Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2016, Qupperneq 26
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / info@hotelork.is / tel.: +354 483 4700 / fax: +354 483 4775
Á Hótel Örk geturðu valið milli 7 mismunandi fundarrýma af
ýmsum stærðum. Komdu í sveitasæluna og fundaðu í friði.
Fundafriður á Hótel Örk
Á Hótel Örk í Hveragerði er afbragðsaðstaða til fundahalda af ýmsu tilefni.
Starfsfólk okkar hefur mikla reynslu af því að aðstoða fyrirtæki og félagasamtök
við skipulagningu og undirbúning á hvers kyns fundum og ráðstefnum.
þyngd og
án útbún-
aðar.
Hreyfispjöld-
in eru í hent-
ugri stærð og
ekki nauðsyn-
legt að hafa
reynslu af hreyf-
ingu þar sem á spjöldunum eru
myndir og fullnægjandi útskýr-
ingar, segir í umsögn þeirra um
verkefnið á vef Karolina Fund.
Einföld æfingaspjöld fyrir eldri
borgara, sem auka styrk, þol, lið-
leika og jafnvægi er hugmynd sem
þær Anna Björg Björnsdóttir og
Gerður Jónsdóttir vilja gera að
veruleika. Þær leita nú eftir fram-
lögum gegnum Karolina Fund til
að hægt sé að koma spjöldunum í
framleiðslu.
Báðar eru þær með BS- og
Med-gráðu í íþróttafræðum og
miklar íþróttakonur. Anna Björg
hefur iðkað knattspyrnu nær
allt sitt líf og Gerður lagt
stund á fimleika og
júdó.
Í náminu
fengu þær
mikinn
áhuga á hreyf-
ingu eldri borg-
ara en komust
að því að lítið er
til af aðgengilegu
efni fyrir þennan
hóp. Með hreyfi-
spjöldum fyrir eldra
fólk vilja þær bæta úr
því.
Æfingarnar á hreyfispjöldunum
eru gerðar með eigin líkams-
HEILSUVERKEFNI Á KAROLINA FUND
Hreyfispjöld fyrir aldraða
Anna Björg og
Gerður vilja koma
hreyfispjöldunum
í framleiðslu.
HEILSA Bensín, grillvökvi, lyf og þvottaefni eru dæmi um efni sem finnast áheimilum. Örlítið magn þeirra innvortis getur haft alvarlegar afleið-
ingar. Passa skal að geyma þessi efni þar sem börn ná ekki til.
Eiturefni og börnin
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2016
Lára G. Sigurðardóttir, læknir hjá Krabbameinsfélaginu,fjallar um nýja uppgötvun vísindamanna á heilsan-okkar.is. Þar segir hún frá því að vísindamenn við Dana-
Farber-krabbameinsstofnunina og við Brigham and Women’s
Hospital í Boston gerðu nýlega merka uppgötvun og voru nið-
urstöðurnar birtar í tímaritinu Cancer Research.
Gömul vefjasýni skoðuð
Vísindamennirnir skoðuðu vefjasýni sem voru tekin fyrir fjöru-
tíu árum úr 302 konum sem höfðu greinst með góðkynja sjúk-
dóm í brjósti (þ.e. ekki krabbamein). Af þeim greindust 69 konur
með brjóstakrabbamein síðar meir og voru vefjasýni þeirra sem
greindust með krabbamein borin saman við vefjasýni
kvennanna sem fengu ekki sjúkdóminn.
Fimmfalt meiri áhætta
Þær konur sem mældust með hátt hlutfall af Ki67 í frumum sem
þekja mjólkurganga og mjólkurkirtla voru í fimmfalt meiri
áhættu að fá brjóstakrabbamein. Niðurstöðurnar vekja von um
að í framtíðinni verði hægt að mæla Ki67 próteinið til að finna
þær konur sem eru í aukinni áhættu að þróa með sér brjósta-
krabbamein. Með því væri hægt að bregðast við í tíma til að
koma í veg fyrir að sjúkdómurinn myndist eða greina hann á
frumstigum. Í dag eru brjóstamyndir besta leiðin til að greina
brjóstakrabbamein á byrjunarstigi. En brjóstamyndir sýna ekki
öll krabbamein og geta gefið falskt öryggi. Þetta er því merkileg
uppgötvun sem gæti hjálpað mörgum konum í framtíðinni.
Myndataka er notuð til að greina brjóstakrabba en nú hafa vísindamenn uppgötvað að með því að mæla Ki67 prótein má spá um
hversu líklegt er að kona fái brjóstakrabba og grípa þá til ráðstafana í tæka tíð.
Prótein sem getur sagt
fyrir um krabbamein
Ný uppgötvun vísindamanna sýnir að
mikið magn Ki67 próteins í líkamanum
getur verið vísbending um að kona fái
brjóstakrabbamein síðar á ævinni.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is