Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Blaðsíða 30
FERÐALÖG Þegar ferðast er með barn er gott að hafa í huga að taka ekki of mikinnfarangur. Ekki má taka svo mikið að það verði til þess að ekki sé hægt að
halda í höndina á barninu og bera töskurnar (eða rúlla þeim) um leið.
Ekki báðar hendur fullar
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2016
Í september hópast hugrakkirhlauparar til Slóveníu, nánar til-tekið að skíðastökkpallinum
fræga í Planica. Ekki þó til að
stökkva á skíðum heldur til að
hlaupa upp snjólausan pallinn.
Vegalengdin er ekki nema 400
metrar, en tíminn sem það tekur að
komast þarna upp er talsvert lengri
en á jafnsléttu enda er brekkan
snarbrött.
Fyrst var hlaupið upp skíðastökk-
pallinn fræga árið 2012 og nú hefur
hlaupið bæst í hlauparöð sem kallast
RedBull400. Um er að ræða átta 400
metra hlaup víðsvegar um heiminn.
Vegalengdin er alltaf 400 metrar og
alls staðar er hlaupið upp snar-
brattar brekkur sem jafnan eru not-
aðar sem skíðastökkpallar á vet-
urna. Til að tryggja snjóleysi fer
hlauparöðin fram í maí til sept-
ember. Fyrsta hlaupið í þessari
krefjandi hlauparöð fer þetta árið
fram í Almaty í Kasakstan 1. maí.
Þann 28. maí er hlaupið í Kuopio í
Finnlandi, þá í Titisee-Neustadt í
Þýskalandi 16. júlí og skíðabænum
fræga Whistler í Kanada þann 30.
júlí. Í ágúst eru tvö hlaup, annað fer
fram í Harrachov í Tékklandi 13.
ágúst og hitt þann 27. ágúst í Bisc-
hofshofen í Austurríki. Þann 17.
september verður svo hægt að reyna
sig við fyrrnefndan stökkpall í Pla-
nica í Slóveníu og 24. september
verður hlaupið upp skíðastökkpall í
Park City í Utah.
Hlaupið upp
skíðastökkpalla
Fjögur hundruð metra hlaup upp snarbrattan, grasilagðan skíðastökkpall er
sannarlega öðruvísi frí. Fjöldi fólks ferðast um heiminn einmitt í þeim til-
gangi að koma blóðinu á hreyfingu á þennan sérstaka hátt.
Skíðastökkpallar eru brattir, enda eru þeir jafnan hannaðir í því skyni að
stökkvarar nái sem lengstu flugi og komist sem hraðast.
AFP
Fjögur hundruð metrar eru ekki löng vegalengd, en þegar hallinn er mikill get-
ur reynst þrautin þyngri að komast á áfangastað. Fyrir ferðalanga sem vilja
meira en hefðbundna borgarferð er auðvitað rakið að reyna sig við 400 metra
snarbratta skíðastökkpalla og hlaupa eins hratt og lungun og kálfarnir leyfa.
Ljósmynd/RedBull
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**