Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Side 24
Allt í steik! Nautakjöt er herramannsmatur sem hægt er að elda á marga vegu. Það má steikja, baka eða grilla nautakjöt en best er að bragðið fái að njóta sín án þess að drukkna í kryddum eða maríneringu. Nautið er tilvalið í helgarmatinn þegar fólk vill gera vel við sig og fjölskylduna. Því hver vill ekki mjúka og safaríka steik með góðri sósu? Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2016 4 sirloin-steikur 1⁄4 bolli svartur pipar 1 ½ tsk. hvítur pipar ½ tsk. chili-pipar flögur 1 tsk. kóríander 1⁄4 bolli sykur 1 msk. salt 1 tsk. hvítlauksduft Blandið öllum kryddunum saman í skál. Nuddið kryddblöndunni á báðar hliðar steikanna. Hristið af það sem ekki festist. Setjið á heitt grill og grillið í tvær mínútur. Snú- ið og grillið í aðrar tvær. Færið kjötið til á grillinu á minni hita ef ykkur finnst það ekki tilbú- ið og klárið að grilla það þar. Ber- ið hverja steik fram með sneið af sítrónusmjöri. SÍTRÓNUSMJÖR 4 msk. smjör, linað 1 msk. fínt skorin steinselja 1 msk. safi úr sítrónu 1⁄4 tsk. hvítlauksduft Hrærið kryddunum saman við smjörið og leggið á plastfilmu og rúllið í lengju. Kælið þar til hart. Skerið svo sneiðar til að setja ofan á steikurnar. Sirloin-steikur með sítrónusmjöri MATUR Ribeye með rauðvínssósu 4 beinlausar ribeye-steikur sem eru ca. 1 kg (1-1 ½ cm þykkar sneiðar) 2 msk. matarolía 2 hvítlauksrif, rifin 3⁄4 bolli þurrt rauðvín 1⁄4 bolli vatn 1 ½ tsk. sojasósa 3 msk. ósaltað smjör, skorið í 3 búta 1 msk. skorin steinselja 1 tsk. salt ½ tsk. pipar Þerrið steikurnar og kryddið með teskeið af salti og hálfri teskeið af pipar. Hitið eina matskeið af olíu- nni á góðri pönnu yfir háum hita þar til vel heitt. Setjið þá steik- urnar út á pönnuna. Þið gætuð þurft að gera það í tveimur holl- um. Snúið einu sinni. Steikið í heildina í 4 mínútur ef þið viljið hafa steikina miðlungs hráa (medium rare). Færið steikina yfir á disk og breiðið yfir með álpappír. Helltu feitinni af pönnunni og settu aðra matskeið af olíu á hana. Láttu hvítlaukinn malla á pönn- unni í u.þ.b. 30 sekúndur. Bættu við víni og láttu koma upp suðu. Með spaða skaltu skafa botninn á pönnunni til að ná úr því leifum eftir kjötsteikinguna. Láttu sjóða niður þar til helmingur vökvans er horfinn. Tekur 2-3 mínútur. Bættu þá við vatni, sojasósu og safa sem lekið hefur af kjötinu á diskinn og láttu sjóða niður í 3-4 mínútur. Lækkaðu hitann og hrærðu smjör- bútunum við, einum í einu þar til sósan þykknar. Hrærðu að lokum steinseljunni saman við. Helltu yf- ir steikurnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.