Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2016 L itagleðin ræður ríkjum í höfuðstöðvum Plain Vanilla á Laugavegi. Ungt fólk er þar að vinna í hverju horni; sumir virðast vera í tölvuleikjum og nokkrir eru í klippingu. „Já, það er verið að klippa fólk í dag,“ segir viðmælandinn minn, Vala, eins og ekkert væri sjálfsagðara en að fá hárgreiðslumeistarann til sín í vinnuna. En þetta er enginn venjulegur vinnustaður því þarna vinnur fólk við að fá góðar hug- myndir og sjálfsagt er þetta frá- bær hugmynd og góð sparnaðar- leið. Markmið á þrítugsafmæli Við fáum okkur kaffi og ég byrja á viðkvæmri spurningu; um aldur konu. Vala segist vera nýorðin 31 árs sem var að hennar sögn erf- iðara en að verða þrítug. „Mér fannst mjög spennandi að verða þrítug, þá fór ég í djúpa lífs- skoðun,“ segir Vala sem bjó til langan lista af hlutum sem hún ætlaði að klára á því ári. „Ég er mjög markmiðadrifin,“ segir hún en hún er vön að gera lista í upp- hafi hvers árs. Þrítugsafmælislist- inn var enn lengri en venjulega en á honum var m.a. að hlaupa heilt maraþon. Hún lét verða af því síð- asta haust og hljóp New York- maraþonið. „Það var geðveikt!“ segir Vala sem hljóp á 3 klst. og 36 mínútum. „Það var svo gaman að hlaupa í gegnum öll hverfin. Í hverju hverfi komstu inn í nýtt umhverfi og nýja upplifun. Þegar maður fór í gegnum blökkumanna- hverfi var geggjað stuð og tónlist og þegar maður fór í gegnum Gyð- ingahverfið var alveg þögn. Og þegar maður kom inn á Manhatt- an var það alveg „crazy“. Ég mæli með þessu, þetta er algjör upp- lifun,“ segir hún. „Ég fór líka í Wow-ið með mjög skemmtilegum konum,“ segir Vala og á við Wow- hjólamaraþonið um Ísland. Hún náði þessum og fleiri markmiðum og vissi varla hvað hún ætti að gera þegar árinu lauk. Draumasumar ungmenna Vala er iðnaðarverkfræðingur og útskrifaðist það örlagaríka ár, 2008. „Ég útskrif- aðist um vorið og fór að vinna á verkfræðistofu um sumarið og vann þar þegar allt hrundi. Mér var sagt upp í kringum áramótin. En ég hef nú alltaf sagt það að þetta er það besta sem hef- ur komið fyrir mig. Annars hefði ég kannski ílenst þarna og dregist inn í þennan heim. Þetta voru svo fyndnir tímar. Allir misstu vinn- una og þetta var virkilega skemmtilegt sumar fyrir fólk á okkar aldri. Það voru allir ann- aðhvort enn á launum en ekki að vinna eða komnir á atvinnuleys- isbætur þetta sumar 2009. Það var einhver kæruleysisandi í gangi. Þetta var virkilega gott sumar,“ segir hún og hlær. Heilaspuni seldist upp En það kom að því að alvaran tók við og Vala dó ekki ráðalaus. Hún og vinkona hennar, Sesselja Vil- hjálmsdóttir, tóku höndum saman og gerðust frumkvöðlar. „Það var enga vinnu að fá og allir að fara út í nám en okkur langaði að gera eitthvað geggjað saman. Þá byrj- uðum við að leggja drögin að spilinu, Heilaspuna. Við gerðum það á mettíma þarna um haustið og það kom út fyrir jólin 2009,“ segir Vala en spilið sló í gegn og seldist upp strax. Þær höfðu aldrei áður komið ná- lægt slíkri vinnu. Hugmyndin kviknaði út frá áhugamálunum. „Við vorum í spilaklúbbi, báðar spilamann- eskjur. En svo var þetta bara „brainstorming“ um hvað við gætum gert og hvað myndi virka. Við vorum með alls konar hugmyndir en duttum niður á þetta,“ segir Vala en þær stöllur gengu um með eitt skrifað A4-blað til að kynna hugmyndina fyr- ir ýmsum fyrirtækjum. „Við náð- um að selja fyrir framleiðslukostn- aði frekar fljótt, án þess að vera byrjaðar að framleiða,“ segir hún en spilið seldist upp á hálfum mánuði. „Þetta var kveikjan að næstu verkefnum,“ segir Vala en þær Sesselja störfuðu saman í rúm þrjú ár og stofnuðu tvö fyr- irtæki, Matador Media og annað í kringum app sem heitir Kinwins. Kvikmynd um frumkvöðla Eftir Heilaspunaævintýrið langaði þær að færa sig meir út í tæknina. „Þá datt okkur í hug að gera þessa mynd um unga frumkvöðla í tæknigeiranum. Eiginlega var eini tilgangur þeirra myndar sá að þá fengum við að hitta allt þetta fólk sem við gætum spurt hvernig við ættum að gera þetta! Og fá dálítið „inspó“. Við ferðuðumst um Evr- ópu og Bandaríkin og fengum við- töl við ótrúlegustu hetjur. Svo komum við heim og bjuggum til „trailer“ og settum á Kickstarter. Það gekk svona ótrúlega vel, það verður bara einhver sprengja þar. Það varð einhver sjúklegur áhugi á þessari mynd sem við ætluðum bara að henda í smá vídeó og setja á netið. Við ætluðum ekkert að gera svona mikið úr þessu, þetta var meira svo við gætum ferðast,“ segir Vala brosandi. „Þá skynjuðum við þennan svakalega áhuga á þessu og átt- uðum okkur á að við værum með eitthvað flott í höndunum. Við fengum fjármagn og leituðum eftir meira fjármagni til að fara aftur og taka myndina eiginlega upp á nýtt,“ segir Vala. „Þá gerðum þetta af meiri alvarleika.“ Ástríðan er nauðsynleg Í ferðinni hittu þau unga tækni- frumkvöðla og segir Vala að marg- ir þeirra hafi gert það gott síðan þá. Myndin hefur gengið mjög vel og hefur verið sýnd víða um heim. „Það er svo skemmtilegt að það er verið að nýta hana mikið í kennslu í háskólum og grunnskólum út um allan heim til að kynna það fyrir krökkum að það er raunhæfur kostur að vera frumkvöðull. Svo höfum við ferðast mikið með myndina og haldið fyrirlestra,“ segir Vala sem lýsir hvað þurfi til að vera frumkvöðull. „Það þarf að fá hugmyndina og vera ástríðu- fullur, það verður að vera ástríða. Það eru hæðir og lægðir, þetta er alger rússibanareið. Svo þarf að vera úrræðagóður, maður þarf að redda öllu. Allt frá bókhaldinu, í tæknilegar útfærslur yfir í söluna. Þú þarft að hugsa um allt.“ Raunhæfur kostur að vera frumkvöðull „Við erum að fara að bylta sjónvarps- upplifun af því að við ætlum að tengja saman að horfa á sjónvarp og vera í símanum þínum. Þannig að þú getur tekið þátt í gegnum símann og spilað með,“ segir Valgerður Halldórsdóttir hjá Plain Vanilla. Valgerður Halldórsdóttir, ávallt kölluð Vala, er ung kona á uppleið. Hún er verkfræðimenntuð en stjórnar nú þróunarvinnu við QuizUp-leikinn hjá Plain Vanilla og er þar einn af fimm yfirmönnum. QuizUp mun brátt verða að sjónvarpsþætti í Hollywood, sem Vala bindur miklar vonir við. Í frítím- anum hendist Vala upp á fjöll með kærastanum, annaðhvort á hjóli eða á skíðum. Blaðamaður og ljósmyndari: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það var gaman að heimsækja Völu í höfuðstöðvar Plain Vanilla. Hún er hress, orkumikil og lífsglöð og eins og hún segir sjálf, mjög markmiðadrifin. Hún virðist bæði fá góðar hugmyndir og framkvæma þær enda sannur frum- kvöðull. Það verður gaman að sjá hverju hún tekur upp á í framtíðinni. Vala og kærasti hennar, Emil Þór Guðmundsson, eyða frítíma sínum uppi á fjöllum. Þau fara mikið um landið á fjallahjólum en nýjasta æðið er fjallaskíðamennska. ’Fólk er mikið aðkynnast þarna og þaðer fullt af hjónaböndumsem hafa komið út úr þessu. Við fáum reglulega pósta frá fólki sem þakkar okkur fyrir að hafa breytt lífi sínu. Það sé að fara að flytja til Ástralíu af því að hinn Game of Thrones-aðdáandinn sem það hefur talað við síðustu mánuði býr þar“ VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.