Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Síða 19
24.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 lega. „NBC er stærsta sjónvarps- stöð í heiminum og þeir eru að leggja allt í þetta. Þannig að mitt starf hefur breyst mjög mikið. Ég byrjaði í spurningadæminu og þróaði ritstjórnarteymi í kringum það. Svo stofnuðum við skrifstofu í New York í fyrra og einblíndum á tekjur og þróun og ég flutti þang- að og leiddi það starf. Þar bjó ég í hálft ár. En út af þættinum þá lokuðum við í New York og opn- uðum skrifstofu í LA. en þátturinn hefst í haust. Það sem ég er að gera núna er að leiða tekjuteymið; leita leiða til að búa til tekjur af QuizUp. Þetta er eiginlega við- skiptaþróun. Við erum líka í sam- starfi við mörg brönd í Bandaríkj- unum sem geta komið inn og átt sína spurningaflokka í QuizUp,“ segir Vala sem hefur í nógu að snúast. „Það er ekki búið að op- inbera allt í kringum þetta,“ segir Vala leyndardómsfull en Íslend- ingar koma til með að sjá um tæknilegu hliðina á þáttunum. Vala segir að þau bindi miklar vonir við þáttinn og vonast eftir að hann muni fara út um allan heim, svipað og The Voice. „Þetta er bú- ið að vera ævintýralegt. Að taka þátt í bæði hæðum og lægðum hér. Það er ótrúlegt að taka þátt í að byggja upp fyrirtæki svona fljótt.“ Fjallaskíði nýtt áhugamál Þegar Vala er ekki í vinnunni sit- ur hún ekki auðum höndum. Hún situr í stjórn Sagafilm og í frítíma sínum ferðast hún um landið, ann- aðhvort á hjóli eða gangandi á skíðum upp brattar skíðabrekkur. „Ég er algjört útivistarfrík. Ég og kærastinn minn erum mjög dugleg að hreyfa okkur. Förum oft á fjallahjólum upp á hálendi. Og nýjasta súperhobbíið okkar er fjallaskíði. Þá setur maður skinn undir skíði, labbar upp og rennir sér niður. Við höfum alltaf verið bæði á snjóbretti og stunduðum það mikið en ákváðum að skipta yfir á skíði, fyrir þetta sport, fyrir svona tveimur árum. Við erum al- gjörlega „húkkt“. Svo er hægt að fara á fjöll allt árið. Þetta er svo mikil upplifun, ég mæli sko með þessu! Þetta er svo skemmtilegt og opnar svo margar nýjar leiðir. Þú ert að fara á ókunnugar slóðir, kannski þangað sem enginn hefur verið áður,“ segir Vala í anda frumkvöðulsins. Að fara þangað sem enginn hefur verið áður. Að búa til spurningabanka Eftir heimildarmyndina héldu þær stöllur áfram að þróa og fram- kvæma sínar hugmyndir. „Þarna fengum við mikið „inspó“ og vorum samhliða þessu að vinna að okkar eigin fyrirtæki. Vorum að gera heimasíður og buðum upp á ýmsa þjónustu. Og árið eftir gerðum við Kinwins sem er snjallsímaleikur,“ segir hún. „Stuttu síðar fór Sesselja í nám og ég fór til Plain Vanilla. Það var í byrjun 2013 en þá vorum við bara sjö manns,“ segir hún en nú vinna þarna sjötíu. „Við ætl- uðum að búa til stærsta spurninga- leik í heimi en við áttum engar spurningar í það. Þannig að fyrsta verkefnið var að skala upp spurn- ingabanka. Það er ekki samið hér innanhúss heldur er það gert úti í heimi. Við vorum í samstarfi við margar „fan“-síður,“ útskýrir hún en þar fundu þau fólk sem vissi allt um ákveðin málefni. QuizUp-hjónabönd verða til QuizUp-spurningaleikurinn hefur slegið í gegn í heiminum og tengir fólk saman. „Eins og með Game of Thrones, það er rosalega flottur Game of Thrones-flokkur í QuizUp og er fjöldi fólks að spila það og tala saman um það,“ segir hún og útskýrir fyrir blaðamanni að innan hvers flokks er hægt að finna fólk sem hefur sama áhugamál og þú og er að spila og spjalla saman. „Fólk er mikið að kynnast þarna og það er fullt af hjónaböndum sem hafa komið út úr þessu. Við fáum reglu- lega pósta frá fólki sem þakkar okkur fyrir að hafa breytt lífi sínu. Það sé að fara að flytja til Ástralíu af því að hinn Game of Thrones- aðdáandinn sem það hefur talað við síðustu mánuði býr þar,“ segir hún og hlær. Að bylta sjónvarpsupplifun Það er margt stórt á döfinni hjá Plain Vanilla. „Svo erum við að fara að gera sjónvarpsþátt í haust með NBC. Þetta er svipað og Viltu vinna milljón en þetta er QuizUp. Við erum að fara að bylta sjón- varpsupplifun af því að við ætlum að tengja saman að horfa á sjón- varp og vera í símanum þínum. Þannig að þú getur verið að taka þátt í gegnum símann og spilað með,“ segir hún en þátturinn verð- ur sendur út beint. Fólkið heima getur því unnið en Vala segir að ekki sé búið að þróa þáttinn endan-Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.