Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2016
LESBÓK
J
æja, þá er það einn ein bílferðin austur til
Coachella-dalsins að kíkja á hátíðarhaldið
í ár. Gönguskór, sólarvörn, derhúfa,
vatnsflaska, sólgleraugu, myndavél, lang-
ermaskyrta, eyrnatappar, og ekki má
gleyma hátíðarandanum. Ferðina verður mað-
ur að undirbúa ef vel á að fara.
Hátíðin fór fram í sautjánda sinn hér í eyði-
mörkinni í Suður-Kaliforníu, hófst 15. apríl og
léku alls 228 sveitir og listafólk á sex sviðum
Empire-pólóvallarins í Indio-borg. Rétt undir
eitt hundrað þúsund manns eru á hátíðarsvæð-
inu hvern dag, en forráðamenn hátíðarinnar
hafa náð að bæta aðstæður hátíðargesta ár
hvert.
Undirritaður hafði misst af tveimur síðustu
hátíðum. Eftir að Goldenvoice-fyrirtækið, sem
rekur hátíðina, keypti pólóvöllinn þar sem há-
tíðin fer fram er augljóst að forráðamenn þess
hafa ekki setið auðum höndum. Á mun fleiri
stöðum fást alls konar veitingar og nýtt efni
hefur verið sett á Gobi- og Mojave-tjöldin, sem
hefur bætt hljóm þeirra verulega.
DJ Mustard slær í gegn
Undirritaður mætti fyrri part eftirmiðdagsins
á föstudag, 15. apríl, og eftir stutt viðtal við
meðlimi Of Monsters and Men var stefnan sett
á strákana tvo í Bob Moses frá Vancouver.
Þeir spila góða blöndu af raftónlist og rokki.
Undirritaður sá þá rétt tveimur dögum áður
hita upp á tónleikum og eins og oft áður þegar
maður nær að sjá upphitunarhljómsveitir
komu þeir á óvart. Á göngu um svæðið eftir á
rakst ég á DJ Mustard í stóra Sahara-
danstjaldinu. Hann er hiphop-plötusnúður
héðan úr Los Angeles og þótt maður sé lítið
gefinn fyrir það sem hann var að bjóða var
augljóst af aðsókninni (tjaldið var troðfullt og
hundruð gesta hlustuðu fyrir utan) og and-
rúmsloftinu að hann var að slá ekki þetta lítið í
gegn.
Það er augljósara með hverju árinu á Coach-
ella að hip hop (oft kallað rapp) listafólk dregur
til sín yngri hátíðargesti og oft er þar mesta
stemmingin.
Troðfullt á OMAM
Of Monsters and Men hófu síðan leik á stóra
útisviðinu þegar sólin var að setjast handan
San Jacinto-fjallanna vestan megin í dalnum.
Ávallt skemmtilegur tími á
hátíðarsvæðinu. Á meðan
tæknimenn voru að setja upp
komu miklar vindhviður, en
hinir heitu Santa Ana-vindar
voru ríkjandi um alla Suður-
Kaliforníu þann dag. Hins
vegar var engin hætta, þar
sem tæknifræðingar og fag-
fólk eru vön vindinum á svæð-
inu.
Okkar fulltrúar á hátíðinni
slógu vel í gegn. Það var troð-
fullt á öllu svæðinu í kringum sviðið, þannig að
það hafa örugglega verið um 35 þúsund manns
að horfa og var mikið sungið og dansað. Hljóm-
sveitin einbeitti sér að vinsælustu lögum sínum
og eftir að hafa séð hana síðasta sumar hér
vestra er augljóst að Skrímslafólkið hefur enn
bætt sviðsframkomu sína. Maður verður
hreinlega að hafa virðingu fyrir leikgleði
hljómsveitarinnar, sem smitar út frá sér meðal
áhorfenda.
Underworld lyfti upp þakinu
Ég þaut svo þvert yfir hátíðarsvæðið, því ekki
ætlaði ég að missa af ensku raftónlistarsnill-
ingunum í Underworld. Þeir eru nú að fylgja
eftir nýrri plötu í fyrsta sinn í sex ár og voru
hreint út sagt stórkostlegir. Lyftu upp þakinu
á Sahara-danstjaldinu með hverju taktföstu
laginu á fætur öðru.
Maður lét svo LCD Soundsystem – sem aug-
lýst var sem aðalsveit dagsins – framhjá sér
fara eftir upphafslagið, enda
langur dagur að baki. Flest-
um ber saman um að James
Murphy og kollegar hafi stað-
ið sig þokkalega, en þeir gátu
ekki keppt við Jack U á sama
tíma. Jack U er dúett þeirra
Skrillex og Diplo – tveggja
stærstu nafnanna í raftónlist-
inni þessa dagana. Yngra
fólkið flykktist í Sahara-
tjaldið á meðan hægt var að
finna nægilegt pláss á stóra
sviðinu hjá LCD Soundsystem. Það vildi víst
hlusta á barninginn í stað fínni framsetningar.
Þetta er dæmigert fyrir hátíðina. Meirihlut-
inn af hátíðargestum er ungt fólk sem flykkist í
hip hop og raftónlistina, en einnig vilja margir
hlusta á sveitir sem hafa verið í bransanum
lengri tíma.
Guns N’ Roses vonbrigði
Þrátt fyrir stífa dagskrá á laugardag þegar
hitinn jókst upp úr öllu valdi var það endur-
koma Guns N’ Roses frá Los Angeles sem olli
mestu eftirvæntingunni. Sveitin olli hins vegar
öllum nema hörðustu aðdáendum sínum von-
brigðum eftir 23 ára fjarveru í upprunalegu út-
gáfunni. Söngvarinn Axl Rose sat á hásæti eft-
ir að hann fótbrotnaði við undirbúning endur-
komu sveitarinnar og þrátt fyrir að reyna sitt
besta var hann ekki svipur hjá sjón frá því sem
áður var þegar hann dansaði um allt sviðið.
Gítarleikarinn Slash stóð að mestu á sama
stað í stað þess að hlaupa um sviðið eins og
hann var vanur að gera á árum áður. Hann
fékk aðstoð frá Angus Young, gítarleikara AC/
Raftónlist, vindhviður
og slappir rokkarar
Of Monsters and Men sýndi enn einu sinni, á fyrstu helgi Coachella--
tónlistarhátíðarinnar, að rétt eins og Björk Guðmundsdóttir og Sigur Rós á fyrri
hátíðum er þetta tónlistarfólk hinir raunverulegu útrásarvíkingar Íslands.
Gunnar Valgeirsson gvalgeir@gmail.com
’Hljómsveitin ein-beitti sér að vin-sælustu lögum sínumog eftir að hafa séð
hana síðasta sumar
hér vestra er augljóst
að Skrímslafólkið hef-
ur enn bætt sviðs-
framkomu sína.
Hljómsveitin Of
Monsters and Men á
sviði á Coachella-
hátíðinni.