Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 46
Dómsmál
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016
U
ndir lok tónleika Lamb of God í
Abaton-tónleikahúsinu í Prag
24. maí 2010 klifraði nítján ára
ungmenni, Daniel Nosek að
nafni, upp á svið en féll aftur
fyrir sig út í salinn og skall harkalega á höf-
uðið í gólfinu. Hann stóð þó upp og naut loka-
andartaka tónleikanna en um það bil hálfri
klukkustund síðar byrjaði hann að kvarta
undan höfuðverk og ógleði. Af ótta við að No-
sek hefði fengið heilahristing hringdu félagar
hans eftir sjúkrabíl og var hann fluttur á nær-
liggjandi spítala. Þar kom í ljós að höf-
uðáverkar Noseks voru lífshættulegir og var
hann því fluttur í skyndi á annan og betri
spítala, þar sem hann gekkst undir tvær að-
gerðir. Allt kom fyrir ekki og Daniel Nosek
lést af sárum sínum.
Lamb of God, sem er bandarískt málm-
band, var ekki kunnugt um málið og hélt
hljómsveitin af landi brott daginn eftir tón-
leikana. Við lögreglurannsókn á málinu vakn-
aði hins vegar grunur um að að söngvari
hljómsveitarinnar, Randy Blythe, hefði hrint
Nosek fram af sviðinu og bæri þar af leiðandi
ábyrgð á dauða hans. Lögregla í Tékklandi
lýsti í framhaldinu eftir Blythe og leitaði til
kollega sinna í Bandaríkjunum en var synjað
um aðstoð. Lögregluyfirvöld vestra hirtu ekki
einu sinni um að gera Blythe viðvart.
Handtekinn við komuna
Söngvaranum brá því heldur betur í brún
þegar hann sneri aftur ásamt hljómsveit sinni
til tónleikahalds í Tékklandi tveimur árum síð-
ar. Lögreglan beið eftir honum á flugvellinum
og setti hann með það sama í gæsluvarðhald
vegna gruns um manndráp af gáleysi. Þar
mátti hann dúsa í fimm vikur. Yrði hann fund-
inn sekur átti Blythe yfir höfði sér allt að tíu
ára fangelsi.
Málið vakti að vonum gríðarlega athygli,
ekki síst í málmheimum. Fjölmargir málsmet-
andi menn lýstu yfir stuðningi við Blythe,
þeirra á meðal Tom Araya úr Slayer og David
Draiman úr Disturbed. Fjölskyldu Blythes
var vitaskuld brugðið og eiginkona hans,
Cindy, heimsótti hann í fangelsið. Við það
tækifæri tjáði hún fjölmiðlum að málið væri
allt hið hræðilegasta en hún tryði á sakleysi
bónda síns. Bróðir Blythes lýsti því yfir að
málatilbúnaðurinn væri galinn og hlyti að
leysast upp í frumeindir sínar.
Það gerðist ekki. Saksóknari vildi að Blythe
sætti fangavist uns niðurstaða dómstóla lægi
fyrir, þar sem hætta væri á því að hann færi
úr landi. Eftir japl, jaml og fuður fékkst hann
loksins leystur úr haldi gegn tryggingu, fimm
vikum eftir handtökuna. Blythe flaug heim til
Bandaríkjanna daginn eftir en lofaði að snúa
aftur kæmi til réttarhalda. Hann væri lista-
maður sem starfaði á alþjóðavettvangi og væri
fyrir vikið í mun að hreinsa nafn sitt.
Ákæra gefin út
Rannsókn lögreglu lauk þremur mánuðum
seinna og eftir að hafa farið yfir málið ákvað
saksóknari í Tékklandi að gefa út ákæru á
hendur Randy Blythe vegna manndráps af
gáleysi. Saksóknarinn sem sótti málið heitir
því viðeigandi nafni Vladimír Mužík.
Blythe stóð við orð sín og sneri aftur til
Prag áður en réttarhaldið hófst í febrúar 2013
enda þótt fjölmargir legðu hart að honum að
fara hvergi. Hann bar vitni fyrsta daginn og
þar kom fram að hann kannaðist ekki við No-
sek og mundi ekki eftir að hafa lent í rysk-
ingum við hann. Blythe mundi þó eftir aðdá-
anda sem hafði í tvígang brotið sér leið upp á
sviðið og í seinna skiptið þótti Blythe hegðun
hans ógnandi. Þess má geta að Blythe notar
gleraugu en tekur þau á hinn bóginn iðulega
niður fyrir tónleika, þannig að hann sér afar
illa frá sér á sviðinu. Blythe gekkst við því að
hafa snúið þennan aðdáanda niður þegar hann
reyndi að nálgast söngvarann áður en aðdá-
andinn stökk sjálfur fram af sviðinu. Tók svo-
kallaða „sviðsdýfu“. Blythe minntist þess líka
að hafa stuggað við aðdáanda, sem hann hélt
að væri þessi sami, með þeim afleiðingum að
hann féll fram af sviðinu. Þetta gerði Blythe í
þeirri trú að múgurinn myndi grípa hann en
aðdáandinn lenti á hinn bóginn í gólfinu. Stóð
samt upp og múgurinn gaf Blythe merki um
að hann væri heill á húfi. Þetta gæti hafa ver-
ið Nosek.
Blythe vitnaði að hann hefði ekki verið und-
ir áhrifum áfengis á tónleikunum og að hann
hefði aldrei neytt fíkniefna.
Átti ekki erindi upp á svið
Blythe staðhæfði að hann hefði sett sig í sam-
band við fjölskyldu Noseks eftir að hann fékk
vitneskju um fráfall hans en fjölskyldan kann-
aðist ekki við það. Hún hefði hvorki heyrt frá
Blythe né neinum á vegum hljómsveitarinnar.
Aðdándinn sem Blythe sneri niður á tón-
leikunum, Milan Porádek, bar vitni fyrir
dómnum. Hann viðurkenndi að hafa verið ölv-
aður og hefði ekki átt erindi upp á svið. Fyrir
vikið hafði hann skilning á viðbrögðum Blyt-
hes.
Hafa ber í huga að Lamb of God er grúv-
málmband en einn kunnasti merkisberi þeirr-
ar stefnu, gítarleikarinn Dimebag Darrell Ab-
bott, var myrtur á sviði með hljómsveit sinni
Damageplan árið 2004 í Columbus, Ohio.
Árásarmaðurinn ruddist upp á sviðið og skaut
hann þrívegis í höfuðið af stuttu færi. Dime-
bag lést samstundis. Hann er þekktastur fyrir
starf sitt með einu vinsælasta málmbandi tí-
unda áratugarins, Pantera.
Meðal þeirra sem tóku upp hanskann fyrir
Blythe var bróðir Dimebag, Vinnie Paul úr
Pantera, Damageplan og Hellyeah, sem horfði
á bróður sinn myrtan. „Árásarmaðurinn leit
út eins og hver annar maður þegar hann kom
upp á sviðið, andartaki síðar voru fjórir látn-
ir,“ sagði Vinnie Paul í viðtali meðan Blythe
sat inni. Morðinginn, Nathan Gale, skaut þrjá
aðra til bana og særði sjö til viðbótar áður en
böndum var komið á hann.
Hæglátur og víðlesinn
Nokkru púðri var eytt í að fjalla um eðli
málmtónleika fyrir dómi, þar sem mönnum,
bæði flytjendum og gestum, verður gjarnan
heitt í hamsi. Tónlistin er kraftmikil og hröð
og fær blóðið til að renna. Algengt er að
aðdáendur hendi sér fram af sviðinu, taki
„sviðsdýfu“, og láti skarann grípa sig. Þetta
kann að virka hættulegt og framandi fyrir þá
sem ekki þekkja til. Og getur sannarlega ver-
ið það.
Sýnd voru myndbönd frá tónleikum Lamb
of God og „árásargjörn“ hegðun Blythes gerð
að umtalsefni. Meðal vitna sem lögðu orð í
belg um það efni var Chris Adler, trymbill
Lamb of God, sem benti á að um „leik“ væri
að ræða. Blythe væri í reynd hæglátur, hóf-
samur og víðlesinn maður.
Í Bandaríkjunum var umræðan hliðholl
Blythe og vinir hans og kunningjar kepptust
við að bera honum vel söguna. Blythe kynni
að setja á svið gott „sjóv“ en mætti annars
ekki vamm sitt vita. „Randy er mesti ljúfling-
ur í heimi,“ sagði Vinnie Paul í fyrrnefndu
viðtali.
Rétturinn kallaði til bæði geðlækni og sál-
fræðing sem rætt höfðu við Blythe. Nið-
urstaða þeirra var samhljóma; hann væri ekki
árásargjarn en gæti átt í vandræðum með að
hafa hemil á tilfinningum sínum undir álagi.
Vinir Noseks báru vitni og einn þeirra, Jan
Jebavý, kvaðst ekki í nokkrum vafa um að
Blythe hefði hrint Nosek með báðum höndum
niður af sviðinu. Vinunum bar ekki í öllum at-
riðum saman um atburðarásina og verjendur
Blythes bentu á misræmi milli framburðar
sumra þeirra við skýrslutöku eftir atburðinn
og fyrir dómi.
Að sögn vinanna var Nosek bláedrú á tón-
leikunum.
Vandalaust vitni, Alena Rozsívalová, stað-
festi framburð Jebavýs. Að hennar sögn
reyndi Nosek að príla upp á sviðið en í þann
mund sem hann ætlaði að standa upp hafi
Blythe hrint honum með þeim afleiðingum að
hann féll aftur fyrir sig.
Öryggiskröfum ekki mætt
Robert Havelka, sem vann sem öryggisvörður
á tónleikunum, bar að hann hefði séð áhorf-
anda falla fram af sviðinu en var ekki viss um
hvort Blythe hefði átt þátt í máli. Í eiðsvarinni
yfirlýsingu frá rekstrarstjóra Abaton-
tónleikahússins sagði að henni hefði ekki verið
kunnugt um meiðsli Noseks og andlát fyrr en
lögregla hafði samband við hana vegna rann-
sóknarinnar.
Fram kom að öryggiskröfum Lamb of God
hefði ekki verið mætt en hljómsveitin hefði
eigi að síður ekki gert athugasemdir við það
áður en hún fór á svið. Sjálfum fannst Blythe
of margir í salnum og öryggisgæsla ekki full-
nægjandi. Hljómsveitin hafði óskað eftir að
grindverk yrði sett upp 1,5 metra frá sviðinu
en við því var ekki orðið. Tónleikagestir báru
fyrir dómi að öryggisverðir hefðu ekki virst
hafa miklar áhyggjur af hegðun gesta og til-
raunum þeirra til að komast upp á sviðið. Þá
þótti sumum Blythe beinlínis hvetja gesti til
að koma upp á sviðið. Því hafnaði söngvarinn
alfarið. Hann eggjaði aðdáendur gjarnan á
tónleikum en aldrei til að ryðjast upp á sviðið.
Grunaður um manndráp
án þess að vita af því
Í TVÖ ÁR VAR RANDY BLYTHE, SÖNGVARI BANDARÍSKA MÁLMBANDSINS LAMB OF GOD, GRUNAÐUR
UM MANNDRÁP AF GÁLEYSI Í TÉKKLANDI ÁN ÞESS AÐ HAFA HUGMYND UM ÞAÐ SJÁLFUR. NÍTJÁN
ÁRA PILTUR, DANIEL NOSEK, LÉST EFTIR TÓNLEIKA SVEITARINNAR VORIÐ 2010 OG Á ENDANUM VAR
BLYTHE DREGINN FYRIR DÓM, SAKAÐUR UM AÐ HAFA HRINT HONUM FRAM AF SVIÐINU.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bandaríska málmbandið Lamb of God í öllu sínu veldi.
Randy Blythe við réttarhöldin í Prag vorið 2013.