Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 49
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Einleikurinn Eldklerk-
urinn, sem Möguleikhúsið
frumsýndi fyrir nokkrum ár-
um við afar góðar viðtökur,
var tekinn aftur til sýninga í mán-
uðinum í Tjarnarbíói. Allra síðasta
sýning verður á sunnudag kl. 16.
2
Hinni öflugu og frjóu tón-
listarhátíð Myrkum músík-
dögum lýkur í dag, laug-
ardag, en þá er fjöldi
tónleika á dagskránni. Meðal lista-
manna og hópa sem koma fram í
Dómkirkjunni og Hörpu eru Kamm-
ersveit Reykjavíkur, Nordic Affect
og Guðný Einarsdóttir.
4
Japanshátíð Háskóla Ís-
lands verður haldin á Há-
skólatorgi í dag, laugardag,
klukkan 13 til 17. Japanskar
teiknimyndasögur, bardagalist, matur,
menning og tónlist er meðal þess
sem kynnt er á hátíðinni.
5
Opið hús verður í Hulduhól-
um í Mosfellsbæ, heimili og
vinnustofu Steinunnar
Marteinsdóttur leirlista-
konu, á sunnudag klukkan 14 til 16.30.
Gestum gefst meðal annars kostur á
að njóta leiðsagnar Steinunnar um
þetta fallega listhús hennar. Leiðsögnin
er í tengslum við sýningu á verkum
hennar í Hönnunarsafni Íslands.
3
Um helgina lýkur í Listasafni
ASÍ við Freyjugötu sýningum
þriggja listakvenna. Í Ásmund-
arsal sýna Hulda Vilhjálms-
dóttir og Marta María Jónsdóttir mál-
verk á sýningunni „Roði, strokur,
andrá“, en á neðri hæðinni er sýning
Anne Herzog, „Vítiseyjan“.
MÆLT MEÐ
1
„Á mörkum hins mannlega“ er yfirskrift tón-
leika sem verða í Hallgrímskirkju á sunnu-
dag klukkan 17. Á þeim mun hópur þekktra
íslenskra tónskálda notfæra sér hinn nýja
midi-búnað í Klais-orgeli kirkjunnar til að
skapa verk sem, samkvæmt tilkynningu, eru
langt ofar mannlegri getu í flutningi.
Þetta verður í fjórða sinn sem midi-búnað-
urinn er notaður á þennan hátt til tónsmíða
og flutnings og hafa fyrri tónleikar vakið at-
hygli og verið vel sóttir.
Tónskáldin sem eiga verk á tónleikunum
eru þau Elín Gunnlaugsdóttir, Gunnar Andr-
eas Kristinsson, Hlynur A. Vilmarsson, Úlfur
Hansson, Ragnhildur Gísladóttir og Áki Ás-
geirsson. Áki aðstoðar jafnframt við tækni-
lega útfærslu og er umsjónarmaður flutnings-
ins ásamt Gunnari Andreasi.
Gunnar Andreas Kristinsson nam tón-
smíðar í Reykjavík, Köln og Haag. Hann hef-
ur samið verk af ýmsum toga, allt frá
einleiksverkum til hljómsveitarverka, sem
ratað hafa inn á tónlistarhátíðir víðs vegar
um heim. Gunnar hlaut Kraumsverðlaunin
2013 fyrir geisladiskinn Patterns.
Ragnhildur Gísladóttir lauk MA-prófi í tón-
smíðum frá LHÍ 2013. Hún hefur starfað
sem tónlistarmaður um árabil og samið tón-
list við kvikmyndir, leikrit og dansverk.
Áki Ásgeirsson tónskáld og tónlistarmaður
nam við Tónlistarskólann í Reykjavík og í
Den Haag í Hollandi. Hann hefur samið tón-
list bæði fyrir hljóðfæri og tölvur og hafa
verk hans verið flutt víða um lönd.
Hlynur A.Vilmarsson lærði tónsmíðar við
Tónlistarskólann í Reykjavík og raftónlist við
Tónlistarskóla Kópavogs. Tónlist hans hefur
verið flutt víða af hópum á borð við Kamm-
arensamblen, Njuton Ensemble og Uusinta
Chamber Ensemble.
Elín Gunnlaugsdóttir er starfandi tónskáld
og tónlistarkennari á Selfossi. Hún lauk prófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og fram-
haldsnámi í Den Haag.Verk hennar hafa ver-
ið flutt víða og hefur hún hlotið fjölmargar
viðurkenningar fyrir tónsmíðar sínar.
Úlfur Hansson leggur stund á raftónlist og
upptökutækni í Kaliforníu en áður lærði hann
tónsmíðar og nýmiðlun við Listaháskólann.
Hann hefur gefið út þrjár plötur og ferðast
víða um heim sem tónlistarmaður.
SEX TÓNSKÁLD NÝTA SÉR
MIDI-BÚNAÐINN Í KLAIS-ORGELI
HALLGRÍMSKIRKJU Á TÓNLEIKUM
Í KIRKJUNNI Á SUNNUDAG.
Gunnar Andreas
Kristinsson
Ragnhildur
Gísladóttir
Áki
Ásgeirsson
Elín
Gunnlaugsdóttir
Hlynur
A.Vilmarsson
Úlfur
Hansson
RAFMÖGNUÐ NÝSKÖPUN Á TÓNLEIKUM Í HALLGRÍMSKIRKJU
Leikið á mörkum hins mannlega
„Mér finnst ég vera að fást við allan skala
mannlegra tilfinninga og sæki efniviðinn
ýmist í sjálfa mig eða umhverfið,“ segir
Sigga Björg. Bak við hana er verkið
Morð, þar sem sokkur kemur við sögu.
Morgunblaðið/Einar Falur
mér og líður svo bara betur eftir á!“
– Fígúrurnar þínar eru iðulega einskonar
mannskoffín, bræðingur manns og skepnu.
„Kannski birtist líka bæði mannlegt og
dýrslegt eðli í þeim … Ég hef mjög gaman af
því að ýta á mörk, og af því hömuleysi sem
brýst fram þegar fólk fer að haga sér eins og
dýr – eðli sem við felum eða bælum dags-
daglega. Ég hef vissulega áhuga á því sem er
að gerast þarna undir niðri. Og á tilfinninga-
legum óþægindum, aðstæðum þar sem maður
veit ekki alveg hvernig á að bregðast við,
hvort eigi að hlæja eða gráta. Aðstæðum þar
sem manni líður ekki alveg þægilega; ég upp-
lifi að þá þurfi maður að horfast í augu við
sjálfan sig og einhvers konar sannleika.“
– Minnstu hlutir og atvik geta orðið þér að
efniviði í þessar furður. Í einni sögunni hér
er það sokkur sem stækkar og virðist gleypa
mann og í annarri vindur hljóðfæraleikur upp
á sig og verður að martröð.
„Já. Í lok fyrstu setningarinnar kemur
kannski orðið sokkur og þá fer sagan í ein-
hverja átt með hann. Ég vil ekki stjórna því
og hef enga skýringu á þessu ferli. Ekki frek-
ar en með myndirnar. Ég vinn þær á borði
og hér,“ segir hún og bendir á stóran svartan
flöt á einni, „byrjaði ég með einhvern poll eða
slettu af bleki og myndin byggðist út frá því.“
– Í öllum þessum myndum eru þessir stóru
svörtu fletir, pollar eða slettur. Vellur teikn-
ingin út frá þeim?
„Já, þannig gerist þetta. Og oft er þetta
nokkuð mikill pollur sem dregur pappírinn
saman og myndar áferð í hann.
Ég hef mikið gert smærri myndir og það
er allt annað að vinna á svona stórar arkir.
Það er líkamlegra og kannski var ég að leit-
ast við að ögra mér fyrir þessa sýningu, þetta
er mjög líkamleg vinna með pappírinn og
blekið sem rennur sína leið og ég reyni að
ráða við það allt saman – og leita um leið að
óvæntum upplifunum í því.“
– Eru möguleikarnir óþrjótandi með þessar
furðufígúrur?
„Já, það finnst mér vegna þess að tilgang-
urinn með karakterunum er að tákna tilfinn-
ingar og aðstæður og þar eru viðfangsefnin
endalaus. Ég er að gera allskonar tilraunir
með útfærslur á þessum heimi, eins og með
þessi vídeó. Ég hef oft gert myndbandsverk
með „stop-motion“ en er rétt að byrja að
nota það í þrívíðum verkum. Þar er ég aftur
komin út í eitthvað sem ég ræð ekki alveg við
og kann ekki alla tæknina, en ég geri þetta
samt með einhverjum leiðum. Þá finnst mér
oft eitthvað forvitnilegt gerast. Það er mik-
ilvægt fyrir mig að ferlið sé skemmtilegt og
óvænt og ég viti ekki alveg hvert það muni
leiða mig.“