Morgunblaðið - 17.02.2016, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Snjóflóðahætta og glórulaust …
2. Hélt milljónum frá skattinum
3. Bónusinn í takti við erlenda þróun
4. Hvannadalshnjúkur hefur hækkað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Chalumeaux-tríóið og Hanna Dóra
Sturludóttir mezzósópran flytja verk
eftir Pál P. Pálsson, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Igor Stravinsky og J.S.
Bach/H. Birthwistle auk þess að frum-
flytja verk eftir Jónas Tómasson á tón-
leikum í Hátíðarsal HÍ í dag kl. 12.30.
Klarínettur og söng-
ur í Hátíðarsal HÍ
Sjálfsbirting
nefnist einkasýn-
ing sem Ólöf
Dómhildur Jó-
hannsdóttir opnar
í Galleríi Úthverfu
í kvöld kl. 20. Í
verkum sínum
skoðar Ólöf mót-
un kvenleikans,
líkamans og sálarinnar með það að
markmiði að ná æðsta stigi þarfa-
píramídans í sjálfsbirtingu. Sýningin
stendur til 20. mars.
Ólöf Dómhildur sýnir
í Galleríi Úthverfu
Apparat Organ Quartet og asdfhg.
koma fram á tónleikum á Kex host-
eli í kvöld kl. 21 og er aðgangur
ókeypis. Tónleikarnir eru hluti af
tónlistardagskrá sem fram fer á Kex
samhliða Sónar Reykjavík. Apparat
Organ Quartet skipa þeir Arnar Geir
Ómarsson, Hörður
Bragason, Sighvatur
Ómar Kristinsson
og Úlfur Eldjárn.
Tvíeykið asdfhg.
skipa Steinunn Jóns-
dóttir og Orri Úlf-
arsson.
Apparat Organ Quar-
tet og asdfhg. á Kex
Á fimmtudag Fremur hæg breytileg átt og talsvert frost. Snjó-
mugga á annesjum norðanlands, annars bjartviðri. Vaxandi suð-
austanátt síðdegis, suðaustan 8-15 m/s og heldur hlýnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-18 m/s norðvestantil en 5-13
m/s annars staðar. Kólnandi. Gengur í norðvestan 8-15 m/s með
snjókomu fyrir norðan í kvöld.
VEÐUR
Leikmenn Esjunnar tryggðu
sér í gærkvöldi sæti í úrslit-
um Íslandsmóts karla í ís-
hokkí. Esja vann lið SR, 7:1, í
lokaumferð Hertz-deildar-
innar. Þetta verður í fyrsta
sinn sem liðið leikur til úr-
slita, en það var stofnað
fyrir tveimur árum. Esja
mætir ríkjandi meisturum
Skautafélags Akureyrar í
úrslitum Íslandsmótsins.
Fyrsti leikurinn fer fram á
föstudaginn á Akureyri. »2
Esjan í úrslit
í fyrsta sinn
„Við erum með það margar góðar
stelpur í 2. flokki núna að við töldum
að það væri mikið betra verkefni fyrir
þær að fara með meistaraflokkslið í
1. deildina og spila við lið með eldri
leikmenn. Þannig teljum við að þær
verði fyrr tilbúnar að spila við liðin í
Pepsi-deildinni,“ segir þjálfari
kvennaliðs Vals í knattspyrnu, en
nokkur af
sterkustu lið-
um lands-
ins senda
nú varalið
sín í 1. deild-
ina. »3
Betra verkefni að spila
í 1. deild en 2. flokki
.„Mér líst þvílíkt vel á þetta og ég tel
þetta vera frábært skref fyrir mig á
þessum tímapunkti,“ sagði miðvörð-
urinn Hjörtur Hermannsson. Í gær
var gengið frá samningi um að hann
yrði lánaður frá PSV Eindhoven í Hol-
landi til sænska úrvalsdeildarliðsins
Gautaborgar. „Gautaborg er flottur
klúbbur og ég fæ gott tækifæri til að
spila í stærri deild.“ »4
Hjörtur segir vistaskipt-
in vera gott skref
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Una Halldóra Halldórsdóttir
og Geir Guðmundsson, sem áttu 60
ára brúðkaupsafmæli í fyrra, hafa
sótt þorrablót Bolvíkinga oftar en
nokkrir aðrir, hún 59 sinnum og hann
58 sinnum. „Ég fór einu sinni ein og
þar fyrir utan höfum við misst af fjór-
um blótum frá því við fórum fyrst
1954,“ segir Una.
Bolvíkingar halda ríkt í hefðina og
ber þorrablótið þess merki. Hefð er
fyrir því að konur bjóði bændum sín-
um á blótið, sem er eingöngu fyrir
hjón, sambýlisfólk, ekkjur og ekkla í
Bolungarvík. 11 konur eru í þorra-
blótsnefnd, sem er skipuð til eins árs
af fráfarandi nefnd. Þær sjá um
undirbúning, skipulag og skemmti-
atriði. Tvenn til þrenn hjón eru
gjarnan trogfélagar, koma saman
með þorramat fyrir sig í trogum.
Ekki eru notuð hefðbundin hnífapör
heldur vasahnífar að gömlum sið.
„Grunnurinn hefur ekkert breyst en
skemmtiatriðin eru vandaðri nú en
áður og meira í lagt,“ segir Una. „Oft-
ast er annáll ársins fluttur og svo eru
alltaf sungnar vísur um nefndarkon-
urnar. Og það get ég sagt með sanni
að alltaf er jafn undrunarvert hvað
býr í nefndarkonum, sem flestar
koma hvergi fram opinberlega nema
á þessum vettvangi. Ég efast líka um
að nokkurs staðar á landinu sé
samankomið eins margt fólk í ís-
lenskum búningi eins og á þorra-
blótinu okkar, en konur mæta til
blótsins í upphlut eða peysufötum og
karlarnir í dökkum jakkafötum eða
íslenska hátíðarbúningnum.“
Hjónaklúbbur
Þorrablótið varð til upp úr hjóna-
klúbbi og var fyrst haldið í gamla
stúkuhúsinu 1944. Árið 1952 var fé-
lagsheimilið vígt og hefur blótið farið
fram í því frá 1953. „Það ár trúlofuð-
um við okkur og því fengum við að
mæta árið eftir,“ segir Una. Henni
finnst umræðan um aðgangsregl-
urnar á stundum ekki eiga við rök að
styðjast, því að blótið sé í raun fyrir
ákveðinn klúbb fólks. „Þetta er okkar
hópur, fyrst og fremst paraball, og
við förum ekki á árshátíð hjá ein-
hverju félagi eða vinnustað sem við
tilheyrum ekki, eins og til dæmis
árshátíð hjá bæjarstarfsmönnum,“
segir hún. Áréttar samt að hún hafi
aldrei verið samþykk því að meina
fráskildu fólki aðgang. „Nefndin
hverju sinni ræður þessu. Það er eng-
inn lagabókstafur til að styðjast við
heldur aðeins hefðin og þær ungu eru
ekki síður fastheldnar en þær eldri.“
Rúmlega 170 manns mættu á
þorrablótið í ár. Una segir að sam-
veran skipti mestu máli. „Stemningin
og tilfinningin fyrir því að vera þátt-
takandi í mannlífinu og gleðjast með
samborgurunum. Sú tilfinning hefur
ekkert breyst frá því við fórum á
fyrsta blótið 1954. Þarna er ekkert
kynslóðabil og þess eru dæmi að fjór-
ir ættliðir í sömu fjölskyldunni hafi
mætt á blótið,“ segir Una. Hún bætir
við að þau hjónin hafi alla tíð tekið
virkan þátt í félagslífinu í Bolungar-
vík. „Við reynum að taka þátt í því
sem í boði er þó að við séum orðin
þetta fullorðin,“ segir Una og leggur
áherslu á að þau séu hraust og í fullu
fjöri, þótt þau séu komin á níræðis-
aldur. „Við sitjum ekki heima ef við
eigum kost á því að fara þangað sem
eitthvað er um að vera.“
Oftast allra blótað þorra
Hafa sótt þorra-
blót Bolvíkinga
58 og 59 sinnum
Á þorrablóti Hjónin Geir Guðmundsson og Una Halldóra Halldórsdóttir ásamt Sólrúnu, dóttur þeirra.
Ljósmynd/Sólrún Geirsdóttir
Klæðnaður Allir í dökkum fötum og flestir í íslenskum búningi.