Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 41
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 isráðherra er með þessi landamæravörslumál á sinni könnu og mikilvægt að fara vandlega yfir alla kosti og galla í stöðunni. Ef við hættum í Schengen verða menn að gera sér grein fyrir því hvað það gæti þýtt. Það gæti þýtt takmörkun á ferðafrelsi Íslendinga og haft áhrif á túrisma. Sumir segja að við töp- um ákveðnum upplýsingum úr sameiginlegu kerfi Schengen og ég hygg að það sé rétt.“ Hver höndin upp á móti annarri – Flóttamannavandinn sem kominn er upp í heiminum er án fordæma. Hvað er til ráða? „Búið er að gera mörg mistök í þessum flóttamannamálum og það hefur til dæmis sýnt sig að Evrópusambandið er algjörlega vanbúið til að takast á við vandamál af þessu tagi. Þar er hver höndin upp á móti annarri. Vandamálið er mjög stórt og alltaf gott að vera vitur eftir á en staðreyndin er samt sú að ýmsir bentu á það fyrir einhverjum árum að hætta væri á að þessi staða gæti komið upp. Ég held líka að talað hafi verið óvar- lega þegar nánast var auglýst að allir flótta- menn væru velkomnir til ríkja Evrópusam- bandsins, hvort sem átt var við sambandið sem heild eða einstök ríki. Ríkin hafa ekki ráðið við aðstæður í kjölfarið. Hin varanlega lausn er auðvitað að koma á friði í þessum ríkjum, þaðan sem straum- urinn liggur, svo sem Sýrlandi og Írak. Þangað til það tekst er mikilvægt að reyna að gera líf þessa fólks bærilegt og helst ná- lægt þeirra heimkynnum, þar sem það vill að sjálfsögðu helst vera. Þetta er mjög erfitt eins og staðan er í dag. Við megum heldur ekki gleyma því að við erum bara með brot af flóttamannavand- anum í heiminum í fanginu núna. Það eru sextíu milljónir manna á flótta af öllum mögulegum ástæðum.“ – Hvert er hlutverk Íslands í þessu sam- bandi? „Ísland þarf að sjálfsögðu að taka þátt í að hjálpa þessu fólki. Það er hins vegar langt til Íslands og tiltölulega fáir flóttamenn sem koma hingað á eigin vegum, þótt hælisleit- endum fjölgi vissulega jafnt og þétt. Þeir eru þó gjarnan frá öðrum ríkjum en þeim sem eiga við mestan vanda að etja. Núna erum við byrjuð að taka við flóttamönnum úr flóttamannabúðum í Líbanon í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna. Það er okkar leið til að létta undir í vandanum. Eins er mikilvægt fyrir okkur að styðja við al- þjóðastofnanir svo hægt sé að sjá flótta- mönnum fyrir mat og drykk meðan þeir eru á vergangi.“ Sætta þarf ólík sjónarmið – Þú nefndir Sýrland. Ástandið þar versnar dag frá degi. Er ekki þörf á róttækum að- gerðum? Og hafa Vesturlönd ekki misst frumkvæðið til Pútíns Rússlandsforseta? „Ég lít ekki svo á að Vesturlönd séu að missa frumkvæðið til Pútíns. Rússar hafa lengi átt hagsmuna að gæta í Sýrlandi og átt í samstarfi við sýrlensk stjórnvöld, þannig að það var bara tímaspursmál hvenær þeir myndu stíga inn í þessa atburðarás. Vandinn er sá að uppi eru ólík sjónarmið um það hvernig framtíð Sýrlands eigi að þróast. Vestrænum þjóðum er meinilla við að þarna sé áfram við völd maður sem beitt hefur fólk sitt miklu harðræði, meðal annars gripið til efnavopna, en Rússar hafa staðið þétt að baki honum. Til að þúsundir til við- bótar týni ekki lífi gæti verið nauðsynlegt að finna einhvern milliveg. Það er að Assad fari frá með einhverjum hætti, mögulega án þess að verða dæmdur. Verði sú ráðstöfun til þess fallin að bjarga mannslífum er vel þess virði að skoða hana vandlega. Ástandið þarna er í einu orði sagt hörmulegt og átakanlegt að horfa upp á þetta. Sýrlandsmálið hefur líka dregið fram í dagsljósið veikleika Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þegar fimm ríki geta óspart beitt neitunarvaldi, að því er virðist stundum í andstöðu við meginhlutverk ráðsins, sem er að stuðla að friði og koma í veg fyrir stríð, þá veltir maður fyrir sér hvort ráðið sé yfir Morgunblaðið/Árni Sæberg * Auðvitað hafði það áhrif á mann að sjá flóttamennina með eigin augum en ákvörðuninum að taka þátt í þessum þvingunum er eigi að síður alfarið tekin með hagsmuni Íslands að leiðarljósi. Mínar tilfinningar koma því máli ekkert við.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.