér finnst gaman að fara í allt hvítt. Hvíta skyrtu, hvítan bol, hvítar buxur og hvíta skó. Ég á rosalega dökkan fataskáp og finnst þægilegast að vera í svörtu svo mér finnst gaman að fara út fyrir normið öðru hvoru og fara í andstæðu við það sem ég klæðist dags daglega. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum? Ekki vaða bara í það sem er vinsælt þessa stundina. HEITT/KALT dálkar eru algjört kjaftæði. Ekki láta aðra segja þér í hverju þú átt að vera. Mundu að allt sem er í gangi kom út frá því að einhver þorði að stíga út fyrir rammann og prófa nýja hluti. Svo er auðvitað lykilatriði að líða vel í föt- unum sem maður kaupir sér. Hvað kaupir þú þér alltaf þó að þú eigir nóg af því? Ég kaupi alltof mikið af skóm. Ég á 14 pör af skóm sem ég rótera og nota eftir því í hvernig stuði ég er. Geymsl- an er svo full af gömlum skóm sem ég er orðinn leiður á. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Arn- ar Freyr í Úlfur Úlfur er með flottan stíl. Stíllinn hans er á einhverskonar millistigi á að vera stíll rokk- ara, rappara og menningarfretara á leið í mat- arboð hjá tengdó. Ég held að það spili reyndar líka inn í hvað hann er með fallegt þykkt hár og góða skeggrót. Arnar er sexí gaur. Hverju myndir þú aldrei klæðast? Þessum litlu krumpuderhúfum sem eru svo vinsælar núna. En það er bara ég að vera gamall fretari sem skilur ekki. Áttu þér uppáhaldsflík? Uppáhaldsflíkin mín þessa stundina er svartar Nike tech fleece- buxur sem ég á. Þægilegar joggingbuxur sem virka bæði heima í kósý og lúkka líka milljón úti á götu. SYSTURNAR VERÐA AÐ SAMÞYKKJA FÖTIN Gauti segist eiga rosalega dökkan fataskáp og finnst þægilegast að vera í svörtu, svo honum finnst gaman að fara út fyrir normið og klæðast stundum öllu hvítu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Forðast að líta út eins og afrit af hjörðinni RAPPARINN GAUTI ÞEYR MÁSSON SEM GENGUR OFT UNDIR NANFINU EMMSJÉ GAUTI ER ALLTAF SVALUR TIL FARA. GAUTI Á GRÍÐARLEGT SAFN AF SKÓM EN HANN HEFUR JAFNFRAMT GAMAN AF ÞVÍ FARA ÖÐRU HVORU ÚT FYRIR NORMIÐ Í FATAVALI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Nike tech fleece eru bæði flottar og þægilegar. Arnar Freyr Frostason úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur er með flottan stíl. Air Jordan IV er meðal skó- paranna sem Tinker Hatfield er þekktastur fyrir. Skórnir eru frá árinu 1989. Brot af glæsilegu skósafni Gauta. Tíska *Í mars 2016 kemur á markað snyrtivörulínafrá vinsælu sænsku keðjunni Monki sem er íeigu H&M keðjunnar. Þetta eru förðunarvörursem tóna fullkomlega við stíl verslunarinnarsem er ákaflega nýtískulegur og svalur. Förð- unarvörurnar eru hannaðar með ákveðna leikgleði í fyrirrúmi. Monki kynnir nýja snyrtivörulínu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.