Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 44
Úttekt Á einum vinsælasta samfélagsmiðli heims, Twit-ter, er skrafað alla daga um hin margvísleg-ustu málefni, og að sjálfsögðu er þar líka talað um Ísland. Allra algengast er að sjá tíst um íslenskt landslag og ferðalög hingað, íslenska hestinn, hvalveiðar, skyr, íslenska tónlist og síðast en ekki síst það sem snýr að tungumálinu. Það er dáðst að því, hlegið, pælt og spekúlerað og á öllum tungumálum veraldar má í hverri viku finna nokkur hundruð tíst er snúa að ein- hverju skemmtilegu sem gaman er að skoða. Enda alltaf gaman að fá athygli „frá útlöndum“. ÍSLENSK TUNGA, FRAMBURÐUR, STAFSETNING OG MERKING EINSTAKRA ORÐA OG FRASA ER DAGLEGT SKEMMTIEFNI ALLS HEIMSINS Á TWITTER. SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS RÚLLAÐI YFIR UMRÆÐUR SÍÐUSTU MISSERANNA OG PIKKAÐI ÚT NOKKUR SKEMMTILEG TÍST. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Tíst um tungumálið Það vekur gjarnan athygli útlend- inga að Íslendingar skuli eiga sér- stakt orð yfir fyrirbærið „glugga- veður“. Twitter er þar ekki undanskilið en með vinsælli tíst- um tengt Íslandi hefur verið þetta bráðsnjalla orð yfir veður sem lít- ur út fyrir að vera hið ágætasta séð út um gluggann; sem sagt fal- legt á að horfa ekki jafngott við að eiga þegar út er komið. Allt frá árinu 2008 hefur þetta orð gengið manna á milli á Twitter og sumir jafnvel velt því fyrir sér hvort Íslendingar hljóti þá ekki að eiga orð yfir önnur fyrirbæri sem enginn annar myndi eiga orð yfir, svo sem orð sem lýsir nákvæm- lega léttinum sem fólk upplifir það kemur heim til sín eftir að hafa verið úti í búð. „Á Íslandi eiga þeir orð yfir veðrið eins og það er í dag: „Gluggaveður“. Fínt að horfa á, ekki að vera úti í.“ Adrienne Green, Baltimore. „Uppáhaldsnýja orðið mitt er „gluggaveður“.“ Jennifer Moragoda, Bandaríkin. „Í gær þurfti ég á orðinu „gluggaveðri“ að halda. Íslensku orði sem við þurfum algjörlega að bæta við í tungumálið.“ Beatriz H. Viloria, Madrid Spáni. „Lítur út fyrir að vera gott veður. Vonandi er það ekki gluggaveður eins og íslenskir vinir mínir myndu kalla þetta.“ Martin Nisbet, Skotlandi. „Gluggaveður – „fönsterväder„... Eins og allt íslenskt veð- ur er býst ég við.“ Androt, Svíþjóð. „Það var hvasst og kalt í dag en sólskin. Strákur sem ég þekki sagði mér að á Íslandi kallaðist þetta gluggaveður.“ Bakurou, Japan. Gluggaveðrið Þótt talsvert fljótlegra sé að grípa til þess að segja Batman hefur íslenska þýðingin „Leðurblökumað- urinn“ verið gjaldgengur kostur í tungumálinu og mikið notað. Þetta er eitt þeirra orða sem vakið hafa athygli á Twitter, ásamt því að Spiderman sé Kóngulóarmaðurinn, og þykir það ólíkt „snyrt- ingum“ ekki skemmtilegt á þann hátt að það sé krúttlegt. Og raunar skilja fáir hvernig það ætti að vera hægt að halda kúlinu og segjast vera leðurblök- umaðurinn. „Í dag lærði ég að á íslensku er Batman „Leðurblökumaðurinn“. Reynið að segja það með Batman-röddinni ykkar. Prófið það núna.“ Kalle Paulsson, Svíþjóð. „Fyrir stærstan hluta heimsins er það „Batman“. Íslendingar segja „Leðurblök- umaðurinn“. Hvernig er ekki hægt að elska þá?“ Michał Nowakowski, Póllandi. „Batman er Leðurblökumaðurinn á íslensku. Batmanhellirinn hlýtur að vera í þessu fræga eldfjalli þarna.“ Specchionero, Rússlandi. „Batman er „Leðurblökumaðurinn“ á íslensku. Það er auðveldara að lýsa bara upp himinninn með Batman-merkinu.“ Patrick von Sychowski, Singapore. „Að því er ég best veit þýðir Leðurblök- umaðurinn leður-blakandi-manneskja.“ Luke A. Rudge, Bretland. „Ég á erfitt með að trúa því að þetta sé einu sinni alvöru orð.“ Lyon Hart of Rivia, Bandaríkjunum. „Leðurblökumaðurinn. Önnur ástæðan fyrir því að ég er þakklátur að búa ekki á Íslandi. (Kuldinn er sú fyrri). Real Rob, Bretlandi. Batman sem Leðurblökumaðurinn Að íslenska þýðingin á orðinu toilet skuli vera snyrting þykir auðsýnilega, af Twitter að dæma, mörgum erlendum ferðalöngum afar fyndið og ólóg- ískt. Þannig birtast reglulega ljósmyndir á samfélagsmiðlinum sem eru gjarnan teknar við komuna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem sýna skiltið sem á stendur: Toilets/Snyrtingar. „Fjandinn hafi það, Ísland. Ég þarf salerni fyrir mannverur. Ég veit ekki einu sinni hvort ég er með jafn marga rassa og „snyrtingar“. Dalek Sex, Bretland. „Elska íslenskuna! Allt hljóm- ar skáldsögulega; Farin á vit ævintýranna á „snyrtingar“. Nell Fallcard, Mexíkó. „Það að salerni séu kölluð „snyrtingar“ á íslensku er ótrúlega gaman.“ Lisa Einerskog, Svíþjóð. „Fyrir mig sem tungu- málanörd gerir þetta orð mig pínu hamingjusama.“ Anne Liljeroth, Svíþjóð. „Get vottað það að við er- um búin að ganga í allar ferðamannagildrur á Ís- landi. Geysir, Bláalónið, Snyrtingar.“ Stian Aleksander, Noregur. „Reykjavíkurflugvellur lítur út eins og hinn feg- ursti listaháskóli og sal- ernin kallast „snyrt- ingar“ svo að ég ætla aldrei að fara héðan. Bless!“ Madeline Wise, New York. „Snyrtingar á klósett- inu? Hreinsa og pússa þig? Vinir Rassálfanna?“ Katarina Fredén, Svíþjóð. Snyrtingar vekja kátínu 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.